Feykir - 13.12.1989, Síða 3
45/1989 FEYKIR 3
Nýkomið
Bolir
Hjólabuxur - Hlaupabuxur
Fyrir veiðimenn^fCgi
Skotveiðivesti
Byssupokar
Veiðistangir
Veiðihjól
Adidas íþróttatöskur
Adidas úlpur
Kuldaúlpur barna
Æfingaskór
Körfuboltaskór
Skautar
Húfur
Sokkar
Komdu á Hólaveginn /-\
Verslaðu ódýrt!
Góðar jólagjafir
og allt í jólamatinn
100 vörutegundir
á tilboðsveggnum
Konfekt 400 gr. kr. 298
Allt í baksturinn
Allt í jólamatinn
Jólatilboð
Bayonaiseskinka
kr. 855
Lambahamborgarahryggur
kr. 498
Hangikjöt
frá KEA
Verslunin TINDASTÓLL Glansgallar - Vindgallar - Trimmgallar
Hólavegi 16 - Sími 5119 |_eikföngin öll á gamla verðinu
Ný og ^
belri
bÚð ||§£' Míímý 21
Jólaskreytingar
og efni til jólaskreytinga
Nýtt - Stálskálar og föt með 24 k. gyllingu
Toppurinn í dag
cuaDuoin
Handan Vatna fréttir
Hofsósi 6/12
Best að byrja á útgerðinni.
Héðan frá Hofsósi eru gerðir
út 3 bátar, 9-16 lestir að
stærð, róa þeir með línu. Afli
hefur verið svona í meðallagi,
eða um 100 kg. á bala, en
langt er á miðin, svona frá 3-
5 tíma stím.
Það hefur verið tekið upp
hér eins og á fleiri stöðum að
bátar fái fría beitningu, beitu
og línu. Þetta hefði þótt gott
þegar ég var að bagsa við
línuútgerð, sú útgerð ætlaði
að drepa mann vegna mikils
kostnaðar. Þá heyrði maður
talað umaðsumstaðarfengju
útgerðir fría beitu. En sem
sagt allt frítt núna. Það ætti
ekki að vera tap á þessari
útgerð. En hvernig er hægt að
borga svona mikið fyrir
fiskinn? Það verður varla
vandi að semja við fiskverk-
endur um hærra fiskverð
(landssambandsverð) um næstu
áramót.
Atvinna hefur verið stopul
hér nú undanfarið, t.d. í
Hraðfrystihúsinu. Hefur þar
vantað hráefni, mest vegna
siglinga togara og gámaút-
flutnings á erlenda markaði.
Ymsir óvissu þættir eru hér í
sambandi við atvinnu eftir
áramót og fólk óttast
atvinnuleysi.
Endurbætur á kirkjunni
Undanfarið hefur verið
unnið að endurbótum á
kirkjunni okkar. Þegar þetta
er skrifað er búið að mála
hana í hólf og gólf að innan.
Sá Jónas Þór málari á
Króknum um þann þátt og
virðist hafa tekist vel. Verið
er að klæða kirkjubekkina og
tók sá þrællagni náungi
Valgeir á Vatni það að sér og
sé ég ekki betur en að honum
ætli að takast það vel, enda
ekki við öðru að búast.
Einnig hefur Valgeir gert við
ýmislegt í kirkjunni. Stefnter
að því að allt verði klárt áður
en jólahátíð gengur í garð.
Fyrirhugað er að gera við
kirkjuna að utan næsta
sumar og er þegar búið að
ráða mann til að sjá um það
verk.
Skjálftavirkni og landris
Ekki get ég látið hjá líða að
minnast aðeins á Kaupfélagið
hér. Annars fór smá skjálfta-
virkni af stað hér og land reis
talsvert er greinin sem ég
skrifaði í Feyki kom fyrir
almennings sjónir. En allt
virðist nú orðið eins og áður,
og meira að segja opnunar-
tími sölubúðar einnig eins og
áður.
í pistli sem KS Hofsósi
sendi í öll hús á svæðinu, er
ýmislegt gott að sjá og er t.d.
talað um að breyta opnunar-
tíma sölubúðar og sjoppu frá
16. des. til jóla.
Eg ræddi ýmis mál
þessarar verslunar við Gísla
útibússtjóra eftir að þessi
bæklingur kom út og kom þá
helst fram að verslunin þyrfti
að aukast til að hægt væri að
lengja opnunartíma. Eg held
að það væri ekki svo fráleitt
að við hér reyndum nú að
versla sem allra mest hér í
heimaverslun og sjá til hvort
hagur hennar vænkist, en við
viljum að þetta verði skoðað
fljótlega eftir áramótin og
staðan metin.
En ein spurning í lokin.
Hvernig fer Guðmann í
Varmahlíð að að hafa opna
verslun alla daga til jóla frá
kl. 9-22?
Einar
Krakkar á götu á Hofsósi, heitir þessi mynd GM í myndasafni
Feykis, tekin fyrir 6 áruni. Trúlega hafa þessir krakkar
fullorðnast ntikið síðan: Jón Þór og Áslaug María Óskarshörn
og Eygló I lauksdóttir.