Feykir


Feykir - 18.03.1992, Blaðsíða 3

Feykir - 18.03.1992, Blaðsíða 3
11/1992 FEYKIR 3 Draumur Tindastólsmanna um sæti í úrvalsdeildinni endaði á sunnudagskvöldið, en þá fóru fram síðustu leikir deildarkeppninnar. Dæmið gekk ekki upp. Tindastólsmenn áttu afspyrnuslakan leik í Borgar- nesi og töpuðu 77:95 fyrir Skallagrínii. A sama tíma sigruðu KR-ingar Snæfell með 40 stiga mun í Hólminum. Þrátt fyrir að Tindastólsmenn yrðu í fjórða sæti Japis- deildarinnar, tveim stigum á eftir KR, komust þeir ekki í úrslit. Tindastóll hafði unnið 11 deildarleiki í röð fyrir Borgarnesleikinn, og tapaði því aðeins tveim leikjum í deildinni á þessu ári, þeim fyrsta ogsíðasta. Arangurinn er sá besti í deildinni til þessa og víst að Tindastólsmenn horfa með bjartsýni til næsta árs og næstu ára. Nægur er efniviðurinn. Raunar má segja að frammistaða Tindastólsliðs- ins í vetur sé með ólíkindum. Menn voru nefnilega ekkert að spá í að komast í úrslitakeppnina þegar mótið hófst í haust. Meira að segja var það álitið fjarlægt markmið, eftir að Pétur Guðmundsson bættist í hóp- inn. En hlutirnir hafa verið í lagi, liðsheildin blómstrað og þetta munaði „svo” litlu að liðið færi alla leið í úrslitin. En það kemur bara næst. Líklega hefur Tindastóls- menn skort trúna á að Snæfell hefði virkilega burði til að leggja KR-ingana að velli. Um leik Skallagríms og Tindastóls er best að hafa sem fæst orð. Staðan í hálfleik var 43:39 fyrir heimamenn. Stig Tindastóls skoruðu: Ivan Jonas 14, Haraldur og Einar 13 hvor, Pétur 10, Valur, Björn, Jngi Þór og Björgvin 6 hvor, Kristinn Baldvinsson 2 og Hinrik Gunnarsson 1. Laugardaginn 7. mars varhaldið héraðsþing Ungmennasambands Vestur-Húnavatnssýslu. Þar var rakin starfsemi sambandsins á síðasta ári og kom þar m.a. fram að haldið var upp á 60 ára afmæli þess með ýmsu móti en hápunkturinn var íþróttahátíð haldin á Hvammstanga 19.-20. júlí sem enduð var með varðeldi, söng, leikjum, grillveislu og mörgu fleiru. Sambandið stóð einnig fyrir Vorvöku á Hvammstanga umí páskana ásamt Lionsklúbbnum Bjarma og var það hluti af menningarstarfi USVH. Sagt var frá því að áhugi á frjálsum íþróttum hafi verið að aukast og var frjálsíþróttaráði ekki hvað síst þakkaður sá aukni áhugi. Húsnæðismál tóku óvænta stefnu á árinu er stjórnarmenn tóku sig til og gerðu tilboð í húsnæði það sem skrifstofuaðstaðan er í nú, en eigandi þess var Ræktunar- samband V.-Hún. Samningar tókust og vargengiðfrákaupum nú á dögunum. Kjör á íþróttamanni ársins fór fram 18. desember og var kjöri lýst og viðurkenningar veittar þ. 11. janúar s.l. Urslit urðu þessi: íþróttamaður ársins var Herdís Einarsdóttir, í öðru sæti varð Guðmundur Valur Guðmunds- son og í þriðja sæti varð Þórir Isólfsson. Afreksunglingar urðu: Elísabet Olafsdóttir, Ellen Dröfn Björnsdóttir, Hafdís Baldurs- dóttir, Ingibjörg Jónsdóttir, Kristiana Jessen, Laufey Skúla- dóttir, Daníel Pétursson, Elvar Daníelsson, Guðmundur V. Guðmundsson, Guðmundur Jóns- son, ísólfur Þórisson og Jóhannes Guðjónsson. Gestir þingsins voru Jón Ármann Héðinsson fulltrúi frá ÍSÍ, Sigurlaug Hermannsdóttir í stjórn UMFÍ og Sæmundur Runólfsson framkvæmdastjóri UMFÍ. Á þinginu varsamþykkt tillaga þarsemstjórn varfaliðað tryggja rekstur ungmennabúða á vegum USVH, jafnvel með aðild l'leiri sambanda. Samþvkkt var tillaga þar sem stjórn var falið að fá leiðbeinendur lil að halda námskeið fyrir þá er annast íþróttaþjálfun. Einnig var samþykkt tillaga þess efnis að stjórnfái félagsmálakennara í samráði við skólana sem gæti nýst aðildarfélögunum utan skólatíma. Góður andi ríkti á þinginu og voru fundarmenn almennt ánægðir með störf stjórnar á liðnu ári. Var stjórn og varastjórn endur- kjörin að öllu leyti nema því að Jón Guðbjörnsson gaf ekki kost á sér aftur í varastjórn og var Ingvar Jóhannsson kosinn í hans stað. 1 stjórn USVH eru því nú: Eyjólfur Valur Gunnarsson, formaður, Ingi Hjörtur Bjarna- son, ritari, Friðrik Böðvarsson. gjaldkeri, Sigrún Ólafsdóttir, meðstjórnandi. Varastjóm skipa: Kristján ísfeld, Axel Guðni Benediktsson og Ingvar Jón Jóhannsson. Nýlega gaf Lionsklúbbur Sauðárkróks Björgunarsveitinni Skagfirðngasveit tvær handtalsstöðvar, af gerðinni Vaesu FTH 2006. Talstöðvarnar eru með öflugum löftnetum, hleðslutækjum og vararafblöðum. Það var Bragi Þór Haraldsson formaður Skagfirðingasveitar sem veitti gjöfmni viðtöku úr hendi Jóns Sigurðssonar formanns Lionsklúbbs Sauðárkróks. Passið ykkur vélsleðamenn Landsvirkjun vill vekja athygli menn. Eru vélsleðamenn og á því nú þegar Blöndu- aðrir þeir sem hyggja á ferðir virkjun hefur verið tekin í í nágrenni Blönduvirkjunar notkun, að aðveituskurðir hvattir til að kynna sér virkjunarinnar eru hættu- ■ staðsetningu aðveituskurða. legir, einkum fyrir vélsleða- Draumurinn á enda Ársþing USVH BUSTOLPI HÚSNÆÐISREIKNINGUR ttur til húsnæðisláns gur skattafrádráttur vextir og ; 1 Há ávöxtun að viðbættum ríflegum skattaafslætti gerir Húsnæðisreikning Búnaðarbankans að einum besta spamaðarkosti sem völ er á. * BUNAÐARBANKI ISLANDS -Traustur banki Útibúið á Sauðárkróki Afgreiðslurnar Hofsósi og Varmahlíð

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.