Feykir - 10.04.1991, Page 9
13/1991 FEYKIR 9
VÖRN OG JAFNRÉTTIBYGGÐANNA
1. Sjálfstæði íslendinga í eigin fullvalda landi án
erlendrar íhlutunar og án aðildar að Evrópubandalaginu.
2. Aukið lýðræði og jafnrétti. Valddreifing frá miðstýrðu
kerfi til fólksins. Öflugar heimastjórnir byggðanna sem
tryggi öllum landsmönnum jafnan rétt til aukinna
lífsgæða.
3. Byggðum verði úthlutað kvótum í landbúnaði og
sjávarútvegi. Auðlindir Islendinga í höndum lands-
manna sjálfra. Fjölþætt atvinnuuppbygging íslenskrar
framleiðslu, en ekki risaálver. Hreint land án rányrkju og
mengunar.
4. Mannréttindi, jöfnuð þegnanna, bætt réttarkerfi og
aukið lýðræði. Lágmarkslaun, 75 þús. á mánuði að
raungildi, verði tryggð með löggjöf. Sömu laun gildi fyrir
konur og karla.
5. Skattkerfi þjóðarinnar jafni kjör fólks og byggða.
Löggjöf um hámarksvexti gegn okri í lánaviðskiptum.
Fjármagnstekjur verði skattlagðar. Skattþrep verði fleiri
en eitt og matarskattar verði afnumdir.
6. Breyttar kosningareglur, aukið valfrelsi kjósenda að
velja þingmenn og fulltrúa í sveitarstjórnir. Tryggja þarf
frjálsan og jafnan rétt stjórnmálaafla að ríkisfjöl-
miðlunum.
7. Stofnun fríhafnar og skattfrjáls svæðis við
alþjóðaflugvelli í landinu, sem geri Island að alþjóðlegri
viðskiptamiðstöð. Utanríkisþjónustan verði endur-
skoðuð.
8. Raforka frá hinu hringtengda flutningskerfi
Landsvirkjunar verði seld við sama verði um land allt.
Landsvirkjun verði að jöfnu eign allrar þjóðarinnar.
9. Byggðunum verði tryggð aðstaða til að geyma og
ávaxta eigið aflafé, svo sem lífeyrissjóði og sparifé
íbúanna. Stefnt verði aðjöfnum lífeyrisréttindum allra
landsmanna.
10. Húsnæðislánakerfið taki hliðsjón af kjörum fólks og
tryggi verðmæti í kaupum og endursölu fasteigna.
Félagslegt íbúðakerfi verði aukið og búseturéttur
tryggður.
11. Æskan og menntun hennar er framtíð þjóðarinnar.
Tryggja skal velferð og aðstæður ungs fólks til heilbrigðs
lífs svo sem á sviði íþrótta- og félagsstarfs.
H H H
Við leitum samstöðu um öflugt byggðaátak frá
sífelldri vörn til sóknar og framfara.
Við erum vorboðinn í íslenskri pólitík!
KOSNINGASÍMINN ER 95-35744