Feykir - 13.12.1989, Page 2
2 FEYKIR 45/1989
■ RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR:
Þórhallur Ásmundsson ■ ÚTGEFANDI:
Feykir hf. ■ SKRIFSTOFA: Aðalgötu 2,
Sauðárkróki ■ PÓSTFANG: Pósthólf 4,
550 Sauðárkróki ■ SÍMI: 95-35757 95-
36703 ■ STJÓRN FEYKIS HF.: Jón F.
Hjartarson, Sr. Hjálmar Jónsson, Sæmundur
Hermannsson, Sigurður Ágústsson, og
Hilmir Jóhannesson ■ BLAÐAMENN:
Magnús Ólafsson A-Hún., Hólmfríður
Bjarnadóttir V-Hún. ■ AUGLÝSINGASTJÓRI:
Sólmundur Friðriksson ■ ÁSKRIFTARVERÐ:
80 krónur hvert tölublað; í lausasölu
80 ■ ÚTGÁFUDAGUR: Miðvikudagur ■
SETNING, UMBROT OG PRENTUN: SÁST
sf., Sauðárkróki. ■ Feykir á aðild að
Samtökum bæja- og héraðsfréttablaða.
Heimisbókin komin út:
Söngur í 60 ár
Komin er út á vegum
Karlakórsins Heimis í Skaga-
f'irði bókin Söngur í 60 ár,
þar sem rakin er sextíu ára
starfssaga kórsins. Konráð
Gíslason skrásetti bókina
sem er um 300 síður, prýdd
150 myndum sem tengjast
starfsemi kórsins á einn eða
annan hátt.
Markmiðið með útgáfu
bókarinnar er að sögn
Þorvalds Oskarssonar for-
manns Heimis, einungis það
að forða frá gleymsku sögu
þessarar merku menningar-
sttirfsemi í Skagalirði. Söngur í
60 ár verður til sölu hjá Pétri
Péturssyni Sauðárkróki, Guð-
manni Tobíassyni Varma-
hlíð og Árna Bjarnasyni
Uppsölum. Auk þess sem
allir félagar Heimis útvega
bókina þeim sem þess óska. I
Reykjavík er bókin til sölu
hjá Skagfirsku söngsveitinni,
Rögnvaldi Haraldssyni Brúnar-
landi 4 og Antoni Angantýs-
syni í Bílanausti. Söngur í 60
ár var prentuð í 300
eintökum og er seld á
kostnaðarverði.
Eignir Útgerðarfélagsins:
Afhentar um áramót
Á fundi stjórnar Útgerðar-
félags Skagfirðinga í síðustu
viku var ákveðið að afhending
á skipum félagsins, svo og
bækistöðvnm þess við Hesteyri,
fari fram um næstu árantót.
Eins og kunnugt er hefur
kaupfélagið fest kaup á
húseigninni við Hesteyri,
fyrir rafmagns- og vélaverk-
stæði. Á sama fundi kont
fram að samið hefur verið við
Ágúst Guðmundsson, að
vera stjórninni innan handar
um frágang á bókhaldsmál-
um fyrirtækisins. Ágúst lét af
starfi framkvæmdastjóra ÚS
um siðustu mánaðamót, en
mun halda áfram í hluta-
starfi hjá félaginu til vors.
Skakkt
— Það er afskaplega
mikilvægt að fólk, sem
tilkynnir bruna á Blönduósi
eða í nærsveitum hringi í
símann 24111, í stað þess að
hringja í símanúmer slökkvi-
stöðvarinnar, sagði Þorleifur
Arason slökk viliðsstjóri í
samtali við blaðamann. Þetta
er vegna þess að það er engin
vakt í slökkvistöðinni, en
neyðarvakt er í Héraðshæl-
númer
inu og þar er síminn 24111.
Neyðarvaktin nær síðan
samstundis í slökkvi 1 iðsstjóra
með kalltæki hvar sem liann
er staddur.
Þorleifur vildi koma þessu
á framfæri vegna þess að
stundum eyðir fólk dýrmæt-
um tíma við að reyna að ná
sambandi ísímanúmerslökkvi-
stöðvarinnar án árangurs.
Bo*
gifl*11
Það er mjög athyglisvert
að lesa niðurstöðu þá sem
fékkst á fjölmennum fundi
hjá Alþýðufræðslubandalagi
Skagastrandar nýverið. Þar
voru tillögur frá hópi ungra
og framsýnna manna, sem
mynda undirfélag innan
bandalagsins sem ber nafnið
„Hirting”, bornar upp og
samþykktar samhljóða.
Kjarninn í þessum tillög-
um er að hafin skuli þegar á
næsta ári skipulögð grisjun
byggðar á höfuðborgarsvæð-
inu. Röksemdir fyrir þessum
tillögum voru settar fram í
fimm stafliðum eftirfarandi:
A. Hættulegt erfyrirþjóðina,
að safna öllum verðmætum
sínum saman á stað þar sem
eldvirkni er fyrir hendi. Gæti
það þýtt allsherjar hrun
íslenskrar menningar, ef til
náttúruhamfara kæmi, sem
vel er hugsanlegt.
B. Þjóðhagsleg verðmæta-
sköpun er í algeru lágmarki á
Reykjavíkursvæðinu og borgin
er á góðri leið með að verða
sníkjudýr á þjóðarlíkaman-
um, sem sýgur til sín allt blóð
úr æðum Iandsins.
C. Mengun fer vaxandi á
höfuðborgarsvæðinu og er
þar að skapast vandamál sem
getur orðið mjög dýrt fyrir
þjóðina, ef ekki verður ráðin
þar bót á með afgerandi
aðgerðum.
D. Opinber spilling hagkerfis,
dómskerfís og löggjafarkerfís
skapast mikið af því aðallt er
bundið á einn bás á sama
staðnum. Dreifíng valdsinsá
fleiri staði er því þjóðhagsleg
nauðsyn.
E. Island er lýðveldi en ekki
borgríki. Reykjavík stækkar
sífellt á kostnað landsins í
fjölþættum skilningi. Því er
aðeins um þá leið að ræða, að
skipuleggja grisjun óðaþétt-
býlisins og hafa þar hags-
muni landsins alls að leiðar-
ljósi, svo sjálfstæð þjóð megi
halda áfram að lifa í frjálsu
lýðveldi.
Þeir Hirtingarmenn voru á
einu máli um gildi tillagna
sinna, er rætt var við þá eftir
umræddan fund, í húsi
Alþýðufræðslubandalagsins í
Svanfríðargerði. Verður fróð-
legt að fylgjast með fram-
vindu þessara mála. Undir
Borginni eru menn nokkuð á
einu máli um þessar hug-
myndir og telja að líkast til sé
það óhjákvæmilegt, frá þjóð-
hagslegu sjónarmiði að minnka
höfuðborgina. Islendingar
hafa hreinlega ekki efni á því
að eiga svona stóra höfuð-
borg. Hún er allt of dýr í
rekstri og útflutningstekjur
af landsbyggðinni geta ekki
öllu lengur haldið borginni
uppi. Einnig er óhæft með
öllu að miða allt kerfisskipu-
lag þjóðarinnar við það að
metta þessa gengdarlausu
hít.
Á þessa leið töluðu
Hirtingarmenn og kváðust
þeir hafa skoðað þessi mál
mjög vel og rannsakað alla
þætti þeirra. Starfsemi Alþýðu-
fræðslubandalagsins er mjög
lífleg um þessar mundir og
fundir mjög tíðir undir
forsæti hins skelegga hug-
myndafræðings Hirtingar,
Marðar Lýðssonar, en hann
rekur ljósritunarstofu hér í
bæ. En eins og áður segir —
fróðlegt verður að fylgjast
með því sem gerist í þessum
málum á næstunni, í kjölfar
fyrmefndar samþykktar, sem
hlýtur að verða forystu-
mönnum þjóðarinnar ærið
umhugsunarefni næstu vik-
urnar.
Rúnar Kristjánsson
Síðara bindi
Sýslunefndar-
sögu komið út
Sjúkrahús og heilsugæsla á Tanganum:
Sameiginleg árshátíð
Starfsfólk á sjúkrahúsi og
heilsugæslustöð Hvammstanga
hélt sameiginlega árshátíð 18.
nóvember sl. Var það hin
líflegasta santkoma sem hófst
með sameiginlegu horðhaldi.
Eins og vera ber á svona
kvöldi voru skemmtiatriði af
léttara taginu. Áður en öllu
gríni var sleppt lausu voru
heiðraðir fjórir starfsmenn
sent eru að láta afstörfum við
sjúkrahúsið á þessu ári fyrir
aldurs sakir. Það eru Hólm-
fríður Magnúsdóttir, Mar-
grét Theódórsdóttir, Sigríð-
ur Halldórsdóttir og Karin
Blöndal. Voru þeirn færðar
gjafir og blóm.
I skemmtidagskrá var
leitast við að sýna starfið frá
öðru sjónarhorni. má þar
nefna sjúkraflutning með
konu í barnsnauð suður.
kynntar nýjar hugmyndir í
sparnaði, auk þes sem makar
sungu létt lög. Auðvitað var
svo dansað fram á nótt.
Hljómsveitin Öldungadeildin
annaðist tónlistina þar sem
gömlu dansarnir voru í
hávegum hafðir. H.
Síðara bindi Sýslunefndar-
sögu Skagfirðinga eftir Krist-
mund Bjarnason er komið út.
Útgefandi er Sýslunefnd
Skagafjarðar.
Efni þessa bindis er afar
fjölbreytt og girnilegt til
fróðleiks, enda var sýslu-
nefnd Skagafjarðar kunn að
því að láta sér fátt mannlegt
óviðkomandi. Dæmi um
nokkra efnisþætti eru; fundar-
sköp og verkahringur sýslu-
nefndar, sauðfjárveikivarnir,
loðdýrarækt, skógrækt, heil-
brigðismál, samgöngur, sími,
skemmtanir og hátíðahöld
(,3ýslufundarvikan” var undan-
fari Sæluviku), rafmagnsmál,
húsmæðraskóli, söfn, tónlist,
Drangeyjarmál og húsakostur.
I bókarauka er fullkomið
sýslunefndarmanna- og sýslu-
mannatal, og þá fylgja margs
konar skrár til mikils
fróðleiks- og hægðarauka.
Skemmtileg og fróðleg bók
sem á erindi til allra
Skagfírðinga og miklu fleiri.