Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.2014, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.2014, Síða 4
4 Fréttir Helgarblað 17.–20. október 2014 Frjálsir en undir rafrænu eftirliti n Þeim föngum sem haga sér vel býðst að taka út hluta refsingarinnar með ökklabandi Þ að er óalgeng sjón að sjá menn ganga með raf­ ræn ökklabönd og flest­ ir hafa eflaust aðeins séð slíkt í sjónvarpinu. Nú býðst föngum hér á landi að taka út síðasta hluta refsingarinnar með slíkt band um ökklann. Úr­ ræðið sem föngum býðst er kallað „afplánun undir rafrænu eftirliti“ en Fangelsis málastofnun tók upp á þessu árið 2012. Hefur þessi að­ ferð gefið góða raun að sögn Páls Winkel, forstjóra Fangelsismála­ stofnunar. „Alþingi samþykkti lög þar sem fallist var á tillögu Fangelsismála­ stofnunar þess efnis að hluta lengri fangelsisrefsinga mætti afplána undir rafrænu eftirliti. Um er að ræða mjög eðlilega framþróun í fullnustukerfinu sem eykur líkur á að fangar sem afplána langa fang­ elsisrefsingu geti staðið sig vel í líf­ inu eftir að afplánun lýkur,“ segir Páll en með þessu hefur stofnun­ inni tekist að setja upp nokkurs konar þrepakerfi í afplánun fang­ elsisdóms. Samkvæmt lögunum getur einstaklingur sem hefur verið dæmdur í 12 mánaða, eða lengra, óskilorðsbundið fangelsi, afplánað hluta dómsins undir rafrænu eftir­ liti. Sá sem fær 12 mánaða óskil­ orðsbundinn dóm gæti þannig fengið að taka út 30 daga af dómi sínum með ökklaband. Afplánun undir rafrænu eftirliti lengist um 2,5 daga fyrir hvern dæmdan mánuð og því gætu þeir sem hlotið hafa þunga fangelsisdóma afplán­ að allt að 240 daga með ökklaband. Alltaf heima í kvöldmat En slíku frelsi fylgja skilyrði sem Fangelsismálastofnun fylgir fast eftir. Þannig þarf fangi til dæmis að hafa fastan dvalarstað sem sam­ þykktur hefur verið af Fangels­ ismálastofnun. Þá þarf hann að stunda vinnu, nám, vera í starfs­ þjálfun, í meðferð eða sinna öðrum verkefnum sem Fangelsismála­ stofnun hefur samþykkt og er liður í aðlögun hans að samfélaginu á ný. Þá má viðkomandi ekki eiga mál til meðferðar hjá lögreglu, ákæruvaldi eða dómstólum þar sem hann er kærður fyrir refsiverðan verknað. En er hægt að svindla á þessu á einhvern hátt? Páll Winkel fullyrðir að það sé ekki hægt og engin dæmi eru um að menn hafi reynt að taka bandið af: „Það hefur enginn reynt að taka bandið af en komi til þess er litið á það sem strok úr refsivist og viðkomandi sendur aftur til afplán­ unar í fangelsi.“ Þó eru dæmi um að menn hafi brotið reglurnar sem fylgja því að taka út dóm með rafrænu eftirliti og snúa þau brot aðallega að „úti­ vistartíma“ viðkomandi en sömu reglur eru á Vernd, þar sem menn eru nokkuð frjálsir, og í rafræna eftirlitinu. Reglurnar eru þær að fangi sé undantekningarlaust á dvalarstað sínum frá klukkan 18 til 19 og frá klukkan 23 til 7 mánu­ daga til föstudaga en á laugardög­ um og sunnudögum styttist hann um tvo klukkutíma eða frá 21 til 7. Þá má hann ekki neyta áfengis eða ávana­ og fíkniefna en heimilt er að krefjast þess að fangi undirgangist rannsókn á öndunarsýni eða blóð­ og þvagrannsókn hvenær sem er. Synjun fanga á slíkri rannsókn jafn­ gildir rofi á skilyrðum rafræns eftir­ lits. Spara fé og stytta biðlista Frá því að Fangelsismálastofnun fór að nota ökklabönd sem hluta af afplánun hafa aðeins fjórir fangar brotið reglurnar. Einn árið 2012, tveir árið 2013 og í ár hefur einn gerst brotlegur við þær reglur og skilyrði sem sett eru. Páll segir brot­ in tengjast útivistarreglunum. „Já, það hefur gerst einstaka sinnum. Fangar hafa þá ekki verið komnir heim á réttum tíma. Þá fara menn einfaldlega aftur í lokað fangelsi.“ Með rafræna eftirlitinu nær Fangelsisstofnun að spara ríkinu töluvert fé í vistun fanga í lokuðu fangelsi auk þess sem úrræðið styttir biðlista sem er orðinn ansi langur. Samkvæmt upplýsingum frá stofnuninni er kostnaðurinn við rafrænt eftirlit um það bil 10 pró­ sent af því sem það myndi kosta ríkið að vista fanga í lokuðu fang­ elsi. Í dag eru á bilinu 12 til 15 fangar sem afplána fangelsisrefsingu und­ ir rafrænu eftirliti hverju sinni og hafa þeir þá farið í gegnum þetta nýja þrepakerfi sem Fangelsis­ málastofnun hefur náð að búa til og miðar að því að breyta fangels­ isvistinni í betrunarvist. n Atli Már Gylfason atli@dv.is Ökklabandið Með nýrri tækni hefur verið hægt að minnka ökklaböndin sem nú líta svona út, að minnsta kosti á Íslandi. Mynd SiGtryGGur Ari Þetta færðu heim! Búnaðurinn sem þarf í rafræna eftirlitið lítur svona út. Ökkla- bandið ásamt litlu tæki sem minnir helst á gamalt myndbandstæki sem fanginn setur í samband heima hjá sér. Það sendir síðan upplýsingar til Fangelsismálastofnunar sem fylgist grannt með málum. Skrítið en það venst Blaðamaður DV prófaði ökklabandið Blaðamaður DV fékk að prófa ökkla- bandið í 48 klukkustundir en fékk þó ekki heimastöðina með sér eins og aðrir fangar þurfa að setja upp á dvalarstað sínum. Bandið var því ótengt. Ökklabandið er alls ekki þungt og auðvelt er að klæða sig í sokka þótt það líti út fyrir að vera erfitt á myndum. En þrátt fyrir að vera lítið og bundið við ökkla þá minnir það á sig yfir daginn, hvort sem verið sé að klæða sig í skó, buxur eða úti í göngutúrnum. Ökklabandið þolir nánast allt en sam- kvæmt upplýsingum DV hefur kafari til að mynda prófað að fara með bandið á tölu- vert dýpi án þess að það hafi eyðilagst. Það er því í lagi að fara með það í sturtu, bað eða ljósatíma ef út í það er farið. Hvað svefninn varðar þá er skrítið að sofa með ökklabandið en það venst. Fyrstu nóttina taldi blaðamaður DV að hann svæfi ofan á sjónvarpsfjarstýringu en áttaði sig síðan fljótt á því að þarna var um ökklabandið að ræða. Ekki er hægt að segja að það sé óþægilegt að vera með ökklabandið en það hlýtur óneitanlega að vera stöðug áminning fyrir fanga um að halda sig réttum megin við lögin. Hvernig virkar ökklabandið? Fylgist ekki með ferðum Búnaðurinn virkar þannig að einstak- lingurinn ber á sér ökklaband sem ekki er hægt að losa af sér nema með því að klippa það af. Bandið sendir frá sér merki sem svokölluð heimastöð nemur merki frá. Ef heimastöðin nemur merkið er viðkomandi heima hjá sér og eftirlitskerfið fær upplýsingar um það. Kerfið getur ekki staðsett bandið betur, dómþolinn er því ekki feril- vaktaður að öðru leyti eins og við höfum mögulega séð í bíómyndum. Ef klippt er á bandið berast boð í eftirlitskerfið hjá Fangelsismálastofnun og eins ef heimastöðin er færð eða átt við hana. „Ég tel niður dagana í ökklabandið“ Fangi sem DV ræddi við hlakkar til að sofa heima hjá sér „Fyrir mér er eins og ég sé laus því það er ekkert sem maður saknar meira í fangelsi en að sofa við hliðina á konunni og vakna við litla skæruliðann sinn,“ segir fangi sem DV ræddi við en hann mun eftir rúma tvo mánuði fá ökklaband og fær þá að sofa heima hjá sér í staðinn fyrir að sofa á Vernd. Viðmælandi DV fékk tveggja og hálfs árs dóm fyrir alvarleg brot sem hann framdi í mikilli fíkniefnaneyslu en frá því hann hóf afplánun hefur hann sýnt af sér góða hegðun og látið áfengi og vímuefni í friði og þá stundar hann nám af kappi. Hann er sáttur við umbunina sem hann fær og segist telja niður dagana í ökklabandið. „Þetta er náttúrlega stórt stökk frá Vernd þar sem það versta við fangelsi er að vera fjarri fjölskyldunni og á ökkla- bandinu ertu eiginlega bara frjáls nema með útivistartíma,“ segir fanginn og bætir við að hann sé ekki hræddur um að brjóta reglurnar. „Nei, nei, þetta er sami útivistartími og á Vernd og ég verð búinn að venjast honum vel. Þetta er líka bara einfalt. Mæta heim í mat og vera kominn heim fyrir 23 á kvöldin.“ Páll Winkel Forstjóri Fangelsismálastofn- unar segir ökklaböndin eðlilega framþróun í fullnustukerfinu sem eykur líkur á að fangar sem afplána langa fangelsisrefsingu geti staðið sig vel í lífinu eftir að afplánun lýkur. Mynd HeiðA HelGAdóttir ekki hægt að svindla Enginn hefur reynt að svindla á ökklabandinu með því að reyna að taka það af sér en nokkrir hafa brotið reglurnar með því að hafa ekki verið heima hjá sér á tilteknum tímum sólar- hringsins. Blekhylki.is Við seljum ódýra tónera og blekhylki Fjarðargötu 11 og Smáralind • S: 517-0150

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.