Feykir - 13.12.1989, Blaðsíða 7
45/1989 FEYKIR 7
Átaksverkefni V-Hún,:
Ðúkonur selja brodd
Húnvetnskar búkonur aug-
lýstu brodd til sölu í
kaupfélaginu á Hvamms-
tanga 1. des. sl. Að sögn
Jónínu Sigurðardóttur á
Kolugili gekk salan vel.
Broddurinn er seldur fros-
inn í liálfs og eins lítra
plastumbúðum, tilbúinn til
eldunar. A umbúðunum er
límmiði með leiðbeiningum
um matreiðslu, upplýsingum
um framleiðslumánuð og ár,
ásamt númeri framleiðanda
og símanúmeri. Húnvetnskar
búkonur hyggjast safna
broddi í vetur og selja.
Hór er á ferðinni merkileg
tilraun i að nýta það hráefni
sem til fellur í íslenskum
landbúnaði. Er þetta liður í
átaksverkefni Vestur-Hún-
vetninga.
H
„Ef ég sé fallega náttúrusýn
er Skagafjörður mælikvarðinn”
spjallað við Birgi Dýrfjörð
Fjölbreytileikinn
í birtunni einstakur
Eftir að ég fór burtu fannst
mér ég alltaf eiga cftirað koma á
Krókinn al'tur. Tilfinningin til
staðarins var þannig að það stóð
aldrei annað til en ég flytti á
Krókinn aftur að loknu námi.
Þær eru æði sterkar minning-
arnar frá því maður varsmápolli
á Króknum. seni var farinn að
skynja náttúruna og umhverfið.
Það kom fyrir að ég hvarf úr
rúminu um miðja nótt. Fór bara
út ef veðrið var gott og labbaði
mig þá niður á gömlu bryggjuna
sem var niður undan trésmiða-
verkstæði kaupfélagsins. Að
minnsta kosti einu sinni varð
þess vart eldsnemma morguns.
;ið ég var ekki i rúminu mínu og
farið að leita að mér.
A gcimlu bryggjunni var
staðsett spil og trébóma sem
skagaði út yfir bryggjuna. Éggat
lesið mig cftir járnrörum út á
bómuna og þaðan alveg l'ram á
topp. með riturnar tlögrandi i
kringum mig og gjarnan komu
þær og settust hjá mér. Þarna lá
ég i algievmi og fylgdist með
morgunsólinni rísa úr sæ út \ ið
Drangey. Það er einmitt þessi
birta, fallega birta sem mér
l'innst svo einstakt \ ið Skaga-
fjörð. Fjölbreytileikinn i birtu á
öllum árstímum er svo einstak-
lega mikill. F.f ég sé fallega
náttúrusýn einhvers staðar þá er
Skagafjörðurinn alltaf mæli-
kvarðin n".
YAMAHA hljómborð
AKAI OG SANYO hljómtæki
SANYO - SIEMENS
sjónvörp og myndbönd
RADIQtW_@rafejáM
Sérverslanir með raftæki Sæmundargötu 1
Sama kvöldið og líklega
síðasti opinberi fundurinn í
Útgerðarfélagi Skagfirðinga,
framhaldsaðalfundurinn, var
haldinn, sátu tveir menn að
spjalli í liúsi einu í útjaðri
Kópavogs, og rifjuðu upp
stofnun þessa mikilvæga fyrir-
tækis sem öðru fremur varð til
þess að skjóta stoðum undir
blómlegt atvinnulíf á Sauðár-
króki og í héraðinu. Annar
þeirra átti sæti í fyrstu stjórn
ÚS og ritaði m.a. fyrstu 100
fundargerðir félagsins, Birgir
Dýrfjörð rafvirki. Það eru æði
niargir hér fyrir norðan sem
þekkja Birgi og sjálfur segir
hann það spursmál hvort hann
sé meiri Siglfirðingur eða
Skagfirðingur. Hann fæddist
á Siglufirði og átti þar heima
til sjö ára aldurs, er hann flutti
ásamt móður sinni og bræðrum
til Sauðárkróks. A Króknum
átti hann heima fram yfir
fermingu, flutti þá burtu en
kom svo aftur á Krókinn 1961
eftir að hafa lokið námi. Þar
bjó hann í 10 ár, en flutti þá
suður og hefur búið þar síðan.
Tvímælalaust er það stofnun
Útgerðarfélagsins seni stendur
upp úr í minningunni frá síðara
tímabili mínu á Króknum. Mér
er það algjörlega ógleymanlegt
þegar við héldum hér til i tvær
vikur samfleytt á Cityhóteli.
sendinefnd l'rá Króknum. Okkar
starl'i var að ganga á milli
ráðamanna og peningastofnana
til að útvega peninga til kaupa á
fyrsta togara útgerðarfélágsins.
Við höfðum þá augun á 250
tonna sildarbát sem Jón Gísla-
son útgerðarmaður í Hafnarfirði
átti og hét Fróðaklettur.
Þetta útgerðarbrölt okkar
mætti mikilli andstöðu hjá
sumum ráðamönnum hér syðra.
sem prédikuðu stöðugt að
Skagfirðingar ættu að halda sig
\ið landbúnaðinn áfram og
iðnaðinn. Það væri framtíðin. en
alls ekki að vera að Intgsa um
útgerð. Þeir væru engir sjómenn
og hefðu ekkert vit á sjó. frekar
en kýrnar.
Samstaðan vakti
mikla athygli
Það var ansi erfitt að reka
þetta sjónarntið á l'lótta, og það
er mitt mat að Sauðkrækingar
eigi mikið skagfirskum bænd-
um að þakka að stofnun
útgerðarfélagsins tókst. Það
myndaðist gífurlega breið sam-
staða. bæði á Króknum og i
sveitinni um stofnun félagsins.
Það vakti mikla athygli ráða-
manna, sérstaklega stjórnmála-
manna. að af 300 einstaklingum
sem skrifuðu sig fyrir hlutafc i
fclaginu, voru mjög margir
bændur. Það var þessi mikla
samstaða sent gerði útslagið með
að við höfðum okkar mál í gegn.
ÚS var stofnað árið 1967 og
Fróðaklettur varð Drangey SK I
fyrsta skip félagsins”.
Var góð eining innan bæjar-
stjórnarinnar með stofnun út-
gerðarfélagsins?
,.Já, mjög góð. Þá voru i
meirihluta Framsókn, Alþýðu-
bandalag og Alþýðuflokkurinn.
Sjálfstæðisnokkurinn einn í
minnihluta, en það breytti því
ekki að Arni Guðmundsson
fulltrúi flókksins vann af
miklum dugnaði að þessunt
málum með okkur og starfaði af
miklum heijindum eins og hans
er von og vísa".
Bý að því
alla ævi að...
..Þetta er svona eins og að gera
upp á milli föður síns og móður.
Að sjálfsögðu er ég hreykinn af
því að vera Siglfirðingur, en ég
held samt að Skagafjörðurinn sé
sterkari i minningunni. enda
árin lá á Siglufirði sem ég man.
Svo eru mínar ættir ntikið úr
austa nve rðum Skagafirðinu m".
sagði Birgir þegar talið barst að
fyrra Krókstimabilinu.
..Ég held égeigi eftirað búa að
því alla ævina að hafa alist upp á
Króknum. Fullriaðarpróf tók ég
í gantla barnaskólanum hjá Jóni
Þ. Björnssyni og fermdist siðan
hjá séra Helga Konráðssyni.
Skólinn hjá Jóni hefur líklega
verið einn besti skóli landsins á
þessum tíma. Jón var með
menntuðustu kennurum og
margt af því sem liann kenndi
situr i manni sem lífsviðhorf.
Hann var sannkallaður framúr-
stefnumaður í skólamálum á
þessum tinta.
Á eigin spýtur kom hann upp
merkilegu náttúrugripasafni við
skólann. kenndi nemendum að
lesa nótur og í síðasta bekk
skólans tók hann upp fræðslu
sem ekki þekktist iskólum þá og
var mikið feimnismál víða. Það
er það sent í dag er kölluð
kynfræðsla og stóð Jón vel að
þessu eins og öllu öðru.
sahyo
AKAI
*
© YAMAHA