Feykir - 18.03.1992, Blaðsíða 1
rafsjá hf
RAFVERKTAKAR
SÉRVERSLUN
MEÐ RAFTÆKI
SÆMUNDARGÖTU 1
SAUÐÁRKRÓKI
Fljólamenn stofna
hitaveitu
Fyrir skömmu var haldinn að
Ketilási í Fljótum stofnfundur
fýrir hitaveitu Austur-Fljóta.
Aætlað er að starfsvæði
hitaveitunnar verði framan
frá Stífluhólum og niður að
Hraunum, einnig er mögulegt
að sumarbústaðasvæði á vestur-
bakka Mikiavatns tengist
veitunni.
Það er jarðhiti á jörðinni
Reykjarhóli sem er ástæðan
fyrir stofnun hitaveitunnar.
A Reykjarhóli er gömul
borhola sem gefur nokkuð af
heitu vatni. Það hefur þó til
þessa aðeins verið nýtt fyrir
þá jörð. Talið er að með
borun megi fá þar talsvert
magn af vatni, auk þess sem
fallhæð nægi til að leiða
vatnið án dælingar út á
Ketilás og jafnvel lengra.
Samningar standa nú yfir
við eigendur Reykjarhóls um
afnot af vatni og leyfi til
borunar í landi jarðarinnar.
A stofnfundinum var kosin
stjóm fyrir hitaveituna. Hana
skipa Trausti Sveinsson
Bjarnargili. Ríkharður Jóns-
son Brúnastöðum og Gunnar
Steingrímsson Stóra- Holti.
Ö.Þ.
Röstln í úreldingu
Talin yfirvofandi hætla á að
borskkvóti skipsins verði seldur úr
byggðarlaginu á næstunni
þvertekur fyrir að sýslan verði eitt atvinnusvæði
„Eins og sakir standa er
enginn vilji frá okkar hendi
fyrir einu atvinnusvæði í
sýslunni. Við getum tæplega
séð heimafólki fyrir atvinnu
hvað þá að hægt sé að taka við
utanbæjarfólki í vinnu. Atvinnu-
málin í sýslunni eru líka
þannig að við höfum ekkert til
annarra að sækja, en það
virðast aðrir hafa til okkar að
sækja”, segir Axel Hallgríms-
son formaður Verkalýðs- og
sjómamannafélags Skagastrandar
og tekur dræmt í það að sýslan
verði gerð að einu atvinnu-
svæði.
,,Við erum t.d. með
hálaunuð störf á togurunum
okkar sem utanbæjarmenn
sækja. í”, bætti Axel við.
Verkalýðsfélag A.-Húnvetn-
inga, á Blönduósi hefur
margoft þrýstá þaðaðsýslan
verði gerð að einu atvinnu-
svæði. Valdimar Guðmanns-
son formaður félagsins segist
gera sér grein fyrir því að
afstað'a.Skagstrendinga móti
einu atvinnusvæði hafi farið
heldur harðnandi að undan-
förnu, og ekki sé sjáanlegt í
bili neitt sem gæti breytt þar
um.
„Við verðum að reyna með
tímanum að ná samstöðu
meðal stéttar- og sveitar-
félaga á svæðinu. Eg er
reyndar ekki bjartýnn á að
sýslan verði eitt atvinnusvæði
fyrr en sveitarfélög verða
sameinuð. Reyndar vil ég
ganga enn lengra og held því
fram að báðar sýslurnar eigi
að vera eitt atvinnusvæði, og
eitt sveitarfélag í hvorri
sýslu. Manni finnst þetta
dæmalaus skammsýni hjá
Skagstrendingum og ekki í
takt við það sem er að gerast í
þjóðfélaginu í dag”, sagði
Valdimar.
Mikill viðbúnaður var í íþróttahúsinu á Sauðárkróki fyrir helgina þegar Fjölbrautaskóli
Norðurlands vestra og Menntaskólinn á Akureyri áttust við í spurningakeppni
framhaldsskólanna. Sjónvarpsmenn voru í rúman sólarhring í húsinu að undirbúa upptöku
þáttarina og stuðningslið keppnisliðanna undirbjuggu sig af kappi. Hér eru liðsmenn FNV að
„græja” borða mikinn. Gestirnir höfðu samt betur í slagnum, MA sigraði nokkuð örugglega
enda mun reynsluríkara lið.
„Höfum tæplega vinnu fyrir heima-
fólk, hvað há aðkomufólk"
Verkalýðs- og sjómannafélag Skagastrandar
Ákveðið hefur verið að Röst,
skip rækjuvinnslunnar Dögunar,
sem skemmdist mikið í eldi sl.
haust, fari í úreldingu. Til
stendur að Dögun kaupi
annað skip í stað Rastar,
heldur minna. Þá eru miklar
líkur á að þorskkvóti Dögunar
verði seldur á næstunni, 462
tonn. Eftir því sem blaðið
kemst næst eru samningar um
sölu kvótans langt komnir, til
aðila utan héraðs. Hefur
Grandi í Reykjavík verið
nefndur í því sambandi.
Snorri Björn Sigurðsson
bæjarstjóri sagðist vilja halda
þessum kvóta í bænum, og
óskað hefði verið eftir því við
forráðamenn Dögunar að
Sauðárkróksbæ gæfist kostur á
að neyta forkaupsréttar
kvótans.
Einar Svansson framkvæmda-
stjóri Fiskiðjunnar segist
hafa rætt við Dögunarmenn
um hugsanleg kaup á
kvótanum en Fiskiðjunni
hafi aldrei verið gefið
tækifæri á að bjóða í hann.
Seinast hafi þeir Fiskiðju-
menn í lok síðasta mánaðar
óskað bréfleiðis eftirviðræð-
um við Dögun um hugsanleg
kaup kvótans, en því bréfi
hafi ekki verið svarað ennþá.
Svipaða sögu hefur Árni
Guðmundsson framkvæmda-
stjóri Skjaldar að segja.
Þess má geta að umræddur
þorskkvóti hefur ekki verið
unnin á Sauðárkróki á
undanförnum árum. Dögun
hefur ætíð látið hann í
skiptum fyrir rækju sem
vinnslan hefur fengið að.
—ICTcnytll lip—
Aðalgötu 26 Sauðárkróki
ALMENN RAFVERKTAKAÞJÓNUSTA
FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA
BÍLA- OG SKIPARAFMAGN
VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA
SlMI: 95-35519* BÍLASÍMI: 985-31419 • FAX: 95-36019
Bílaviðgerðir • lijólbarðaverkstæði
RÉTTINGAR • SPRAUTUN
jðki [bilaverhlfldi ^
i SÁUOtOUItMI 0.7, 1107
SÆMUNDARGÖTU - SlMI 35141