Jökull - 01.12.1980, Page 86
Sncefellsjökull (1446 m)
Þessi fagurskapaða jökulkrýnda eldkeila,
sem vonandi er slokknuð, var talin hæsta fjall
landsins er gengið var á hana í fyrsta sinn, en
það gerðu þeir félagarnir Eggert Ólafsson og
Bjarni Pálsson 1. júlí 1753. Þeir lögðu á jökul-
inn frá Ingjaldshóli og voru 11 klst. í ferðinni.
Sögn var þá undir Jökli, að tveir Englendingar
hefðu fyrir löngu ætlað upp á jökulinn og
hefðu næstum komist upp. Annar varð blind-
ur af snjóbirtu, villtist og hvarf, hinn varð
hálfblindur, en bjargaði sér, því að á leiðinni
upp hafði hann haft með sér kindablóð, sem
hann lét drjúpa á snjóinn svo að hann gat
ratað niður aftur (Ferðabók Þorv. Thorodd-
sens, III, 2. útgáfa, bls. 58).
Fjallaklifur á Islandi
Fjallaklifur var ekki iðkað á Islandi að heitið
gæti (ef klifur í fuglabjörg er frátalið) fyrr en
Guðmundur Einarsson frá Miðdal hóf
kennslu í þeirri íþrótt og stofnaði síðan sam-
tökin Fjallamenn 1940. Enn er þessi iþrótt lítið
stunduð, m. a. af ástæðum, sem áður var að
vikið. Hér skal getið nokkurra tinda, er klifnir
hafa verið. Er þess fyrst að geta, að 5. ágúst
1956 klifu þrír fullhugar Hraundranga í Öxnadal
(1075 m). Létti þeim, er þetta ritar, mjög við
þá fregn, að þessu afreki væri lokið, því hann
átti uppástunguna að því, en hafði talsvert
samviskubit af eftir 'á. Þeir er tindinn klifu
voru amerískur fjallaklifrari, Nicholas Clinch,
og jöklafararnir Finnur Eyjólfsson og Sigurður
S. Waage. Klifrið upp efstu 80 metrana tók sex
klukkustundir (Jökull 6, bls. 32).
Sumarið 1975 reyndu sex piltar úr Hjálp-
arsveit skáta í Vestmannaeyjum (hér eftir
skammstafað HSV) við bergstandinn Þumal
(1279 m) í Skaftafellsfjöllum og komust þrír
alla leið, þeir Daði Garðarsson, Kjartan
Eggertsson og Snorri Hafsteinsson.
Þrír ungir fjallagarpar, Arnór Guðbjarts-
son, Helgi Benediktsson og Pétur Asbjörnsson,
klifu Fingurbjörg í Mávabyggðum (1137 m) í
september 1978. Telur Helgi Benediktsson
hana erfiðari en Þumal, sem hann kleif, ásamt
Arngrími Sighvatssyni og Jóni Baldurssyni, á
páskum árið áður.
Skarðatindur (1385 m) í þjóðgarðinum
Skaftafelli var klifinn af tveimur breskum
stúdentum, J. A. Exley og M. Meller, 13. ágúst
1954 og að sögn Ragnars Stefánssonar í
Skaftafelli var það fyrsta ferðin á tindinn.
Þess skal getið hér að lokum, að hærri Lón-
drangann á Snæfellsnesi, sem er 75 m hár, kleif
Vestmannaeyingur, Ásgrímur að nafni, þriðja
dag hvítasunnu 1735 (Þorv. Thoroddsen,
Ferðabók III, 2. útg. bls. 73).
84 JÖKULL 30. ÁR
1. mynd. Mont Blanc séð
úr vestri. Ljósm. Sig. Þór-
arinsson 11. júní 1966.