Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.2014, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.2014, Page 14
Helgarblað 17.–20. október 201414 Fréttir Dularfull einkavæðing BúnaðarBankans n Týnd gögn um einkavæðingu bankans n Fékk S-hópurinn afslátt? n Dularfull þátttaka þýsks banka n Engin áform um rannsókn á einkavæðingunni í bili H eildarskýrsla, sem unnin var af PricewaterhouseCoopers endurskoðunarfyrirtækinu (síðar PwC) síðustu dag- ana áður en Búnaðarbank- inn var seldur S-hópnum í ársbyrj- un 2003, finnst hvergi þrátt fyrir ítarlega eftirgrennslan og leit. For- sætisráðuneytið, sem vistaði fram- kvæmdanefnd um einkavæðingu á þessum tíma, hefur staðfest bréflega að skýrslan finnist ekki í ráðuneytinu. Sama gildir um Arion banka, arftaka KB banka og áður Búnaðarbank- ans, en hann staðfestir bréflega að umrædda skýrslu sé ekki heldur að finna í fórum bankans. Tölvupóstur og tímaskýrslur PwC vegna vinnu við umrædda heildarskýrslu staðfesta engu að síður að skýrslan var unnin fyrir Búnaðarbankann 6. til 10. janú- ar árið 2003, aðeins um viku áður en gengið var frá kaupum S-hópsins á bankanum 16. janúar sama ár. Sannanir fyrir tilvist skýrslunnar DV hefur umræddan tölvupóst og tímaskýrslur undir höndum og get- ur því sýnt fram á að heildarskýrslan var unnin. Efni umræddrar skýrslu kann að veita svör við spurningum sem meðal annars er spurt í þings- ályktunartillögu sem Alþingi sam- þykkti 7. nóvember árið 2012 um rannsókn á einkavæðingu bank- anna. Þrátt fyrir að meirihluti Al- þingis sé fyrir því að óbreyttu að hefja slíka rannsókn hefur ekkert orðið af þeirri rannsókn enn. Eins sog DV greindi frá á dögunum er rannsóknarhlutverk á vegum Al- þingis til athugunar innan þingsins sem og kostnaður við slíkar rann- sóknir. Aðeins einn þingmaður nú- verandi meirihluta á Alþingi, Pétur Blöndal, Sjálfstæðisflokki, var fylgj- andi rannsókn á einkavæðingu bankanna þegar þingsályktunar- tillagan var samþykkt árið 2012. Þingmenn núverandi stjórnarflokka sátu að öðru leyti hjá við atkvæða- greiðsluna. Meðal þess sem rannsóknar- nefndin átti að fjalla um var gerð og innihald samninga við kaupend- ur bankanna, mat á eignum þeirra og að hve miklu leyti það sam- ræmdist söluverði þeirra. Þá átti slík rannsóknarnefnd að fjalla um efndir samninga og undanþágur frá ákvæðum þeirra, til dæmis er varða afslætti frá kaupverði. Æði margir kunnáttumenn um efnahagslíf telja að ein meginrót efnahagshrunsins haustið 2008 sé einkavæðing ríkis- bankanna nokkrum árum áður. Nú síðast ritar Þorkell Sigurlaugsson, framkvæmdastjóri hjá Háskólanum í Reykjavík, ritdóm um bók Inga Freys Vilhjálmssonar, Hamskiptin, og segir meðal annars: „… það kom mér alltaf undarlega fyrir sjónir hvernig staðið var að einkavæðingu bankanna árið 2003 og ekki síður sú uppstokkun á eignarhaldi fyrirtækja sem bankarnir tóku að sér í kjölfarið.“ Athyglisvert er að svonefnd áreið- anleikaskýrsla um Búnaðarbankann var kynnt hlutaðeigendum á Þorláks messu 2002. Ef rétt er skilið var þar um að ræða drög að þeirri heildarskýrslu sem í vændum var og PricewaterhouseCoopers hét að klára fyrir 10. janúar 2003. Þegar ráð- herranefnd um einkavæðingu náði samkomulagi við S-hópinn svo- nefnda 15. nóvember 2002 um kaup hans á nærri 46 prósenta hlut ríkisins í Búnaðarbankanum var samkomu- lagið gert með fyrirvara um áreiðan- leikakönnun beggja aðila. Einkennileg aðild erlends banka Mikilsvert er fyrir rannsókn á einkavæðingu Búnaðarbankans að heildarskýrslan komi í leitirnar, enda má líta svo á að hún sé hin endanlega áreiðanleikakönnun og meira til. Hún gæti varpað ljósi á efndir samninga og hvort veittur hafi verið afsláttur frá endanlegu kaupverði og þá hvers vegna, rétt eins og kveðið er á um í framan- greindri samþykkt Alþingis. Efnisleg rök eru fyrir því að þetta verði kann- að og leitt fram í dagsljósið varð- andi söluna á Búnaðarbankanum, því fyrirheit um 700 milljóna króna afslátt voru gefin þegar Samson (Björgólfsfeðgar og fleiri) keyptu hlut ríkisins í Landsbankanum. Í skýrslu framkvæmdanefndar um einkavæðingu 1999–2003 segir orðrétt: „Í kaupsamningnum er ákvæði um takmarkaða verð- aðlögun, allt að 700 m.kr., ef þróun efnahagsliða verður önnur en gengið var út frá í áætlunum sem lágu til grundvallar við undirritun samkomulags aðila frá 19. október. Ekki verður ljóst fyrr en á síðari hluta árs 2003 hvort þessi atriði hafa áhrif á endanlegt kaupverð.“ Í sömu skýrslu fram- kvæmdanefndar um einkavæðingu er hvergi minnst á sambærilegan og mögulegan afslátt fyrir kaupend- ur Búnaðarbankans, S-hópinn svo- nefnda. Í hinni glötuðu heildarskýrslu (áreiðanleikaskýrslu) má einnig gera ráð fyrir umfjöllun um erlend- an banka sem við sögu kom þegar S-hópurinn keypti um 46 prósenta hlut ríkisins í Búnaðarbankanum 16. janúar 2003. Sá banki hét Hauck & Aufhäuser. Heilt mannár! Í tölvupósti Vignis R. Gíslasonar hjá PricewaterhouseCoopers til Árna Tómassonar, bankastjóra Búnaðar- bankans, 30. desember 2002 er gerð grein fyrir vinnu við umrædda áreið- anleikaskýrslu og týndu heildar- skýrslunnar. Samanlagt fóru um 1.800 klukkustundir í verkið af hálfu PricewaterhouseCoopers og Land- well lögfræðistofunnar eða heilt mannár. Þar af voru um 230 klukku- stundir unnar frá 12. desember það ár til áramótanna og gerði Vignir ráð fyrir 70 klukkustundum að auki fram til 10. janúar árið 2003 þegar hann og samstarfsfólk hans áætlaði að ljúka heildarskýrslunni. Samkvæmt tímaskýrslum PricewaterhouseCoopers vann fjöldi endurskoðenda að lokafrá- gangi heildarskýrslunnar og hélt fundi með Búnaðarbankamönnum og S-hópnum frá 6. janúar til 17. jan- úar 2003. Verkið var unnið meðal annars af endurskoðendunum Jóni Arnari Baldurs, Ómari H. Björnssyni, Ómari Davíðssyni, Regínu Fanný Guðmundsdóttur og Valdimar Guðnasyni. Vignir R. Gíslason, endurskoðandi og einn af eigendum PricewaterhouseCoopers, vann sjálf- ur til 17. janúar 2003 við lokafrágang, yfirlestur og fundahöld. Hann ræddi meðal annars við fulltrúa S-hópsins og Búnaðarbankans á þessum tíma. Þórir Ólafsson endurskoðandi gerði það einnig og sat sömuleiðis fundi með mönnum úr S- hópnum og fulltrúum Búnaðar bankans. Í sam- tali við DV kveðst Þórir ekki muna vel eftir þessu í smáatriðum enda langt um liðið. Heildarskýrslan haf- ið þó ekki verið svokölluð áreið- anleikaskýrsla einvörðungu held- ur hafi í henni verið farið yfir dulda áhættuþætti, lagt mat á eitt og ann- að og hvort efni væru til þess að gera fyrir vara af einhverjum toga. Hann minnist þess ekki að í henni hafi ver- ið neinn fyrirvari um endalegt kaup- verð bankans. Hvað sem þessu líður virðist þessi skýrsla, sem svo mikil vinna var lögð í, vera glötuð. Meðan hún kemur ekki í leitirnar verður ekkert sagt um inni- hald hennar nema hugsanlega með vitnaleiðslum yfir þeim sem unnu að gerð hennar eða þeim sem létu gera umrædda skýrslu. Slíka heimild til skýrslutöku af hlutaðeigandi hefði rannsóknarnefnd á vegum Alþingis vegna einkavæðingar bankanna augljóslega haft. Í svarbréfi forsætisráðuneytisins 4. júní 2014 við fyrirspurn um heildarskýrsluna sem Pricewater- houseCoopers vann segir orðrétt: „Ráðuneytið hefur ekki skýringu á því hvers vegna umrædd loka- skýrsla PricewaterhouseCoopers, hafi hún verið unnin og afhent framkvæmdanefndinni, finnst ekki í ráðuneytinu. Gögn fram- kvæmdanefndarinnar frá þessum tíma bárust ráðuneytinu löngu síð- ar og hafa þau öll verið gerð að- gengileg almenningi. Engin sérstök athugun hefur hins vegar farið fram á því hvort eitthvað vanti í gögnin og þá hvers vegna.“ Trúnaðarmál og fleiri týnd gögn Þann 6. janúar 2002 fékk fram- kvæmdanefnd um einkavæð- ingu bréf frá Guðmundi Ólasyni og Benedikt Árnasyni (GÓ og BÁ). Þar er fjallað um samninga um sölu á hlutabréfum í Búnaðarbankanum og segir þar að framundan séu fund- ir með fulltrúum S-hópsins vegna sölunnar. Aðeins er um eitt blað (A4) að ræða. Neðst á blaðinu eru gerð- ar athugasemdir um að aukin fram- lög þurfi á afskriftareikning sem og vegna Lýsingar hf. sem var í eigu bankans, alls nærri 700 milljónir króna að hámarki. Lokasetningin á blaðinu er svo- felld: „Atriði sem enn standa út af í samningnum.“. Samkvæmt orðanna hljóðan er rökrétt að búast við fram- haldi þar sem umrædd atriði eru talin upp. Þrátt fyrir eftirgrennslan í gögnum framkvæmdanefndar um einkavæðingu frá þessum tíma finnst framhald þessa bréfs hvergi. Vel er hugsanlegt að fjallað hafi ver- ið um þessi „atriði sem standa út af í samningnum“ í heildarskýrslunni sem einnig virðist glötuð eins og áður segir. Hér verður ekkert sagt um það hvort umrædd gögn hafi verið fjarlægð vísvitandi, en einkennilegt er að finna aðeins hluta af bréfi merkt trúnaðar- mál í gögnum framkvæmdanefndar um einkavæðingu. n Jóhann Hauksson johannh@dv.is Félagar í baráttunni Halldór Ásgrímsson f.v. forsætisráðherra átti náin tengsl við S-hópinn. Finnur Ingólfsson var hluti af hópnum og virkur gerandi ásamt Ólafi Ólafssyni, Þórólfi Gíslasyni og fleirum. „Engin sérstök athugun hefur hins vegar farið fram á því hvort eitthvað vanti í gögnin og þá hvers vegna. S - hópurinn „Ljóst er að eftir atburði sl. tveggja ára, eru ekki eins afgerandi tengsl á milli stóru félaganna sem myndað hafa kjarnann í S-hópnum, þ.e. VÍS og Kers. Fyrir tveimur árum var hvort félag um sig meðal stærstu hluthafa í hinu. Nú á hvorugt telj- andi hlut í hinu þrátt fyrir að þau eigi enn eignarhluti í mörgum sömu félaganna. Segja má að valdablokk S-hópsins hafi skipst í tvær fylkingar, annars vegar undir forystu Ólafs Ólafssonar og hins vegar undir forystu Þórólfs Gíslasonar. Sú fyrri stýrir m.a. Keri, Samskipum og SÍF. Sú síðari VÍS, Samvinnutryggingum, Andvöku og Samvinnulífeyrissjóðnum. Sameiginlegir hagsmunir þeirra liggja þó víða og ekki hvað síst í eignarhaldi á KB banka.“ (Mbl. 5. febrúar 2004) Ársverk Vignir R. Gíslason, endurskoð- andi og einn af eigendum Pricewater- houseCoopers, var meðal þeirra sem unnu heildarskýrsluna um sölu Búnaðarbankans. Vinnan á bak við hana jafngilti heilu ársverki. Stórkaupandi Ólafur Ólafsson kenndur við Samskip hafði mikilla hagsmuna að gæta innan S-hópsins við kaupin á Búnaðarbankanum. S-hópurinn Þórólfur Gíslason kaupfé- lagsstjóri var einn helsti forystumaður S-hópsins við kaupin á Búnaðarbankanum sem síðar var tekinn yfir af KB banka.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.