Feykir - 13.12.1989, Page 10
óháð fréttablað á Norðuriandi vestra
13. desember 1989, 45. tölublað, 9. árgangur
Auglýsingar þurfa að berast eigi síðar
en um hádegi á föstudögum
Jólatilboð!
10% afsláttur Nýtt visatímabil
af öllum staðgreiddum Sparta
vörum til jóla
Fataverslun - Skóbúð
Aðalgötu 20 - Sauðárkróki
Bók um
byggðina
undir
Borginni
I síðustu viku kom út
myndarleg hók um sögu
Skagíistrandar og Höfðahrepps
og her hún heitið Byggðin
undir Borginni. Bókin er 327
síður að stærð og læsilega
skrifuð. 1 henni er fjöldi
mynda bæði gamlar og nýjar
og sumar þeirra í lit. Flestar
myndanna hafa ekki hirst
áður. Töflur og línurit gefa
myndræna innsýn í það sem
oft er sett fram sem þurr
fróðleikur.
,,Ég veit ekki um annað
kauptún af svipaðri stærð og
Höfundur og ritnefnd verksins. F.v.: Lárus Ægir
Guðmundsson, Bjarni Guðmarsson höfundur verksins,
Elínborg Jónsdóttir form. ritnefndar og lngibergur
Guðmundsson.
Skagaströnd, sem hefur
ráðið sérfræðing til þess að
rita sögu sína”, sagði Bjarni
Guðmarsson sagnfræðingur
á fundi, sem haldinn var til
þess að kynna bókina.
Það var árið 1986, sem
hreppsnefnd Höfðahrepps
ákvað að láta rita sögu
staðarins og ári síðar var
Bjarni ráðinn til verksins.
Honum til halds og trausts
var skipuð ritnefnd. I henni
sátu Elínborg Jónsdóttir
form., Líírus Ægir Guðmunds-
son og Ingibergur Guðmunds-
son.
Guðmundur Sigvaldason
sveitarstjóri telur að kostn-
aður við útgáfuna sé vart
undir 5 millj. kr. að núvirði.
Menningarsjóður Kaupfélags
Húnvetninga, Rækjuvinnsl-
an á Skagaströnd og Skag-
strendingur hf. hafa styrkt
útgáfuna.
Bifröst lokað:
Jólaböll Sauð-
krækinga í hættu
Bæjarfógetinn á Sauðárkróki
lokaði félagsheimilinu Bifröst
sl. llmmtudag, þar sem ekki
höfðu verið gerðar þær
endurhætur til brunavarna í
húsinu, sem hrunacftirlit
Skagafjarðar hafði krafist.
Sýslumaður varð samt við
óskuni stjórnar félagsheimils-
ins um undanþágu vegna
árshátíðar eldridansaklúbhsins
Hvells á laugardagskvöldið,
enda var þátttökufjöldi á
sainkomunni innan þcirra
marka er cldvarnaeft irlit
hafði áður samþykkt í húsinu
að óuppfylltum kröfum sínum.
Stjóm félagsheimilisins kom
saman um kvöldið og ræddi
stöðuna sem upp er komin í
málefnum Bifrastar. Var þar
bollalegt með hvaða hætti
eldvarnarmál félagsheimilis-
ins yrðu leyst til langframa.
Eitt atriði af þremur sem
nefnd eru í skýrslu Eldvarna-
eftirlits Skagafjarðar hefur
verið lagað. þ.e. dyrabúnað-
ur að stóla- og gosdrvkkja-
geymslu.
Hin atriðin eru útgangur
af leiksviði og klæðning
neðan á salargólf. Að mati
tveggja byggingameistara er
klæðning neðan á salargólfið
með því eldvarnarefni sem
farið er fram á, það
kostnaðarsamt, að það mundi
ríða rekstri félagsheimilisins
að fullu. A fundinum sl.
fimmtudagskvöld var rætt
um að fá matsmann frá
Brunamálastofnun ríkisins
norður til að taka húsið út og
í samráði við hann reyna að
finna ódýrari lausnir en
hingað til hafa komið til
greina.
Grjótið í smábátahöfnina: feykjur
Tilboði Króks-
verks tekið
Á hæjarstjórnarfundi í síðustu
viku voru Króksverki hf.
úthlutaðir grjótflutningar í
annan áfanga sniábátahafnar-
innar. Króksverk vann einmitt
að söfnun grjótsins í Fagranes-
skriðum í haust. Langlægsta
tilboðinu í grjótflutningana, að
upphæð 664 þúsund frá aðila á
Akranesi, var hafnað af ástæðum
þess eðlis að ástæða þótti til að
loka fundinum meðan formaður
hafnamefndar greindi frá þeim.
Samkvæmt upplýsingum blaðs-
ins frá Akranesi hcfur verktak-
anum verið hafnað með svipuð
verkefni í heimabæ sínum.
Auk fyrmefndra aðila bauð
Fjörður sf í verkið, að upphæð
1,380 milljónir. í tilboðinu fólst
einnig hliðartilboð. um 10%
afslátt á upphæðinni. sem þýddi
að tilboð Fjarðar var orðið
lægra en niðurstöðutölur til-
boðs Króksverk sögðu, 1.252
milljónir. Við skoðun tilboð-
anna reyndust allar magntölur
og einingaverð réttar, en í
tilboði Króksverks kom fram
reikningsvilla, þannig að Króks-
verk var með lægsta tilboðið
1,204 milljónir.
Króksverksmenn bíða nú
eftir að vegir frjósi svo
hentugara verði að fást við
þessa þungaflutninga. í út-
boðinu frá hafnarstjórn voru
ákvæði um að verkinu yrði
lokið fyrir árarnót. út af
virðisaukaskattinum.
Útboðsraunir
Umræður í bæjarstjórn
Sauðárkróks í síðustu viku
varðandi útboðsverk í bænum.
komu áheyrendum í „blaða-
mannastúkunni” svolítið
einkennilega fyrir sjónir. Þar
kom fyrst til tals væntanlegt
útboð vegna byggingar kaup-
leiguíbúða við Jöklatún.
Spurðist einn bæjarfulltrúa
fyrir um það hvort ekki
mætti hugsa sérlokað útboð í
þessu tilviki, á þeim forsend-
um að í útboðum undanfarið
hefði sýnt sig að byggingar-
fyrirtæki í bænum ættu þegar
í grimmharðri samkeppni
innbyrðis, sem ekki væri á
bætandi.
Seinna á fundinum voru
svo tekin fyrir tilboð í
grjótflutninga í smábátahöfn-
ina. I því máli virtist hið
óvænta hafa gerst og önnur
atriði voru á huldu. sem sagt.
hið dularfyllsta mál.
Ragnar Reykás
Fyrir það fyrsta fannst
reikningsskekkja í tilboði
Króksverks er tilboðin voru
yfirfarin, og er það næsta
ótrúlegt þegar um jafn
viðalítið verk er að ræða.
Þetta gerði það að verkum að
Króksverk var lægra en
Fjörður þrátt fyrir 10%
afslátt þeirra síðarnefndu.
Langlægsta tilboðið kom
hins vegar ekki tilgreina. Það
þótti svo gjörsamlega út úr
kortinu, var ekki nema 49%
af hraðsoðinni kostnaðar-
áætlun, sem gerð var eftir að
tilboð höfðu verið opnuð.
Síðan kórónaði þetta allt
saman, að ekki var hægt að
greina frá ástæðunum fyrir
því að lægsta tilboðinu var
hafnað, öðru vísi en loka
fundi. Þetta leit því eins út og
Ragnar Reykás er vanur að
orða það: „Það er bölvuð
skítalykt að málinu”.
Siðgæði K-listans
Jón Jósafatsson. sem
nýlega var ráðinn í starf
aðstoðarhafnarvarðar við
Sauðárkrókshöfn, vék úr
hafnarnefnd um síðustu
mánaðamót. Hörður Ingimæs-
son bæjarfulltrúi K-listans
sagði ástæðuna fyrir afsögn
Jóns, vinnureglu K-listamanna.
Hún væri á þann veg að
maður gæti ekki verið
hvortveggja, yfirmaður og
unnið hjá sjálfum sér. Enda
færi það alls ekki saman.
Þannig hafa þeir það á
hinum hvítþvegna K-lista.
Svo eru menn að tala um
siðspillingu stjómmálamanna.
Myndband
um Skagaströnd
Skagstrendingar hafa látið
gera hálfrar klukkustundar
langt myndband um Skaga-
strönd eins og þorpið er í
dag.
Það var Myndbæt hf. sem
gerði það og er megin uppi-
staða myndir, sem teknar
voru þegar fyrirtækið var að
gera kvikmynd um lífið á
landsbyggðinni. jvjó
GÆÐAFRAMKÖLLUN
gædaframkollun
BÓKABÚÐ
BRYNJARS