Feykir - 20.11.1991, Page 2
2 FEYKIR 41/1991
FEYKJIR I Hvað er byggðastefna?
- -HL Óháft fréttablaft á Norfturiandi vestra
Kemur út á miðvikudögum vikulega.
Útgefandi: Feykir hf. Skrifstofa:
Aðalgata 2 Sauðárkróki. Póstfang:
Pósthólf 4, 550 Sauðárkróki. Símar:
95-35757 og 95-36703. Fax: 95-36162.
Ritstjóri: Þórhallur Ásmundsson.
Fréttaritarar: Magnús Ólafsson A.-Hún.,
Eggert Antonsson V.-Hún. Auglýsingastjóri:
Hólmfríður Guðmundsdóttir. Blaðstjórn:
Jón F. Hjartarson, sr. Hjálmar Jónsson,
Sæmundur Hermannsson, Sigurður
Ágústsson, Hilmir Jóhannesson og
Stefán Árnason. Áskriftarverð: 100
krónur hvert tölublað. Lausasöluverð:
100 krónur. Umbrot: Feykir. Setning og
prentun: Sást sf. Feykir á aðild að
Samtökum bæja- og héraðsfréttablaða.
Verslið í
heimabyggð
Síðustu áratugi hafa umræðurum byggðamál
sett mjög svip sinn á þjóðarsamkunduna.
Eflaust verður svo enn um sinn enda um
margslunginn málaflokk að ræða. Skiptar
skoðanir hafa oft verið um byggðamálin og
gagnrýnisraddir heyrst um þá byggðastefnu
sem stjórnvöld hafa reynt að fylgja, til að mynda
hefur Byggðastofnun legið undir ámæli á
síðustu vikum og mánuðum. Samt sem áðureru
trúlega flestir stjórnmálamenn þjóðarinnar
samþykkir því að öfluga byggðastefnu þurfi að
reka í landinu, byggða á raunhæfum áætlunum.
En hvað er byggðastefna? Menn hafa verið að
reyna að skilgreina þetta hugtak, en í daglegri
umræðu mætti halda að byggðastefna snerist
eingöngu um atvinnumál viðkomandi lands-
svæða og samgöngumál. Vissulega eru þetta
grundvallarmál til að byggð geti þrifist, og því
verður ekki á móti mælt að mikið hefur áunnist í
þessum málaflokkum víða um land á síðustu
áratugum. Vegir stórbatnað, þó mikið sé þar
ógert, séstaklega fyrir vestan og austan,
flugsamgöngur eflst við gerð og lagfæringar
flugvalla um land allt. Atvinnulífið hefur líka
eflst, þó minni staðir út um landið gjaldi gjarnan
fábreytts atvinnulífs í samkeppninni við stærra
þéttbýli.
En byggðastefna er ekki eingöngu þessirtveir
málaflokkar, heldur nær hún yfir heilbrigðismál,
menntamál og félagslega þjónustu. Heilbrigðis-
og menntamálin er sjálfsagt hægt að afgreiða á
þann hátt, að þrátt fyrir talsverða uppbyggingu
í þessum málaflokkum á síðustu áratugum, er
þjónustan mismikil eftir svæðum. Hvað
heilbrigðismálin varðar t.d., hefur reynst æ
erfiðar með árunum að manna einstök
læknishéruð.
Einn er sá þáttur í félagslegri þjónustu og
menntamálum, sem gerðar hafa verið æ meiri
kröfur til á seinni árum, og var ekki seinna
vænna. Það er þjónusta við fatlaða. Með
tilkomu svæðisstjórna fatlaðra um land allt
hefur verið unnið markvisst að eflingu þjónustu
og reynt að efla menntunarmöguleika fatlaðra.
Hins vegar verður því ekki neitað, að nú á
tímum niðurskurðar ríkisútgjalda vegna
samdráttar í þjóðarframleiðslu, er vissulega
hætta á að höggvið verði þar sem síst skyldi.
Það verður líka að segjast eins og er varðandi
grunnskólanám fatlaðra, að landsbyggðin
virðist þar ekki njóta jafns á við
höfuðborgarsvæðið. Ríkið kostar svokallaðar
sérdeildir í þrem skólum syðra en vill ekki
standa straum af slíkri þjónustu úti á
landsbyggðinni. Kom þó inn í rekstur
skólaheimilisins á Egilsá á sínum tíma, en
virðist nú eiga að leggja það niður. Eru nýleg
verkaskiptingalög ríkis- og sveitarfélaga þar
borin fyrir. Ekki er víst að allir geri sér grein
fyrir mikilvægi þeirrar þjónustu sem Egilsár-
heimilið hefur veitt, en víst er að hér er um að
ræða stórt mál varðandi sérkennslumálin í
kjördæminu. Vonandi er að nefnd sú sem
vinnur nú að endurskoðun sérkennslumála í
kjördæminu komist að skynsamlegum niður-
stöðum sem komist í framkvæmd. . ■.
ÞA.
Bjargað af sökkvandi bát
Þegar þeir félagarnir Hjálmar
Höskuldur Hjálmarsson og
Jónas Einarsson á plastbátn-
um Sigrúnu frá Hofsósi, voru
staddir á Málmeyjarsundi um
kvöldmatarleytið á sunnudags-
kvöld á heimleið úr línuróðri,
urðu þeir þess áskynja að
báturinn fór að rísa að
framan. Þegar betur var að
gáð var hann hálffullur af sjó
að aftanverðu og sjórinn
streymdi inn.
Um klukkutíma eftir að
björgunarsveitinni Gretti
hafði verið gert viðvart, voru
sex björgunarsveitarmenn
komnir á vettvang á Geisla,
bát Páls Magnússonar, en
svo vel vildi til að Páll og
Haraldur Jóhannesson bóndi í
Enni voru að koma úr
svartfuglsskytteríi og ekki
einu sinni farnir úrgallanum.
Sigrún var stödd 10 mílur
frá Hofósi og Höskuldur og
Jónas höfðu verið um
hálftíma í björgunarbát
þegar hjálpin barst. Voru
þeir íklæddir flotgöllum og
leið vel, utan að Jónas sem
verið hafði í koju var á
sokkaleistunum í frostinu
sem var um 10 stig. Sigrún
maraði enn í kafi. Flotholt
eru í bátnum og á hann ekki
að geta sokkið við eðlilegar
aðstæður, en um 700 kíló af
fiski voru í bátnum. Línu-
balarnir höfðu flotið út og
lenti línan í skrúfu Geisla,
en Páli skipstjóra tókst með
snarræði að -losa hana úr.
Gerð var tilraun til að draga
Sigrúnu til lands, en án
árangurs þar sem báturinn
sökk fljótlega það mikið.
Heimferðin gekk vel og var
komið að bryggju á Hofsósi
um hálftíu leytið. Ekki er
vitað hvað olli lekanum í
Sigrúnu.
„FAKSSPOR HL FRAMTIÐAR,,
Hestadagur veiður hjá nemum Bændaskólans
áHólumíHjaltadal
sunnudaginn 24. nóvember kl. 13.30
Komið og kynnist starfsemi hrossaræktarhrautar.
Allir velkomnir.
HÓLASKÓLI
Vatnsleiðsla lögð
til Haganesvíkur
Undanfarið hefur verið unnið
við að leggja vatnsleiðslufyrir
kalt vatn til Haganesvíkur í
Fljótum. Vatnið er sótt um 4
km leið en það er tekið í landi
Barðs.
Vöntun á góðu vatni hefur
lengi valdið erfiðleikum í
Haganesvík en þar í grennd
er mjög lítið um vatnsból.
Síðustu ár hafa nokkrir
aðilar stundað sjó frá
Haganesvík og verkað aflann
í húsum þar. Fiskverkendur
hafa haft undanþágu til að
nota vatn úr Hópsvatni í
nokkur ár en nú var svo
komið að annaðhvort varð að
hætta fiskverkuninni eða leiða
betra vatn á svæðið. Sömu-
leiðis hefur verið vatnsskortur í
sumarbústöðum í grennd við
Haganesvík. Það eru Fljóta-
hreppur og fiskverkendur í
Fljótum sem standa að
framkvæmdinnl Þannig stendur
hreppurinn undir kostnaði
við efrihluta leiðslunnar og
miðlunartank. Útvegsbændur
bera kostnað við hinn hluta
vatnsleiðslunnar og taka
sumarhúsaeigendur að hluta
þátt í þeim kostnaði.
Ö.Þ.