Feykir - 13.12.1989, Síða 1
^ raísjá hf
JótKCLrt-
Sérverslanir meö
raftæki
Sæmundargötu 1
Sauöárkróki
Skapast öngþveiti um áramótin?:
Hjúkrunarfræðingar
hjá Heilsugæslunni
segja upp störfum
Forráðamenn sjúkrahúss- og
heilsugæslu á Sauðárkróki eru
áhvggjufullir þessa dagana,
því í dag stefnir í að um næstu
áramót gangi hjúkrunarfræð-
ingar við heilsugæsluna út.
Þeir hafa sagt upp störfum
sínum og litlar líkur taldar að
húið verði að ráða í störf
þeirra fyrir áramót.
,,Það liggur alveg í augum
uppi að uppsagnir þessara
þriggja hjúkrunarfræðinga
eru launalegs eðlis. Sveitar-
félögin greiddu ákveðna
launauppbót til hjúkrunar-
fræðinga við heilsugæsluna
til samræmis við launaupp-
bót sem hjúkrunarfræðingar
við sjúkrahúsið hafa haft.
Um næstu áramót eiga þær
breytingar sér stað í rekstri
sjúkrastofnana að ríkið yfir-
tekur rekstur bæði sjúkra-
húss og heilsugæslu. Af
þessum sökum hefur launa-
nefnd sveitarfélaga vísað
kjaramálum starfsfólks við
sjúkrastofnanir til samning-
anefndar ríksins. Það er
greinilegt að hjúkrunarfræð-
ingarnir eru hræddir um að
missa launauppbótina og
þeir standi uppi með ber-
strípaða dagvinnutexta. Reyndar
kann ég ákaflega illa þeirri
aðferð sem hefur tíðkast að
fólk beiti uppsögnum í
samningum. Með því móti
eru samningamálin komin úr
eðlilegum farvegi”, segir
Hörður Ingimarsson einn
stjórnarmanna Sjúkrahúss
Skagfirðinga á bæjarstjómar-
fundi í síðustu viku.
Björn Sigurbjörnsson for-
maður bæjarráðs lagði fram
tillögu á fundinum þar sem
hann óskaði eftiráskorun frá
bæjarstjórn til ríkisvaldsins,
um að gera eitthvað í þessum
málum tafarlaust, þannig að
yfirvofandi ófremdarástandi
í heilsugæslumálum í hérað-
inu eftir áramótin verði
afstyrt. Tillögunni var vísað
til bæjarráðs til frekari
skoðunar.
Það hefur færst jólasvipur á Aðalgötuna á Króknum síðustu daga.
Hegranes:
Mokar upp ufsanum
Skafti seldi vel í síöustu viku
Hegranes landaði um helgina
160 tonnum af fiski, þar af 100
tonnum af ufsa, sem er líklega
mesti ufsaafli sem nokkurt
skagfirskt skip hefur komið
með að landi fyrr og síðar.
Ufsinn er utan kvóta.
Skafti seldi ágætlega í
Bremenhafen í síðustu viku
Sl. haust seldu Daníel
Pétursson á Eyri og þrír synir
hans: Ársæll, Péturog Eðvald.
bát sinn Neista HU-5, 24
tonna trébát og hugðust kaupa
minni hát. Ekki gekk það
þrautalaust fyrir sig, þar sem
þeir oftar en einu sinni misstu
af hát sem þeir höfðu hug á til
aðila sem gjarnan kaupa slíka
háta til úreldingar vegna
kvótans.
Þeir feðgar hafa nú fest
kaup á bátnum Jökli SF-75
frá Höfn í Hornafirði. Þetta
153 tonn af karfa fyrir 83
krónur kílóið. Drangey selur
á sama stað í þessari viku
180-190 tonn. Á fimmtudag-
inn kom Skagfirðingur með
um 150 tonn, karfi og ufsi í
bland. Mjög góð veiði hefur
verið hjá togurunum síðustu
10 dagana.
er stálbátur, 9,77 tonn að
stærð. smíðaður árið 1987 í
Bátalóni í Hafnarfirði. Hann
er í slipp núna en er
væntanlegur til Hvamms-
tanga í þessari viku.
Að sögn Eðvalds er
ætlunin að fara á línu til að
byrja með því báturinn á enn
ai'gang af kvóta þessa árs.
Eftir áramótin fer Jökull á
innljarðarrækjuna. en línu-
fiskurinn fer trúlega á markað
suðu r.
Gjaldheimtu-
karpið til
einskis
Nú liggur fyrir að karp uni
staðsetningu gjaldheimtu, sem
sveitarstjórarmenn á Norður-
landi vestra, og ryndar víða á
landinu, hafa eytt drjúgum
tíma í síðustu misserin, hafi
verið unnið fvrir gýg. Fjár-
málaráðuneytið tilkynnti með
bréfi nýlega að ráðuneytið
mundi ekki taka þátt í stofnun
fleiri gjaldheimtna á þessu ári
og því næsta.
Sveitarstjórnarmenn hér í
kjördæminu munu hafa rætt
það, síðast á fundi nýlega, að
til greina kæmi að gjald-
heimtur yrðu á fleiri en
einum stað í kjördæminu.
Fjármálaráðuneytið „klippir”
á þessar hugmyndir í bréfinu.
„Af hálfu ríkissjóðs hefur
hingað til ekki komið til
greina að semja um aðra leið
en gert er ráð fyrir í tillögum
gjaldheimtunefndar sem starfar
á vegum fjármálaráðuneytis-
ins”, stendur í bréfinu.
Guðmundur Sigvaldason
sveitarstjóri á Skagaströnd
og formaður gjaldheimtu-
nefndar á Norðurlandi vestra
segir þessa niðurstöðu von-
brigði eftir alla þessa miklu
vinnu í málinu. „Mér sýnist
þetta vera ávísun á óbreytt
kerfi næstu tvö árin”, segir
Guðmundur.
Hallbjörn „kántrýkóngur" Hjartarson skemmti gestum í
íþróttahúsinu á Króknum sl. föstudagskvöld. Hór syngur hann um
I.ukku-Láka og að sjálfsögðu er reiðskjótinn til staðar.
Eyrarfeðgar
kaupa bát