Jökull


Jökull - 01.12.1980, Page 84

Jökull - 01.12.1980, Page 84
Pálsson gengu á Geitlandsjökul 10. ágúst 1753 og líkur eru fyrir því, að Björn Gunnlaugsson hafi gengið á hann í júlibyrjun 1837 (Lfrs. ísl. III, bls. 26 og 311). Hæsti hnúkur Öræfajökuls utan Hvanna- dalshnúks er á austurbarmi öskjunnar, 2044 m hár og nefnist nú Sveinstindar á kortum. A hann gengu þrír Kvískerjabræður 9. ágúst 1936 (sbr. Jökull 9, bls. 51) og er ekki vitað til að aðrir hafi komið þar áður, þótt ekki sé alveg útilokað, að Sveinn Pálsson hafi komist alla leið þangað. Bárðarbunga (um 2000 m) Hæsta bunga hins eiginlega Vatnajökuls er Bárðarbunga. Samkvæmt mælingum Stein- þórs Sigurðssonar, er fór á bunguna 13. ágúst 1946, er hæð hennar 1988 m, en á kortum er nú dregin 2000 m hæðarlína efst í bungunni, sem raunar er flatneskja og askja undir. Fyrstur á þessa bungu var leiðangur þriggja manna. Þeir voru: Andrea de Pollitzer-Pol- lenghi frá Trieste, Rudolf Leutelt jöklafræð- ingur frá Innsbruck og ungur þýskur fjall- göngumaður, Karl Schmid frá Stuttgart. Þeir gengu á bunguna 29. maí 1935. En fyrstur íslendinga mun Guðmundur Einarsson frá Miðdal hafa komist á Bárðarbungu sumarið 1936. Kverkfjöll eystri (1920 m) Hinn 10. ágúst 1910 gekk þýskur jarðfræð- ingur, Max Trautz, fyrstur manna á Kverk- fjöll eystri ásamt fylgdarmanni sínum sunn- lenskum, Tómasi Snorrasyni. Kverkfjöll eystri eru þriðja hæsta fjall á Islandi, en ekki fóru þeir Trautz á hæsta tind, en gengu á tind, sem er norður af kverkinni innst og er hæð hans 1812 m skv. herforingjaráðskortinu. Steinþór Sigurðsson og Pálmi Hannesson gengu á Kverkfjöll eystri 6. ágúst 1933 og af dagbók Pálma (Frá óbyggðum, bls. 146—147) að dæma gengu þeir einnig á 1812-tindinn, en fyrstur á hátind Kverkfjalla mun vera Guð- mundur frá Miðdal, er þangað komst 20. júlí 1933. Kverkfjöll eystri eru þriðja hæsta fjall ísiands og það næst hæsta, ef miðað er við fast berg. Snœfell (1833 m) Fyrstur manna á Snæfell, hæsta fjall lands- ins utan Vatnajökuls með Öræfajökli — og trú sumra Austfirðinga í æsku minni, að það væri hæsta fjall landsins — var Guðmundur nokk- ur Sveinsson frá Bessastaðagerði í Fljótsdal, er vann þetta afrek 11. ágúst 1872. Hofsjökull (1765 m) Hofsjökull gengur næst Snæfelli að hæð. Sakir legu sinnar hefur þetta fagra jökulhvel orðið nokkuð afskipt um jöklaferðir fyrr og síðar. Mér er ekki kunnugt um ferð yfir jökul- inn fyrr en 1944. Þá gengu yfir hann vestan- verðan á ferð úr Eyjafirði suður yfir hálendið sexmenningarnir Árni Haraldsson, Björn Hjaltested, Gunnar Guðjónsson, Kjartan Hjaltested, Magnús Andrésson og Stefán G. Björnsson. Þeir fyrstu, sem að líkindum kom- ust á hæstu bungu hans svo mér sé kunnugt, voru Magnús Hallgrímsson' verkfræðingur og enskur læknir, Kenneth H. Pridie, sem gengu á hábunguna frá vestri í ágúst 1951 og voru á hábungunni, eða því sem næst, 18. ágúst. Magnús hefur gengið á hábunguna tvisvar síðan, 27. mars 1956 ásamt fimm læknum og læknanemum og 10. apríl 20 árum síðar gisti hann á hábungunni á leið norður yfir hálendið ásamt Leifi Jónssyni lækni, er var með í förinni 1956, og fjórum öðrum. Grímsfjall (1719 m) Fyrstir á Grímsfjall svo vitað sé voru tveir sænskir jarðfræðingar, Erik Ygberg og Hakon Wadell, er komust þangað síðasta dag ágúst- mánaðar 1919 og endurfundu þar með Grímsvötn. Þeir teymdu hross er báru farang- ur þeirra og var það hrossunum að þakka, að þeir lentu ekki fram af hengjum og hömrum Grímsfjalls er þeir komu þangað í þoku, en hestarnir neituðu með öllu að láta toga sig fram af brún hengiflugsins. Fyrstir íslendinga á Grímsfjall voru þeir bræður Guðmundur frá Miðdal og Sveinn, Einarssynir, og Jóhannes Áskelsson jarðfræðingur. Þessir þremenningar komu þangað ásamt þýskri konu, Lydiu 82 JÖKULL 30. ÁR

x

Jökull

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.