Jökull - 01.12.1958, Síða 19
3. mynd. Ivárasker.
The nunatak Kárasker.
Ljósm. S. Björnsson.
kemur. Gangur þessi er úr basalti, um tveggja
metra þykkur, klofinn að endilöngu í fjóra næst-
um jafnþykka hluta. En það kynlegasta við
hann eru þó hinir óvenjustóru feldspat-kristall-
ar. Sumir eru 4 cm i þvermál.
Við höfum áður fundið steina úr sams konar
bergi á Mávabyggðarönd og einn stein austari
við Jökulsá, en aldrei áður séð það í föstum
kletti.
Röndin frá Iváraskeri er alveg aðskilín frá
Mávabyggðaröncl, og hlýtur Jrví steinninn, sem
þar var, að hafa losnað vestan við skerið, en
hann getur eins fyrir það verið úr sama gangi.
Þegar við höfðum athugað Kárasker eins vel
og okkur þótti ástæða til, var nokkur tími til
dimmu, og afréðum við að skreppa í Máva-
byggðir, þó að tími væri orðinn naumur til at-
hugana.
Mávabyggðaröndin verður eftir því umfangs-
meiri sem fjær dregur fjallinu, eins og eðlilegt
er, því að grjótið, sem jökullinn ber í sér, safn-
ast ofan á jökulinn, eftir því sem hann bráðnar,
og allmikið af efni sínu mun röndin fá á leið
sinni, því að meira er af basalti í henni en
eðlilegt er, ef hún væri eingöngu komin frá
M ávabyggðum.
Þegar svona nærri fjallinu er komið, gætir
randarinnar rnjög lítið, aðeins sanddreifar og
stöku steinn, en þó sjást smámolar af hörðum
postulínsleir hér og þar, en þannig mola hef
ég hvergi séð nema í Mávabyggðarönd. Eftir um
það bil 40 mínútna göngu komum við að hin-
um sérkennilegu klettum sunnan við Fingur-
björg.
Þetta er einkennilega hár klettakambur úr
stuðluðu líparíti, og eru stuðlarnir mjög áber-
andi að norðan og austan, en að sunnan og suð-
vestan hefur meira rnolnað ofan af stuðlunum,
og eru þar sums staðar brattar skriður, en hér
og þar stinga stuðlarnir þó upp kollinum.
Neðri hluti þessa fjalls, — sem er réttnefnt
Stuðlafell, — er fyrir stuttu kominn úr jökli,
enda er þar nærri gróðurlaust, en uppi undir
háegginni er nokkur gróður, og þar var svolítil
mold rnilli steinanná. En nú var dagur að kvöldi
kominn, svo að frekari athuganir urðu að bíða
betri tíma.
S U M M A R Y :
THE NUNATAK KÁRASKER VISITED
Kárasker is a nunatak in Breidamerkurjökull,
3.5 km SE of Mávabyggdir and about 600 m
above sea level. Tliis nunatak became visible
in the late 1930’s. It was visited for the first time
by the Kvísker brothers on Sept. lst 1957 and
studied more closely by Hálfdan Björnsson and
Sigurdur Björnsson on Aug. 17th 1958. The bed-
rock is mainly basalt. In one spot a layer of
humus soil, 1 m thick and covered by moraine,
was found. On p. 19 is a list of plants found
on the nunatak. S. Björnsson.
17