Jökull - 01.12.1980, Page 93
Varða Hornfirðinganna
I Jökli 1977 er fróðleg og skemmtileg grein
um ferð -þriggja Hornfirðinga norður yfir
Vatnajökul sumarið 1926, sem jafnframt var
fyrsta ferð íslensks leiðangurs yfir jökulinn á
síðari tímum. Þeir geta þess, er þeir fóru úr
tjaldstað suðvestan Kverkfjalla, að þar hafi
þeir komið að hrauni upp úr jöklinum og
hlaðið vörðu á mel einum og jafnframt, að sú
varða sé ófundin enn. Unnar Benediktsson,
einn leiðangursmanna, fullyrðir þó að hann
hafi séð vorðu þessa úr lofti er hann flaug yfir
þetta svæði árið 1945.
Seinnipart júlímánaðar árið 1967 kom ég á
þessar slóðir í för minni suður yfir Vatnajökul,
en grein um þá ferð birtist í 17. árgangi Jökuls.
Á að giska 5 km suðvestur af Kverkfjöllum
komum við félagarnir að all-stæðilegri vörðu
(sjá mynd) á melhól, en frá henni var talsverð
jökulbrekka til vesturs niður að Dyngjujökli.
Eftir lestur greinar Hornfirðinganna er ég ekki
í nokkrum vafa um að hér er fundin varða
þeirra. Ég minntist á vörðu þessa við Jón Ey-
þórsson, en hann hafði komið þarna í það
minnsta einu sinni, en um aldur vörðunnar
vissi hann ekki, né hverjir hefðu hlaðið hana.
Eftir lýsingu Hornfirðinganna er augljóst að
það auða svæði, er þeir reistu vörðuna á, hefur
verið allmikið stærra en nú er. Varðan er
hlaðin á klöpp og er það vafalítið ástæða þess
hve vel hún hefur varðveist.
Pétur Þorleifsson.
Varða Hornfirðinganna séð úr austri.
JÖKULL 30. ÁR 91