Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.2014, Blaðsíða 46
Helgarblað 17.–20. október 201446 Lífsstíll
Þekktu þín eigin brjóst
Á
rlega greinast að meðal
tali 209 konur með
brjóstakrabbamein hér á
landi og tveir karlar, sam
kvæmt upplýsingum úr
krabbameinsskrá Krabbameinsfé
lagsins. Er það algengasta tegund
krabbameins sem konur fá eða tæp
lega 30 prósent af öllum greindum
krabbameinum hjá konum. Eru
þetta tæplega fjórar konur á viku og
margt bendir til þess að þessar töl
ur komi til með að hækka á næstu
árum frekar en hitt.
Meðalaldur kvenna við greiningu
er 61 ár og um 90 prósent þeirra eru
á lífi fimm árum frá fyrstu greiningu.
Á þessum árum hafa þó margar
greinst aftur, en ekki er skráð töl
fræði yfir hve stór hluti það er.
Í árslok 2012 voru 2.684 konur
greindar með brjóstakrabbamein
skráðar á lífi hér á landi og 23 karl
menn. 39 konur látast á meðaltali á
ári hverju úr brjóstakrabbameini.
70 prósent kvenna mæta í
skoðun
Bara það eitt að vera kona setur
þig í áhættuhóp hvað varðar
brjóstakrabbamein. Áhættu
þættirnir eru þó margir og mjög
mismundi frá einni konu til annarr
ar. Gott er fyrir hverja og eina konu
að þekkja sína áhættuþætti, þekkja
líkama sinn og vera vakandi fyrir
breytingum á brjóstum.
Allar konur á aldrinum 40
til 69 eru hvattar til að mæta á
tveggja ára fresti í skipulega leit að
brjóstakrabbameini hjá Leitarstöð
inni. Eins og staðan er núna mæta
tæplega 70 prósent kvenna á þess
um aldri reglulega í skoðun.
Þrátt fyrir að meðalaldur kvenna
við greiningu sé í kringum sextugt
er mikilvægt fyrir yngri konur að
vera vakandi gagnvart þeim vá
gesti sem brjóstakrabbamein er. Til
dæmis með því að þreifa brjóst sín
reglulega.
Líkurnar aukast með aldrinum
Aldur er einn stærsti áhættuþáttur
brjóstakrabbameins. Dæmi frá
Bandaríkjunum sýna að eitt af hverj
um átta tilfellum brjóstakrabba
meins greinist hjá konum yngri en
45 ára en tvö af hverjum þremur
greinast hjá konum 55 ára og eldri.
Þó er unnt að gera ýmsar breytingar
á lifðnaðarháttum sem halda mögu
legum líkum í lágmarki – að vera í
hæfilegri þyngd, hreyfa sig reglu
lega, halda áfengisneyslu í lágmarki,
neyta næringarríkrar fæðu og reykja
ekki.
Allt að 80 prósenta líkur með
stökkbreytingu
Líkurnar á að fá brjóstakrabba
mein geta orðið allt að fimmfalt
meiri ef nánir ættingar hafa greinst
með slíkt krabbamein. Flest tilfelli
ættgengs brjóstakrabbameins má
rekja til stökkbreytingar í svoköll
uðum BRCA1 og BRCA2genum.
Allir eru með slík gen og er hlutverk
þeirra undir eðlilegum kringum
stæðum að gera við frumuskemmd
ir og sjá til þess að brjóstvefur vaxi
eðilega. Þegar genin stökkbreytast
hætta þau að starfa eðlilega og erfast
þannig frá einni kynslóð til annarr
ar. Stökkbreytt BRCA1 og BRCA2
gen orsaka um 5 til 7 prósent tilfella
brjóstakrabbameina hér á landi.
Líkur venjulegrar konu á að grein
ast með brjóstakrabbamein ein
hvern tíma á lífsleiðinni eru um einn
á móti átta, eða 12 til 13 prósent. Lík
urnar á því að kona með stökkbreytt
BRCA1 og BRCA2 fái brjóstakrabba
mein geta hins vegar verið allt að
80 prósentum. Þá eru meiri líkur á
að konur með stökkbreytingu í um
ræddum genum greinist ungar og í
báðum brjóstum en aðrar.
Hægt að fara í fyrirbyggjandi
aðgerðir
Ef kona hefur farið í erfðarann
sókn og veit að hún ber stökkbreytt
BRCA1 eða BRCA2 getur hún val
ið að fara í fyrirbyggjandi skurð
aðgerð þar sem heilbrigð brjóst og
eggjastokkar eru fjarlægðir. Þó er
vert að hafa í huga að um er að ræða
mjög ágengar aðgerðir sem ekki
eru afturkræfar. Með fyrirbyggjandi
skurðaðgerð, þar sem nánast all
ur brjóstvefur er fjarlægður, er unnt
að draga úr líkum á brjóstakrabba
meini um allt að 97 prósentum.
Þá getur kona sem enn er í barn
eign dregið úr líkum á brjóstakrabba
meini um allt að 50 prósent með því
að láta fjarlægja eggjastokkana. Slík
aðgerð dregur hins vegar ekki úr lík
um á brjóstakrabbameini hjá kon
um sem komnar eru yfir tíðahvörf,
því þar eru það fita og vöðvar sem
framleiða mest af estrógeni, en ekki
eggjastokkarnir.
Tími í barneign skiptir máli
Hvenær konur hafa blæðingar í
fyrsta skipti getur haft áhrif á hvort
þær fá krabbamein á lífsleiðinni. En
konur sem byrjuðu að hafa blæð
ingar yngri en 12 ára eru líklegri til
að fá brjóstakrabbamein en þær
sem eldri eru. Það sama gildir um
konur sem fara úr barneign eftir 55
ára aldur.
Á síðustu tveimur áratugum hef
ur kynþroski stúlkna sífellt verið að
hefjast fyrr og er þessi breyting talin
stafa bæði af offitu og því að óæskileg
hormónaraskandi efni finnast víða í
umhverfinu. Aukið hormónamagn
hrindir af stað kynþroska og vexti
brjóstfruma. Því fyrr sem brjóstin
byrja að vaxa, því fyrr taka þau að
bregðast við hormónum, bæði inn
an og utan líkamans. En það getur
aukið líkur á brjóstakrabbameini.
Þá geta konur með þétt brjóst
verið allt að sex sinnum líklegri til að
fá brjóstakrabbamein en kynsystur
þeirra. En jafnframt er erfiðara að
greina krabbamein í þéttum brjóst
um. Þéttleikann er þó ekki hægt að
meta af því hvernig brjóstin eru við
komu. Í þéttum brjóstum er minna
af fituvef og meira af brjóstvef en í
öðrum brjóstum, meira af mjólkur
kirtlavef og uppistöðuvef um hvern
mjólkurkirtil. Þetta er eitthvað sem
finnst ekki með snertingu.
Barneignir og brjóstagjöf
Barneignir geta haft áhrif á líkurnar
á hvort kona fái brjóstakrabbamein
eða ekki. Meiri líkur eru á því að
kona sem aldrei hefur alið fullburða
barn eða eignast sitt fyrsta barn eft
ir þrítugt, fái brjóstakrabbamein en
þær sem það hafa gert.
Ástæðan er sú að alveg frá því að
brjóstfrumur mótast á kynþroska
skeiðinu eru þær mjög óþroskað
ar og virkar, eða allt þar til kona
hefur alið sitt fyrsta barn. Á með
an brjóstfrumur hafa ekki náð full
um þroska eru þær mjög næmar
fyrir estrógeni og öðrum hormón
um, sem og hormónatruflunum frá
umhverfinu. Þá veldur þungun því
að tíðahringjum fækkar sem svar
ar meðgöngutímanum og það kann
einnig að skýra hvers vegna barn
eignir hafa verndandi áhrif gegn
brjóstakrabbameini.
Að hafa barn á brjósti dregur
einnig úr líkum á brjóstakrabba
meini, sérstaklega ef barnið er á
brjósti í meira en ár. Ávinningurinn
er minni hjá þeim konum sem gefa
brjóst skemur. Helstu ástæðurnar
eru að þegar brjóst framleiða mjólk
allan sólarhringinn eru minni líkur
á því að brjóstfrumur hagi sér óeðli
lega. Þá hafa konur færri tíðarhringi
en ella á meðan þær eru með barn
á brjósti.
Þá hafa rannsóknir sýnt fram á að
konur sem skortir Dvítamín eru lík
legri en aðrar til að fá brjóstakrabba
mein. Hugsanlegt er að Dvítamín
ið eigi þátt í að stjórna vexti eðlilegra
brjóstfruma og kunni þannig að
hindra vöxt krabbameinsfruma. n
n Brjóstakrabbamein er algengasta krabbamein kvenna n Helstu áhættuþættir
Tölfræði brjóstakrabbameins á Íslandi
Yfirlit 2008–2012 Karlar Konur
Meðalfjöldi tilfella á ári 2 209
Hlutfall af öllum meinum < 1% 29,7%
Meðalaldur við greiningu 63 ár 61 ár
Meðalfjöldi látinna á ári (2005–2009) 0–1 39
Fjöldi á lífi í árslok 2012 23 2.684
(Upplýsingar fengnar úr krabbameinsskrá Krabbameinsfélags Íslands)
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrun@dv.is
Konur ættu að hafa það fyrir reglu að
skoða brjóst sín sjálfar einu sinni mánuði til
að vita nokkurn veginn hvernig þau líta út
og eru viðkomu öllu jafna.
Best er að skoða þau nokkrum dögum eftir
blæðingar þegar minnstar líkur eru á því að
brjóstin séu þrútin og aum. Fyrir konur sem
eru hættar á blæðingum er gott að velja
einn ákveðin dag í mánuði til skoðunar.
Þrátt fyrir að hnútur finnist í brjósti
við þreifingu þarf það ekki að þýða að
krabbamein sé til staðar. Flestar konur eru
að jafnaði með nokkra hnúta og þrymla í
brjóstum. Átta af hverjum tíu hnútum sem
eru fjarlægðir eru góðkynja.
Brjóst eru jafn mismunandi og þau
eru mörg og því skiptir máli að þekkja
hvernig sín eigin brjóst eru viðkomu á
mismunandi svæðum. Er eitthvað sem
sker sig úr landslaginu, eins og steinvala
á sandströnd? Hafðu samband við lækni
ef þú tekur eftir breytingum á brjóstun-
um sem vara lengur en einn tíðahring,
eða virðast ágerast og verða meira
áberandi.
Sumar konur hafa brugðið á það ráð
að skrifa hjá sér upplýsingar þegar þær
skoða á sér brjóstin, og það getur verið
gagnlegt. Til dæmis má teikna upp mynd
eða hálfgert landakort af brjóstunum og
merkja inn hvar er að finna þrymla eða
ójöfnur. Þessi aðferð getur verið mjög
gagnleg í upphafi og hjálpað konum við
að muna frá einum mánuði til annars
hvernig brjóstin eru venjulega.
Breytingar á brjóstum
sem geta bent til
krabbameins
Vertu vakandi gagnvart
þessum einkennum
n Breyting á stærð eða lögun brjósta
n Roði eða útbrot í kringum geirvörtu
n Vökvi lekur úr brjósti án þess að það
sé kreist
n Bólgur í handarkrika eða í kringum
viðbein
n Hnútur eða þykkildi sem er öðruvísi
viðkomu en annar brjóstvefur
n Breytingar á húðinni á brjóstinu, eins
og krumpur eða dældir
n Geirvartan dregst inn eða lögun
breytist
n Viðvarandi verkur í brjósti eða
handarkrika
Skoðaðu brjóstin mánaðarlega
Hafðu samband við lækni ef breytingar ganga ekki til baka
Þreifaðu brjóstin
Góð regla er að þreifa
brjóstin mánaðarlega
MYnd SHuTTeRSTocK