Feykir - 13.12.1989, Qupperneq 6
6 FEYKIR 45/1989
Fiskiðjan fær viðurkenningu
Fyrir liclgina voru staddir
í Fiskiðjunni fulltrúar frá
Sjávarafurðadeild Sambands-
ins í þeint erindagjörðum að
veita fyrirtækinu viðurkenn-
ingu fyrir vandaða framleiðslu.
Tengist þessi verðlaunaviður-
kenning framleiðslu í neyt-
endapakkningar sem Fiskiðjan
hefur unnið að upp á síð-
kastið og getið var í síðasta
blaði.
Jóhann Þorsteinsson gæða-
eftirlitsniaður hjá Sjávaraf-
urðadeild SÍS ásamt trúnaðar-
konunum í Fiskiðjunni, Efemiu
Halldórsdóttur og Guðrúnu
Kristmundsdóttur.
Það var býsna mikill atgangur hjá jólasveinunum.
Kveikt á jólatrénu
t
Innilegar þakkir til allra sem vottuðu
okkur samúð og vinarhug við andlát
og jarðarför
Margrétar Þorsteinsdóttur
frá Hjaltastöðum
Guð blessi ykkur öll
Fyrir hönd aðstandenda
Jórunn Sigurðardóttir
Frostastöðum
Áskrifendur!
Vinsamlega greiðið heimsenda
gíróseðla fyrir áskriftargjaldi
sem fyrst.
Feykir
Vilt þú verða
útundan?
Áskriftasíminn er 35757
Barnakórinn söng jólalög.
Síðdegis á laugardag voru
tendruð Ijós á jólatrénu á
Kirkjutorgi, sem erárleggjöf
vinabæjarins Kongsbergs í
Noregi til Sauðárkróks.
Blásarasveit Tónlistarskólans
flutti létt lög. Aðalheiður
Arnórsdóttir forseti bæjar-
stjórnar tlutti ávarp. barna-
kór undir stjórn Rögnvaldar
Valbergssonar söng og jóla-
sveinar komu í heimsókn.
Stækkun Sauðárkrókskirkju
Mjög líklega verður á næstunni
liafist handa við stækkun
Sauðárkrókskirkju. Yrði kirkjan
þá lengd til vesturs um 3,6
metra eða sem nemur stærð
kórsins. Við þá breytingu mun
hún taka um 100 manns fleiri í
sæti en hún gerir í dag.
Sóknarnefnd ákvað á fundi
16. nóv. sl. að vinna að
framgangi málsins og þessa
dagana er unnið að kvnningu
jtess meðai safnaðarins. Akvörðun
verður tekin á aimennum
safnaðarfundi sem stefnt er að
fyrir jól. Er vonast til að
bygginganefnd hafi þá veitt
málinu brautargengi.
Húsfriðunarnefnd hefur
tekið erindinu jákvætt og
fallist á þau rök að stækkun
kirkjunnar sé eina leiðin til
að halda kirkjunni í notkun
fyrir allan bæinn í náinni
framtíð. Hér sé um heppilega
lausn að ræða, í stað þess að
áður en langt liði þyrfti að
byggja nýja kirkju.
Fram kom á fundi með
sóknarráði og séra Hjálmari
Jónssyni að Sauðárkróks-
kirkja rúmar ekki alla
kirkjugesti við um 30
athafnir á ári. Er ekki
ólíklegt að við fjölsóttar
athafnir dragi það úr kirkju-
sókn. Þegar hafi orðið vart
áhuga og skilnings safnaðar-
fólks fyrir stækkun kirkjunnar.
Senn líður að 100 ára afmæli
Sauðárkrókskirkju. Hún var
byggð árið 1892 af Þorsteini
Sigurðssyni þekktum kirkju-
smið á þeim tíma, en hann
byggði margar kirkjur á
Norðurlandi vestra. Undan-
farið hafa staðið yfir endur-
bætur á kirkjunni að utan og
því talið mjög heppilegt að
fara í stækkunina nú, þannig
Ókeypis
smáauglýsingar
Hurðarhúnar óskast
Gamlir hurðarhúnar óskast,
helst úr tré. Mega vera illa
farnir. Á sama stað óskast
gamall vaskur gefins. Þóra
Björk sími 36777.
íbúð til leigu
Til leigu frá áramótum 3ja
herbergja ibúð við Viðigrund
4. Upplýsingar í síma 35300
(Sigga) á daginn og í síma
36692 á kvöldin.
Til sölu
Til sölu er Macintosh SE
tölva ásamt Image Writer II
prentara. Greiðslukjör.
Upplýsingar í síma 36674.
að hægt verði að ljúka þeim
frágangi. Unnið hefur verið
að viðgerð kirkjunnar í
samráði við Leif Blummen-
stein byggingarfræðing, sér-
fræðingi í viðgerð gamalla
húsa. Þorsteinn Gunnarsson
arkitekt hefur hins vegar
tekið að sér þann þátt er lýtur
að stækkun kirkjunnar og
væntanlegum endurbótum
innanhúss.
Til sölu
Notað píanó til sölu.
Upplýsingar i sima 38172
(Sveinn).
Hókus Pókus
Óska eftir að kaupa Hókus
Pókus barnastól.
Upplýsingar í sima 36648.
Ti! sölu
Til sölu notað sófasett á góðu
verði. Upplýsingar i síma
35606.
Til sölu
Til sölu fjórhjól Kawasaki
250, árgerð 1987. Verð kr. 100
þúsund, staðgreitt. Einnig
snjósleði Polaris Apollo, ár-
gerð 1980. Mjög góður sleði,
verð kr. 90 þúsund, staðgreitt.
Upplýsingar í sima 95-35013
Halldór eftir kl. 18.00.