Feykir


Feykir - 16.12.1992, Side 15

Feykir - 16.12.1992, Side 15
44/1992 FEYKIR 15 allra fyrstir á miðin. Við höfóum þá aðferó að vefja bólstrengnum einn vafning um stcfni bátsins, og með því vorum við lausir eins og hendi væri veifað, þegar bússið var gefið. Það var mitt starf að halda um endann. Var ekki laust við að ég fyndi nokkuð til mín að hafa þessa ábyrgðar- stöðu. En karlamir voru ekki á sama máli, sögðu að liðlétt- ingar í ilotanum gcrðu þctta ævinlega. Næst er að segja frá þcini róðrum sem gerðust sögulegir á línuvertíðinni. Fjöru-Þór, sem svo var kallaður, var cftirlits- og hjálparskip Vest- mannaeyja að vetrinum og var ávallt til taks þegar mcð þurfti. Þcssa nótt lá hann við festar á ytri höfninni með fremur daufum ljósum á aftur- og framstögum. Eins og áður fórum við fram úr hverjum bátnum af öðrum, og Hannes taldi sig vera að draga tvo báta uppi og fór með mikilli ferð á mitt varðskipið. Hinsvegar sló formaðurinn af ferðinni strax og liann sá hvað verða vildi. Annars hefði farið verr. A sömu stundu kallar vaktmaðurinn frá skipinu og spyr, hvort við séurn brjálaðir, og Hanncs verður fyrir svörum og segir honum að halda kjafti, „við eigum sjóinn eins og þið“. Síðan er bakkað og sett á sömu stefnu og með fullri ferð. Eg húkti fyrir aftan stýrishús, því ég gat ómögulega haldist við í lúkarnum fyrir ýldulykt, sem ætíð gaus upp þegar bátuinn var á hreyfingu. Margt gerist á þessu augnabliki. Mennirnir koma æðandi fram úr mannaplássi og kalla hástöfúm, að sjórinn fossi niður í lúkarinn, því það sér stór rifa á bakkanum. Vélstjórinn fer að gá að þessu og sér að hálftommu breið rifa er frá stcfni og aftur að kappa. Gamli maðurinn hefur snör handtök, sækir karbitalugtina og poka- druslur, sem hann lemur í rifuna. Lætur hann þess getið að ekki sé hyggilegt að fara fulla fcrð á móti stormi og straumkviku, eins og nú sé ástatt. En áfram er haldið eins og ekkert hafi í skorist. Það var landnorðan gjóstur þennan dag og fór heldur hvessandi cr á leið, svo að margt fór úrskeiðis hjá okkur. Veiðieðlið var mann- vitinu sterkara Sá guli illa útsofinn, tók bcituna dræmt og fyrir það misstum við marga er voru víst frclsinu fegnir. Einu sinni flaut stór þorskur aftur mcó síðunni og þá tók Hannes formaður langa gogginn mcð mikilli veiðigleði og hugðist fanga skepnuna, sem óðfluga dreif frá. En veiðibræðin var mannvitinu sterkari, svo að hann hraut með öllum líkams- þunga með kviðarholið ofan á hástokkinn og hreyfði sig ekki þaðan, fyrr en vélstjórinn rétti honum hjálparhönd og leiddi hann til sætis. Enginn okkar vissi að Hannes hafði verið skorinn holskurð sumariö áður, nema Guðmundur vélstjóri og það að sárið hafóist illa við og vildi ekki gróa. Nú sem Hanncs situr í hrauknum hreyfingarlaus og mælir ekki oró af vöruni, gengur Guömundur stjórnmál til hans og segir: „Alveg er ég gáttaður að þú skulir róa svona sár- lasinn". Hannes svaraði því til að fáir myndu gcra það í sínum sporum. Vissulcga voru þetta sannmæli því cngan mann hef ég þekkt svo óvæginn við bæði sjálfa sig og aðra. Nú flaug það eins og ör í gegnum minn haus, að kannski yrði það ég, sem fleygði Hannesi í land, en hann ckki mér fyrir borð, cins og spáó var. Allir höfðu nóg að gera og ég var blóðugur upp á haus við að veita þorskinum nábjarg- irnar. A línuvcrtíðinni var oftast komið að klukkan fjögur til fimrn á daginn og menn voru oftast lausir frá störfum klukkan sex til sjö. Var þá ævinlega borðaður mikill og góöur matur. Annars höfðum við með okkur á sjóinn nokkrar sam- lokur af brauði, og kaffi var hitað um borð. Þctta varó að duga hversu lengi sem vió vorum. Jöri ræstur en ekki Bjarni Næsti dagur gekk í það að gera bátinn sjófæran, sem látið var duga vertíðina á enda, þó að ekki væri nema hrákasmíði. Ekki minnist ég þess að ég færi út að skemmta mér meðan á vertíð stóð, af hræðslu við að eitthvað óhapp kænii fyrir og þá fengi Hannes átyllu til þess að reka mig. I þá daga notaði ég ekki tóbak og því síður sterkar veigar. Þegar formað- urinn þrammaði upp tröppur- nar á Þinghól til að vekja, var ég ævinlega vaknaður. Ekki vissi ég hvemig á því stóð, en í þau fáu skipti sem ekki var róið, svaf ég fram á dag án þess að rurnska. Nú verð ég að segja frá því þcgar formaðurinn kom til að ræsa. Þá kallaði hann ætíð á Jöra, sem hann nefndi svo, cn ekki á mig. Það ótrúlcga gerðist að þcgar Jörundur lá á spítala í þrjár vikur og ég var cinn í hcrbcrginu, kallaði liann í hvert skipti á Jöra cn ckki Bjarna. Húsbændurnir hlógu dátt þegar ég sagði þcim þcnnan brandara við kvöld- borðið. I endaða línuvertíð vorum við cinskipa á sjónum og lögðurn línuna í versta vcðri, sem ágcrðist því meir scm birti af dcgi. Vió lágum ekkcrt yfir, heldur byrjuðum línu- dráttinn strax og búið var að henda baujunni. Það gekk æði bögsuglega, því að við rifum og slitum, þar til séð var að ckki réðist við neitt, svo að öllum drætti var sjálfhætt, enda hávaða rok og hafsjór. Heitið á heilagan Þorlák Allan daginn vorum við að berja heim undir Eyjar. En vcl stýrði Hannes, því ekki fengum við brot á allri leiðinni, scm heitið gat. Komið var á ytri höfnina í rökkurbyrjun og sýnilegt að flaggið á Skans- inum sýndi ófært inn leguna. Ekki brá Hannesi við það, heldur sló af ferðinni og lét einn öldufald fleygja okkur inn fyrir garðana, án þess að neinn sakaói. Einhver sekt var vió þéssu lögbroti. Mig minnir þúsund krónur sem gengu til hafnarsjóðs. Guðmundur Gunnarsson vélstjóri var mikill vinur minn. því að hann vildi mér vel í öllu og ég trúði á hann í smáu og stóru. Eg vissi líka að hann gat ráðið fcrð okkar á sjónurn og þess utan cf svo bar við. Enginn réði við Gvend stjórn- mál ef í það fór. Nú var það eitt sinn aó Hannes kom til að vekja Jöra, þó að hann vissi af honum á spítala og ntig cinan í herberginu. Eg hafói lítið sofið það kvöld vegna mikillar tannpínu í jaxli og var því illa fyrir kallaður að fara á sjóinn í misjöfnu vcðri, cn þorði ckki aó ncita kalli. Eg klæói mig í skyndi og hlcyp niður Kirkju- vcg, næ Gvendi stjórnmál og segi honum raunir mínar. Hann segir mér að ég skuli bara snúa við, því að ég hafi löglcg forföll og aó hann skuli tala rnáli mínu við for- manninn, svo að hann skilji. Ekki var ég ánægður með þau málalok og hcld áfrarn að strögla og bið hann að taka þcnnan bikar frá mér á annan hátt. Þá segir Gvendun Heyrðu, þá skulum vió bara heita á heilagan Þorlák að ckki vcrði róið í nótt“. Tjaldinum verður ekki róið með árum Við höldum ferð okkar áfram niður að fiskihúsi, þar scm Hanncs stcndur tygjaður fyrir dyrum úti ásamt mönnum sínum. Gvendur kastar kveðju á karlana og spyr, hvort eigi að róa í þessu útliti. „Við skulum skoða hann“, scgir Hannes. „Jæja þá verður þú að útvega vélstjóra í niinn stað. Ég er illa fyrir kallaður með tannpínu og hef ekkert sofið, fer ekki á sjó í dag”, sagöi Gvendur og gengur snúðugt á leið heim. Svo mörg voru þau orð, sem verkuðu á Hannes cins og raflost. Því næst segir formaðurinn mcð miklum þjósti: „Tjaldinunt verðurckki róið með árum, farið heim í bælin'1. Daginn eftirdró Páll Kolka læknir jaxl úr Bjarna cn ekki Gvendi. 8. mars hentum við öngladraslinu í land og bjugg- um okkur út á þorkancta- vciðar, sem og allir gerðu um þær mundir, er útveg höfðu. Það var virkilegur fagnaðar- dagur fyrir mig og að vísu alla, sem tóku þátt í þessu næturgaufi og myrkraverkum á línuvertíðinni. Við vorum fullan dag að bjástra í nctum og því sem þcini fylgdi. Þá gátum vió sem sjaldan skcói QAMLÍ BONUSINN AUQLYSIR! Búðin er full afvörum en sþringur ekkí. y Mikið úrvaL affatnaði gjafavörum, leikföngum, herrasnyrtivörum og m. fl. y Ódýrir jóladúkar VERIÐ VELKOMIN! VERSLUN HARALDAR JÚLÍUSSONAR

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.