Feykir - 19.12.1990, Síða 10
10 FEYKIR 45/1990
Eyjólfur Eyjólfsson rifjar upp minningar frá jólum:
Það prjál sem þykir sjálf-
sagt í dag þekktist ekki
I3ernskujólin mín
voru allfrábrugðin þeim
jólum sem ég sé fyrir mér í
dag, hvað ytra borðið snertir
þó helgin sé hin sama, enda
var almenn fátækt og
almenningur hafði úr litlu að
moða. Það prjál sem þykir
sjálfsagt í dag þekktist ekki.
En eftirvæntingin hjá börn-
um og reyndar fullorðnum
var ekki minni. Glugga-
skreytingar í verslunargluggum
skáru ekki síður í augu þó
þær fælust kannski í einum
jólasveini sem gat hreyft
hausinn þegar best lét og
nokkrunt eplum og appel-
sínum. Þá voru jólaeplin
nefnilega jólaepli, á öðrunt
tímum sáust þau ekki.
Og eftirvæntingin heima
fyrir var ekki síðri, jólagjaf-
irnar þættu raunar ekki
stórar í sniðum í dag. Þær
fólust yfirleitt í nokkrum
litlum kertum og spilurn og
kannski einum pakka af
stjörnuljósum. Oft fylgdi
einhver ný flík og e.t.v. skór
efefni leyfðu.
A Þorláksmessu var tekið
fram gamla spýtujólatréð og
það vafið nýjum borðum ef
þeir voru þá til, kertin fest á
það og kramarhúsin eða
körfurnar búin til undir
sælgætið og hengt á grein-
arnar. Eftir kirkjugöngu var
jólahangikjötið borðað, síðan
var gengið í kringum jólatréð
og jólasálmarnir sungnir og
þá fyrst voru gjafirnar teknar
upp. _
— Eg gleymi því aldrei
hvað maður horfði heillaður
á litla kertaljósið blakta í
glugganum. Það var ekki
síður gleði í barnssálinni yfir
þessu litla ljósi í þá daga en
tölvunni sem kemur upp úr
stóra kassanum í dag.
au 20 ár sent ég var
togarasjómaður var heldur
lítið urn það að ég væri heima
ájólurn. T.d. man égeftirþví
þegar ég var á togaranum
Jóni forseta, fórum við þrjú
ár í röð út á veiðar á
Þorláksmessu. I öll skiptin í
vitlausu veðri og í öll skiptin
farið beint vestur undir
Grænuhlíð við ísafjarðar-
djúp. og legið þar fram yfir
nýár. Við höfðum það svo
sem ekkert slæmt, gott að
borða nóg að lesa, gátum
sofið að vild milli vakta. En
óneitanlega fannst okkur að
það hefði ekkert gert til, þó
að við hefðum fengið að vera
heima fram á jóladag í það
minnsta.
Þó eru það ein jól og ein
nýársnótt sem eru mér
sérstaklega minnisstæð. í
fyrra skiptið komum við til
Hull í Englandi á jóladag.
Við vorum of seint fyrir til að
ná flóðinu um kvöldið, og
urðum að liggja úti á
Humberfljóti um nóttina.
Eyrsti vélstjóri var búinn að
lofa að bjóða mér á sjoppu,
sem íslendingarnir kölluðu
Kolbeinsstaði og ég hafði
aldrei komið á.
u m nóttina kom
heljarmikil hersing af þýsk-
urn flugvélum og gerði
loftárás á borgina. Flugvél-
arnar flugu mjög hátt og það
virtist ekki vera neitt skipu-
lag á árásinni. T.d. fórmikið
af sprengjum í fljótið, en þar
lá fjöldi skipa. Þó varðekkert
skip fyrir sprengju en í
borginni gusu upp ntiklir
eldar.
Daginn eftir fórum við
Guðmann vélstjóri í land og
ætluðum að fá okkur
hressingu á Kolbeinsstöðum
eins og fyrirhugað var, og nú
veitti ekki af eftir erfiða
vökunótt. En þegar við
komum upp á Hersilroad brá
okkur heldur í brún. Þar sem
VIÐSKIPTAVINIR
ATHUGIÐ!
Erum fluttir í nýtt húsnœöi oð
Borgarflöt 27 Sauöárkróki
Öll almenn rafverktakaþjónusta
auk mótorvindinga,
skrifvéla- og rafeindaWðgerba
TILBOÐ OG TÍMAVINNA
REYNIÐ VIÐSKIPTIN
-ÍTST Rafmagnsverkstæ&i KS. JÖT~
Eyjóllur Eyjólfsson.
Kolbeinsstaðir höfðu staðið
ásamt nærliggjandi húsum
var ein rjúkandi rúst.
Guðmanni varð svo mikið um
að hann snarsneri við og
flýtti sér niður eftir götunni.
Svo stansaði hann, sneri sér
að mér og sagði: „Hvar
værum við nú Eyjóflur ef við
hefðum komist á Kolbeins-
staði í gærkveldi?
Daginn eftir fórurn við
Guðmann vélstjóri í land og
ætluðum að fá okkur
hressingu á Kolbeinsstöðum
eins og fyrirhugað var, og nú
veitti ekki af eftir erfiða
vökunótt. En þegar við
komum upp á Hersilroad brá
okkur heldur í brún. Þarsem
Kolbeinsstaðir höfðu staðið
ásamt nærliggjandi húsum
var ein rjúkandi rúst.
Guðmanni varð svo mikið
um hann snarsneri við og
flýtti sér niður eftir götunni.
Svo stansaði hann. sneri sér
að mér og sagði: „Hvar
værum við nú Eyjóflur ef við
hefðum komist á Kolbeins-
staði í gærkveldi?
Hitt atvikið átti sér
stað ári síðar. Við vorum á
veiðum í blíðskaparveðri í
mokfiskeríi. Ég sem var
kyndari hafði farið upp á
brúarvæng til að fá mérfrískt
loft og horfa á karlana í
aðgerðinni. Allt í einu
hækkaði loftskeytamaðurinn
í útvarpinu og út yfir dekkið
hljómaði sálmurinn nú árið
er liðið. Og viti menn
karlarnir hættu hver af
öðrum að vinna. Og þessar
tvær vaktir sem á dekki voru,
18-20 manns tóku undir og
sungu sálminn til enda. Ég
var bókstaflega heillaður
þetta var ólýsanlegt augna-
blik.
En Adam var ekki lengi í
paradís, sálmurinn varvarla
búinn þegar skipað var að slá
úr blökkinni og trollið híft.
Trollið var bókstaflega fullt
af fiski milli vængja og það
þurfti sko minna til, til að
gera karlinn vitlausan.
Hann æddi út á brúar-
vænginn, steytti hnefa, sparkaði
í handriðið á brúarvængnum
og hótaði mönnum lífláti ef
þeir gætu ekki hreyft á sér
andskotans skankana. Það
var eins og vinur minn Jón
Marteinn sagði við mig einu
sinni: „Það var sko ákveðinn
sjarmur yfir togaralífinu í þá
daga”.
Sjúkmhús Skagfirðinga
Heimsóknartímar yfirjól
og áramót
Aðfangadagur 18 - 21
Jóladagur 15 -17 og 19 -21
Gamlársdagur 18 - 21
Nýársdagur 15-17ogl9-21
Aðrir tímar eftir
samkomulagi