Feykir


Feykir - 19.12.1990, Blaðsíða 24

Feykir - 19.12.1990, Blaðsíða 24
19. desember 1990, 45. tölublað, 10. árgangur Sendum of&gr Bestujóía- og nýársóskjr ‘Þöfcjjum znðslqptin á árinu sem er að Cíða Auglýsingar þurfa að berast eigi síðar en um hádegi á föstudögum SÞSBKSCðfataversíun • skóBúð r Oskiun viðsláplavinum okkar gleðilegra jóla og farsældar á komanái ári. Þökkum viðskiptm á árinu sem er að líða. BUNAÐARBANKIISLANDS TRAUSTUR BANKI Útibúið á Sauðárkróki Afgreiðslumar Hofsósi og Varmahlíð Tímamótasamningur um Fjölbrautaskólann undirritaður Við undirskrift samnings í verknámshúsi Fjölhrautaskólans: Páll Pétursson alþingismaður, Björn Valdimarsson bæjarstjóri á Siglufirði, borsteinn Ásgrímsson formaður héraðsnefndar Skagafjarðarsýslu, Svavar Gestsson menntamálaráðherra og Valgarður Hilmarsson formaður héraðsnefndar Austur-Húnvetninga. Við undirskrift samninga milli Héraðsnefnda Skagfirðinga, Austur-Húnvetninga og bajar- stjórnar Siglufjarðar sl. sunnudag um uppbyggingu Ijölbrautaskólans, var nafni skólans breytt í Fjölbrauta- skóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki. Héraðsnefnd Vestur-Húnvetninga hefur ekki lokið umfjöllun um þá, og bíður það vorfundar hvort að aðild Vestur-Húnvetninga verður. Menntamálaráðherra og þingmenn voru viðstaddir undirskrift samninga. Þor- björn Árnason formaður skóla- nefndar stýrði fundi og þakkaði ölluni sem að málinu hefðu unnið. Um tímamóta- samning væri að ræða í sögu skólans, framundan væri uppbyggingin og sköpum skipti að hcimaaðilar stæðu saman. „Samningurinn mun auð- velda uppbyggingu skólans. og hefur ótvírætt gildi l'yrir skólann og kjördæmið”, segir Jón Hjartarson skóla- meistari. Með samningunum er verksvið skólans stækkað nokkuð. Sá þáttur sem erfiðast var að ná samkomu- lagi um var heimakstur nemenda. Hann verður nú unr aðra hverja helgi. Valgarður Hilmarsson for- maður Héraðsnefndar A.- Hún. lýsti yfir ánægju sinni nreð samninginn og taldi hann góða byrjun á frekara samstarfi sveitarfélaga í Norðurlandi vestra um öfluga uppbyggingu skólans og menntamála í kjördæminu. Páll Pétursson alþingismaður sagði skólann gegna mikil- vægu hlutverki í menntun og menningu kjördæmisins, og styðja bæri við uppbygginu hans af öllum mætti. Svavar Gestsson menntamálaráðherra taldi samning þann sem gerður hafði verið gott fordæmi unr samstarf sveitar- félaga annarstaðará landinu. Þess má geta einnig, að í undirbúningi er á vegum fjölbrautaskólans að stofna til farskóla. Sem yrði með þeinr hætti að námskeið yrðu færð milli staða. Er þarna aðallega verið að hugsa um að sinna þörfúnr atvinnulífsins, og verður leitað eftir sanr- vinnu fyrirtækja og verka- lýðsfélaga. \

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.