Feykir - 25.11.1992, Qupperneq 1
rafsjá hf
RAFVERKTAKAR
SÉRVERSLUN
MEÐ RAFTÆKI
SÆMUNDARGÖTU 1
SAUÐÁRKRÓKI
Norðurland vestra:
Leitað að gulli á
þremur svæðum
Snyrtileg sorpurðun
Fjölmenni var viðstatt afmæiishátíð í tilefni 100 ára afmælis Sauðárkrókskirkju sl. sunnudag.
Hér eru prestar á leið frá kirkju. Frá hægri talið, Bolli Gústavsson vígslubiskup Hólum, Gísli
Gunnarsson Glaumbæ, Herra Olafur Skúlason biskup Islands, séra Hjálmar Jónsson
sóknarprestur og prófastur Sauðárkróki, Þórir Stephensen fyrrverandi sóknarprestur
Sauðárkróki, Heimir Steinsson fyrrv. sóknarprestur á Þingvöllum nú útvarpsstjóri, Gunnar
Gíslason fyrrv. sóknarprestur Glaumbæ, Olafur Hallgrímsson Mælifelli, Bragi Ingibergsson
Siglufirði, Sigurpáll Óskarsson Hofsósi og Dalla Þórðardóttir Miklabæ. Meira um
afmælishátíðina á 3. síðu blaðsins. Ljósmynd: Stefán Pedersen.
Sauðárkrókur:
Skortur á dagvistar-
rými fer vaxandi
Leit að málmum, aðallega
gulli, hófst hér á landi síðasta
sumar, þar af á þrem svæð-
um hér í kjördæminu: á
Skaga, í Víðidal og Vatnsdaí.
Þá hefur leitarheimilda einn-
ig .verið aflað á svæði við
Tröllaskagann að austan-
verðu. Samkvæmt leitar-
heimildum á frumrann-
sóknum að ljúka á næsta
sumri. Tekin hafa verið sýni
af þessum svæðum og send
til efnagreiningar í Kanada,
en ekki hefur enn borist
niðurstaða úr þeim.
Það er kanadískt fyrirtæki
sent kostar þcssar rannsóknir
hér á landi og sl. suntar unnu
að þeim átta vísindamenn, sex
Kanadamenn og tveir Islend-
ingar. Tvö íslcnsk fyrirtæki
skipta verkcfninu milli sín.
Suðurvík er með suðursvæðið
að Hvítá í Borgarfirði, Vestur-
landið og austur um að Eyja-
fjarðardölum. Málmís er með
Þegar heilbrigðisfulltrúi kjör-
dæmisins og maður frá um-
hverfisráðuneytinu voru að
kynna sér ástand sorpmála á
Blönduósi á dögnum, héldu
þeir í fyrstu að ekki væri
búið að taka urðunarsvæðið
við bæinn Hjaltabakka í
notkun, svo snyrtilega er
gengið um svæðið. Dómur
fulltrúanna var á þá Ieiö að
sorpeyðingarmál Blönduós-
inga væru til fyrirmyndar og
þau gerðust ekki betri á
stöðum utan höfuðborgar-
svæðisins.
Blönduósbær tók fyrir um
ári á lcigu cinn hektara úr landi
Hjaltabakka. Svæðið er um
700 mctra frá næstu byggð og
norðursvæðið að Hvítá í
Borgarfirði og Vestfirðina.
Omar Bjarki Smárason hjá
Jarðfræðistofunni Höfða í
Reykjavík hefur yfirstjóm rann-
sóknanna hér á landi. Hann
segir málmleitina byggjast að
mestu leyti á gömlu háhita-
hugmyndinni, um að málm-
myndun eigi sér staö þar sem
jarðhiti hafi kraumað lengi, því
beinist leitin í göntlu megin-
eldstöðvamar á landinu.
„Hvorki við né kanadíska
fyrirtækið værum að þessu ef
við teldum ekki einhverja
mögulcika á að finna málma.
Það er alltaf verið að leita að
nýjum svæðum. Hinsvegareru
líkur á árangri út úr svona
málmleit ekki miklar. Til
dæmis í öllu Kanada eru lík-
urnar fyrir því að vinnslusvæði
finnist ekki taldar vera nema
einn á nióti ellcfu hundruð'*,
sagði Ómar Bjarki Smárason.
það heppilegt til skipulagn-
ingar að sögn Guðbjarts
Ólafssonar bæjartæknifræð-
ings sem tók að sér skipulag
svæðisins. Skipulagið gerir ráð
fyrir eftirtöldum þáttum: 1.
gámasvæði utan læstrar girð-
ingar, 2. móttöku á sorpi, 3.
móttöku á brotajámi, 4. endur-
vinnslu, 5. móttöku á garða-
úrgangi. Hugmyndin er síðan
að nýta garðaúrganginn til að
græða og fegra svæðið.
Þessum áætlunum verður
ekki hrint í framkvæmd í einu,
heldur þróaðar smám saman.
Byrjað er að taka á móti brota-
málmi, sem er pressaður og
flokkaður til endurvinnslu.
Talsverðar umræður urðu
um dagvístunarmál á bæjar-
stjórnarfundi nýlega. Undr-
uðust einstakir bæjarfull-
trúar að upplýsingar um
þessa þróun dagvistarmála
kæmi svo skyndilega fram,
hvort ekki væri hægt að
fylgjast betur með þessum
málum til að fyrirbyggja að
svona ástand skapaðist.
Snorri Björn Sigurðsson
bæjarstjóri sagði að það hefði
sýnt sig við upphaf skólaárs að
þónokkuð margir krakkar
kæmu til nánts í grunnskól-
anum sem ekki hefði verið
reiknað með. Fólksflutningar
til bæjarins virtust hafa verið
talsverðir á þessu ári og það
kæmi sér ekki á óvart að fólki
hefði fjölgað talsvert í bænum
á árinu. Varðandi úrbætur í
dagvistunarmálum bað bæjar-
stjóri bæjarfulltrúa að gæta að
heildarútgjöldum bæjarins og
framkvæmdum, ekki væri
hægt að gera allt í einu og
óskir bæjarbúa væru margar.
T.d. sagði Snorri að margir
vildu ráðast í stækkun íþrótta-
hússins. Anna Kristín bæjar-
fulltrúi G-listans sagði að
málefni bama ættu að hafa for-
gang fram yfir tómstundamál
fullorðinna.
Lágheiði mokuð
meðan tíð leyfir
Utlit er fyrir að veginum
um Lágheiði milli Fljóta
og Ólafsfjarðar verði haldið
opnum a.m.k. meðan tíð
leyfir. Vegagerð ríkisins
hefur tekið þá ákvörðun
að moka veginn yfir heið-
ina einu sinni í viku ef útlit
er fyrir að moksturinn
taki ekki meira en 10
klukkustundir.
Þarna er um jákvæða
vióleitni hjá því opinbera að
ræða til að auðvelda sam-
göngur á þessum árstíma
rnilli byggðarlaganna næst
heiðinni. Þess má að lokum
geta aó búið er að moka
heióina tvívegis til þcssa í
vetur, vegagerðin fylgist
með færð á Lágheiði alla
daga vikunnar ncma sunnu-
daga. Ö.Þ.
HCTch?iii u\>— Aðalgötu 24 Sauðárkróki ALMENN RAFVERKTAKAÞJÓNUSTA SfMftbílaverkstæði
Æ M mm rn Sími: 95-35141
FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA Sæmundargata Ib 550 SauSárkrókur Fax: 36140
BÍLA- OG SKIPARAFMAGN VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA Bílaviðgerðir • Hjólbarðaverkstæði
SÍMI: 95-35519 • BÍLASÍMI: 985-31419 • FAX: 95-36019 RÉTTINGAR • SPRAUTUN