Jökull


Jökull - 01.12.1980, Blaðsíða 68

Jökull - 01.12.1980, Blaðsíða 68
(Svar skráð í flýti), sem prentuð var í útgáfu Jakobs Benediktssonar í ritsafninu Biblio- theca Arnamagnæana, árið 1943. Tilefni þessarar íslandslýsingar var það, að sumarið 1647 sendi Otte Krag, skrifstofustjóri i danska Kansellíinu, íslensku biskupunum báðum, Þorláki Hólabiskupi og Brynjólfi Sveinssyni í Skálholti, spurningalista varðandi íslandslýs- ingu í kortabók sem Hollendingurinn Jodocus Hondius gaf út og sem kom út 1607. I korta- bókinni er Mercatorsgerð af hinu gagnmerka Islandskorti Guðbrands biskups Þorlákssonar, sem birt var fyrst í viðbót við kortabók Abra- hams Ortelíusar 1590, en Islandslýsing Hondiusar er tekin að mestu úr kortabók Ortelíusar. Otte Krag mun hafa beðið biskupana að segja álit sitt á sannleiksgildi þess, sem sagt var um ísland í kortabók Hondiusar. Hér fer á eftir frásögn Þorláks biskups af gjóskufallinu 1625 í þýðingu minni: ,,Mér er í minni fjall nokkurt við suður- strönd Islands, skammt frá Þykkvabæjar- klaustri, sem með ferlegum krafti og ofsa neðanjarðarelds og logandi brennisteins rifnaði þeim megin er að hafinu veit og steyptist í sjóinn. Þetta var fyrir um 30 ár- um, er ég var á skipi á leið til Danmerkur frá föðurlandi mínu. Skipherrann taldi okkur vera í 80 mílna [um 600 kmj fjarlægð frá Islandi, er skyndilega sást frá skutnum þétt ský sands og vikurs, er barst fyrir vindi. Þeim mun léttara sem þetta ský var fragt- skipinu, sem við sigldum með, þeim mun hraðar barst það, og þar sem við sigldum í hægum byr nálgaðist það æ meir, þangað til seglin urðu svört af öskufalli. Skipverjar tóku strax að fylla ker og dollur sandi, sem þeir sópuðu saman með höndunum og geymdu til að geta sýnt hann síðar. Sama aska spillti á sama tíma beitilandi í Færeyjum svo mjög, að bændur hlutu stórtjón af. Ég hefi heyrt, að með sama hætti og á sama tíma hafi fallið á eitthvað landsvæði í Norður-Noregi mikið magn af óþéttri ösku ásamt náttúrlegu koli [„vivis carbonibus11]. Af þessu hlýtur öllum að skiljast, hversu mikill er kraftur og hama- gangur eldsins neðanjarðar, sérstaklega þegar æðandi vindur æsir hann og upp- tendrar“ (Benediktssbn 1943, bls. 14—15). Frásögn Þorláks biskups er ekki hin eina, sem segir gjósku úr Kötlugosinu 1625 hafa borist til annarra landa. I Bodleian bók- hlöðunni i Oxford eru varðveitt tvö eigin- handar handrit af áðurnefndum annál Gísla biskups Oddssonar. I handritinu MS. Bor. 51, sem Halldór Hermannsson (1917, bls. 41) tel- ur eldra, segir, að sandur og aska úr gosinu, sem raunar er sagt vera úr Síðujökli, hafi bor- ist til Noregs (H. Hermannsson 1917, bls. 29). Líklegast hefur Gísli þetta úr þeirri skýrslu um Kötlugosið 1625, sem prentuð var í danskri þýðingu í Kaupmannahöfn 1627, því hann vitnar í prentara hennar, Heldvaderus, í því handriti annálsins, sem Halldór Hermannsson telur yngra, (ívitnað rit, bls. 22). I dönsku skýrslunni er þess getið, að sá sandur, sem kom upp úr eldfjallinu „floy offuer til Norrig paa atskillige steder" (Sandferdig Relation . . ., bls. 7). Danska skýrslan er runnin frá Þorsteini Magnússyni, klausturhaldara í Þykkvabæjar- klaustri, en upplýsingin um öskufallið er varla frá honum komin, því að öllum líkindum er danska skýrslan þýðing á skýrslu, sem Þor- steinn lauk við 15. sept. 1625, þ. e. a. s. daginn eftir að Kötlugosinu lauk, og sendi til Gísla Oddssonar (S. Þórarinsson, 1977). Lýsingar Þorsteins á þessu Kötlugosi eru itarlegar og gagnmerkar og eiga vart sína líka fyrir þennan tíma, ef undanskilin er hin fræga lýsing Pliníusar yngri á gosinu í Vesúvíusi 79 e. Kr.. Björn Jónsson á Skarðsá skrifar um gosið 1625 í annál sinn, sem aðallega er saminn 1638/39: „Spurðist og að utan (að) í Noregi hjá Björgvin var öskufall álíka og hér var, og einninn þeir, sem sigldu héðan fyrir norðan, sögðu að öskufall hefði komið á sín skip í háf- inu, svo seglin urðu svört sem bik, og hefur þessi aska héðan komið úr þeim eldgangi og undrum, er komu úr Mýrdalsjökli 2. dag Septembris“ (Ann. 1400—1800 I., bls. 223). Maður er nefndur Ole Worm, mikilhæfur danskur lærdómsmaður og fjölfræðingur, f. 66 JÖKULL 30. ÁR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Jökull

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.