Feykir - 12.06.1991, Qupperneq 2
2 FEYKIR 22/1991
FEYKIR
- JR- Óháö fréttab<aö á Noröurlandi vestra
■ RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR:
Þórhallur Ásmundsson ■ ÚTGEFANDI:
Feykir hf. ■ SKRIFSTOFA: Aðalgötu 2,
Sauðárkróki ■ PÓSTFANG: Pósthólf 4,
550 Sauðárkróki ■ SÍMI: 95-35757 95-
36703 ■ STJÓRN FEYKIS HF.: Jón F.
Hjartarson, Sr. Hjálmar Jónsson, Sæmundur
Hermannsson, Sigurður Ágústsson, og
Stefán Árnason ■ BLAÐAMAÐUR: Magnús
Ólafsson A-Hún., ■ AUGLÝSINGASTJÓRI:
Hólmfríður Guðmundsdóttir ■ ÁSKRIFTAR-
VERO: 100 krónur hvert tölublað; í
lausasölu 100 ■ ÚTGÁFUDAGUR: Miðviku-
dagur ■ SETNING, UMBROT OG PRENTUN:
SÁST sf., Sauðárkróki. ■ Feykir á aðild aö
Samtökum bæja- og héraðsfréttablaða.
Blönduós:
Öryggi gangandi fyrir hraða-
umferð gegnum bæinn aukið
Von bráðar munu Blönduós-
ingar njóta aukins öryggis
gagnvart hraðaumferðinni um
þjóðveg 1 gegnum bæinn, en
hún hefur valdið foreldrum og
forráðamönnum bajarins áhyggj-
um um langt skeið. Hafín er
uppsetning handriðs á Blöndu-
brú fyrir gangandi umferð og
bráðlega munu framkvæmdir
hafnar við gerð hringtorgs
sunnan brúarinnar á gatna-
mótum Hnjúkabyggðar og
Svínvetningabrautar. Hring-
torgið kemur til með að
bremsa af umferð að sunnan-
verðu.
Gönguleiðin yfir Blöndu-
brú verðurtryggðáþann hátt
að gangstéttin sem fyrir er
verður breikkuð um tæpan
meter og komið fyrir handriði
þar innan við. Á það verður
sett vörn sem hindrar
vatnsaga og loftþrýsting frá
umferðinni.
„Það er hreinasta mildi að
aldrei skuli hafa orðið slys á
brúnni, t.d. þegar börn af
brekkunni eru á leiðinni í
skólann hjólandi í glerhálku
að vetrinum. Þá hefði ekki
þurft nema loftþrýsting frá
stóru vöruflutningatæki til
að setja þau í ána. Þeir
þekkja þessar aðstæður veiði-
mennirnir sem hafa verið að
veiða af brúnni yfir Hnausa-
kvísl”, sagði Guðbjartur Á
Ólafsson bæj ar tæk n ifræðingu r
á Blönduósi.
Þess má geta að auk gerðar
hringtorgsins verður kafli
Svínvetningarbrautar framhjá
Héraðshælinu bundinn varan-
legu slitlagi í sumar. Ekki er
ákveðið hvort vegagerðin
sjálf stendur fyrir þessum
framkvæmdum eða þær verði
boðnar út.
Glaðheimum
PYLSUR M/SALATI........kr. 250
SAMLOKA M/SKINKU OG OSTL..ki 250
HAMBORGARIM/FRÖNSKUM...kr 370
OSTBORGARIM/FRÖNSKUM...kr. 390
PIZZA MARGERTTA.......kr430
FISKUR M/FRÖNSKUM......kr 490
ÍS OG ÁVEXTER M/SÓSU...kr 150
immom
við bjóðum flaggstangir, fána og allan
tilheyrandi búnað til sölu og verður
uppsetning innifalin í verðinu.
Einnig munu leiðbeiningar um notkun
íslenska fánans fylgja með.
Þessi pakki kostar aðeins kr. 35.000
Á næstu dögum munu félagar úr
aðildarfélögum UMSS kanna áhuga fólks
fyrir þessu og taka niður pantanir. Eins er
hægt að hafa samband við
framkvæmdastjóra UMSS í síma 38833
og fá nánari upplýsingar um þetta mál.
UMSS og aðildarfélögin.
gefinn
SKAGFIRÐINGAR!
BJÓÐUM
FORSETA ÍSLANDS
VELKOMINN MEÐ
FÁNANN AÐ HÚNI!
Örkin komin á sinn stað.
Mínerva formaður foreldra-
félagsins með blómvönd og
Helga Sigurbjörnsdóttir fóstra.
Það var líf og fjör við
leikskólann Glaðheima á
laugardaginn. Opið hús var í
skólanum og slegið upp
grillveislu utandyra. Við þetta
tækifæri afhenti foreldrafélag
skólans bát sem félagarnir
hafa verið að skrapa upp og
mála í vetur.
Bátnum, sem Bára Haralds-
dóttir gaf félaginu, var gefið
nafnið Örkin. Börnin skírðu
bátinn með því að henda í
hann blöðrum fullum af
vatni og fylgdi því þónokkur
atgangur.
Opið hús er haldið á
Glaðheimum árlega og er
jafnan góð mæting. Að sögn
Helgu Sigurbjömsdóttur fóstm
Hótel
«ning
SUPA DAGSINS............kr.150
bátur
er mikill kraftur í starfi
foreldrafélagsins og mun
meðal annars vera í athugun
hjá því að bæta inn á
leiksvæði skólans bíl. Fyrir er
reyndar bílgarmur sem ekki
er nógu vel útlítandi og
liggur fyrir að fjarlægja.
Siglufjöröur:
Bæjarstjórnin
vill samstarf
viö ríkið um
málefni SR
„Vegna þeirrar umræðu sem
farið hefur fram um fjárhags-
stöðu SDdarverksmiðja ríkisins
óskar bæjarstjóm Siglufjarðar
eftir nánu samstarfi við
sjávarútvegsráðherra varðandi
hugsanlega breytingu á eignar-
haldi fyrirtækisins og fram-
tíðarrekstur verksmiðjunnar á
Siglufirði”. Þannig hljóðar
hluti bókunar sem bæjarstjórn
Siglufjarðar gerði í síðustu
viku,
Því er einnig beint til
sjávarútvegsráðherra að flýta
rannsóknum og mælingum á
loðnustofninum með það í
huga að veiðar geti hafist
einum til tveimur mánuðum
fyrr en nú er áætlað.
Bæjarstjórnin telur rétt að
minna á farsælan rekstur
síldarverksmiðjanna í hálfa
öld. Á þeim tíma hafi
fyrirtækið ekki fengið fram-
lög eða skuldbreytingar úr
opinberum fjárfestingarsjóðum
eins og flestar aðrar loðnu-
bræðslur á Islandi.