Feykir - 18.03.1992, Page 2
2 FEYKIR 11/1992
Óháö fréttablaö á Noröuriandi vestra
Kemur út á miðvikudögum vikulega.
Útgefandi: Feykir hf. Skrifstofa: Aðal-
gata 2, Sauðárkróki. Póstfang: Pósthólf
4, 550 Sauðárkróki. Símar: 95-35757 og
95-36703. Fax: 95-36162. Ftitstjóri:
Þórhallur Ásmundsson. Fréttaritarar:
Magnús Ólafsson A.-Hún., Eggert
Antonsson V.Hún. Auglýsingastjóri:
Hólmfríður Guðmundsdóttir. Blaðstjórn:
Jón F. Hjartarson, sr. Hjálmar Jónsson,
Sæmundur Hermannsson, Sigurður
Ágústsson og Stefán Árnason. Áskriftar-
verð 110 krónur hvert tölublað.
Lausasöluverð: 120 krónur. Umbrot:
Feykir. Setning og prentun: Sást sf.
Feykir á aðild að Samtökum bæja- og
héraðsfréttablaða.
Norðlenskir hestadagar:
Glæsilegar sýningar
og rammnorðlensk
þjóðsagnastemning
„Norðlenskir hestadagar” hesta-
sýning með nýju sniði verður í
reiðhöllinni í Viðidal um
næstu helgi. Sýningin byggir
minna á hefðbundnum atriðum
en fyrri sýningar. Mikið er um
æfð atriði í þjóðlegum stíl,
með tali og tónum í bland.
Markmiðið með sýningunni er
að sýna fram á það ræktunar-
og þjálfunarstarf sem unniðer
með norðlenska hestinum í
dag. Aðstandendur sýningar-
innar gera sér vonir um að
2000 manns a.m.k. sæki
hestadagana.
Fjórar deildir Félags hrossa-
bænda standa að sýningun-
um ásamt Bændaskólanum á
Hólum. Austur- og Vestur-
Húnvetningar, Skagfirðingar
og sameiginleg deild Eyfirð-
inga og Þingeyinga. Um 70
hross taka þátt í sýningunni
af Norðurlandi öllu. Þær
hefjast klukkan 20,30 föstu-
dags-, laugardags- og sunnu-
dagskvöld.
Sýningaratriðin eru ætluð
sem krydd, en sýning á
kynbótahrossum, stóðhestum
og hrossum er þungamiðjan
fyrir það fólk sem vill kynna
sér útkomuna úr ræktuninni.
Þá verða nokkur fyrirtæki af
Norðurlandi með sýningar-
bása í reiðhöllinni, þar sem
þau kynna framleiðslu sína.
Má þar m.a. nefna: Steinullar-
verksmiðjuna, Slátursamlag
Skagfirðinga, rafgirðingabás
K.S., JRJ bílainnréttingar,
Stuðlaberg', Bílanaust o.fl.
Auk sýningaratriða má
nefna að fimm nemendur
Hólaskóla skora á íslands-
meistarann í hindrunarstökki,
Sigurbjörn Bárðarson. Settar
verða á svið rammnorðlenskar
þjóðsögur með tilheyrandi
draugagangi, hvarf séra
Odds á Miklabæ, djákninn á
Myrká, og Rangárbræður
Baldur og Baldvin syngja af
fákum sínum.
Innilegarþakkir til allra sem
glöddu mig með gjöfum og hlýjum
kveðjum í tilefni 70 ám afmœlis
mínsþann 14. mars siðastliðinn.
ICerar kveðjur.
Valberg Hannesson Sólgörðum.
Verkalýðsfélagið Hvöt á Hvammstanga:
Tekur á sig skuldaklafa vegna
rekstrarþrots útgerðarfélagsins
Verkalýðsfélagið Hvöt á
Hvammstanga hefur orðið að
taka á sig skuldaklafa vegna
rekstrarþrots Útgerðarfélags
Vestur-Húnvetninga, sem um
árabil gerði út rækjuskipið
Geislann. Verkalýðsfélagið
gekk á árinu 1989 í ábyrgð á
láni vegna viðgerðar á
Geislanum. Þetta lán féll og
urfti Hvöt að standa við
greiðslu þess um síðustu
áramót, tók til þess þriggja og
hálfrar milljóna króna lán
með einfaldri ábyrgð Hvamms-
tangahrepps. Er hér um
miklar skuldbindingar að
ræða hjá ekki stærra verkalýðs-
félagi.
Stjórn Verkalýðsfélagsins
Hvatar fór fram á það á
siðasta hausti að Hvamms-
tangahreppur tæki þátt í
greiðslu þessa vanskilaláns.
Því erindi var hafnað. Þegar
ábyrgð Hvammstangahrepps
fyrir þriggja og hálfrar
milljónar króns láninu var
samþykkt í hreppsnefnd
Hvammstanga fyrir skömmu,
lagði Kristján Björnsson einn
hreppsnefndarmanna fram
bókun þar sem rakin var
saga ÚVH.
Kristján sagði, að allt frá
árinu 1988 og þangað til
Geislinn varseldurárið 1990,
hefði hann sem fulltrúi
hreppsins varað við rekstri
félagsins vegna gífurlegs
tapreksturs og skuldasöfnunar.
A stjórnarfundi UVH þann
8. nóvember 1988 var lagt
fram bréf frá stjórn verka-
lýðsfélagsins þar sem m.a. er
lagt til að Geisli verði seldur
áður en allt hlutafé félagsins
verði uppurið. A fundi
hreppsnefndar 26. apríl 1989
var samþykkt að hafna
óformlegu erindi frá ÚVH
um ábyrgð á lántöku vegna
lúkningar viðgerðar á Geislan-
um. Þá þegar var ljóst, að
rekstur bátsins var afar
hæpinn og varaði endur-
skoðandi félagsins við áfram-
haldandi rekstri í bréfi til
stjórnar. ,,1 ljósi þessa get ég
ekki fallist á að veita
Verkalýðsfélaginu Hvöt ein-
falda ábyrgð á umræddu
láni, nema gegna öruggum
tryggingum að mati hrepps-
nefndar”, segir Kristján í
bókun sinni.
Frá Bridsfélagi
Sauðárkróks
Sl. mánudagskvöld var
fyrri umferð hjóna- og
parakeppninnar, sem jafn-
framt er hluti af firmakeppni
félagsins. Úrslit kvöldsins
urðu þessi:
1. Feykir 135 stig (Anna K.
Bjarnad./Jónas Birgisson)
2. VÍS 126 stig (Sólrún
Júlíusdóttir/Ólafur Jónsson)
3. KS 122 stig (Svanhildur/
Sveinbjörn Eyjólfsson)
Nk. laugardag 21. mars
verður spilað Svæðismót
Norðurlands vestra í para-
keppni á Sauðárkróki og
hefst spilamennskan kl. 10 í
Bifröst.
Athugasemd
1 hagyrðingaþætti nr. 113
birtist vísa eftir Magnús á
Vöglum. Fyrsta og þriðja
hending er ekki rétt. Vísa
þessi er í ljóðabók Magnúsar
„Eg kem norðan Kjöl” á bls.
38 sem gefin var út árið 1954.
Undirritaður hafði sam-
band við stjómanda þáttarins
ogtjáði honum hvernigvísan
væri rétt kveðin. í þættinum
nr. 115 er vísan leiðrétt að
hálfu leyti. Undirritaður vill
benda stjórnanda hagyrð-
ingaþáttar á þegar vísa er
leiðrétt, að birta vísuna alla í
heild, en ekki eina hendinguna
innan um óbundið mál. Það
er alveg ótækt. En vísa
Magnúsar er rétt svona.
Beisla mátt þinn mun ei
neinn,
meitlaður hátt í steinum.
Þú kveður dátt í dalnum
einn,
dag og nátt í leynum.
Pétur Pálmason.
Kvenfélagið gefur sjúkra-
húsinu sjúkralyftara
Nýlega afhenti stjórn Kven-
félags Sauðárkróks Sjúkra-
húsi Skagfirðinga að gjöf
sjúkralyftara, hjálpartæki sem
auðvelda mjög ummönnun
sjúklinga, svo sem að færa þá
milli stóls og rúms svo dæmi sé
nefnt.
Sjúkralyftarinn kostaði um
400 þúsund krónur með
virðisaukaskatti, sem fékkst
niðurfelldur. Kvenfélagskonur
afla fjár fyrir gjöf sem þessari
á ýmsan hátt, t.d. með því að
ganga í hús fyrir jól og selja
kort og jólapappír.
Flóamenn á faraldsfæti
Segja má að forráðamenn og
starfsmenn fyrirtækja við
Húnaflóa séu á faraldsfæti
þessa dagana. Sveinn Ingólfs-
son framkvæmdastjóri Skag-
strendings er nýkominn úr
hálfsmánaðar ferðalagi til
Nýja-Sjálands og nú í vikunni
hélt til Noregs 20 manna
hópur frá Trésmiðjunni Stíg-
anda á Blönduósi.
Þeir Skagstrendingsmenn
voru að kanna hugsanleg
viðskipti og samstarf við
Nýsjálendinga. Ahugi þar-
lendra á viðskiptum við
íslendinga er mismikill, og
munu Sveinn og menn hans á
næstunni vinna úr þeim
upplýsingum sem aflað var í
ferðinni.
Ferð Stígandamanna er
heitið til Aal, 3500 manna
samfélags, sem er miðja vegu
milli Björgvinjar og Óslóar.
Þeir munu hafa vikudvöl
ytra og m.a. kynna sér iðnað
á þessum slóðum við leiðsögn
heimamanna. Blönduósingarn-
ir eru að endurgjalda heim-
sókn 40 manna hóps sem
kom frá Aal síðasta sumar í
tengslum við kaup Stíganda
á tveim sumarhúsum þaðan.
Finnur vann málið
„Nei, ætli ég láti það ekki
alveg vera að fara og fylgjast
með B-keppninni núna”, sagði
Sigurfinnur Sigurjónsson frá
Sauðárkróki. Hann var- einn
af þeini sem fylgdist nteð leið
íslenska handboltaliðsins að
gullinu í b-keppninni í
Frakklandi fyrir 4 árum.
Reyndar varð endir ferðar-
innar frekar snubbóttur hjá
Finni. Hann fékk mjög
óblíðar viðtökur hjá einum
frönsku öryggisvarðanna við
tilraun til að hlaupa inn á
völlinn og fagna íslenska
liðinu. Finnur þurfti að
leggjast inn á sjúkrahús á
eftir með brotið nef og fleiri
líkamlega áverka.
Mál sem Finnur höfðaði
vegna þessa var tekið fyrir í
frönskum rétti fyrir skömmu.
Lyktir urðu þær að Finni
voru dæmdar 300 þúsund
króna bætur og öryggisvörð-
urinn fékk fjögurra mánaða
fangelsisdóm.