Feykir


Feykir - 16.12.1992, Qupperneq 20

Feykir - 16.12.1992, Qupperneq 20
20 FEYKIR 44/1992 Hvenær kemur jólaskapið? Það er mjög misjafnt hjá hverjum og einum. Sumir komast í jólaskap strax fyrsta desember, aðrir við jólaundirbúninginn og enn aðrir fá aldrei jólaskapið. Helst eru það börnin sem hugsa unt jólin. Mjög oft telja þau dagana til jóla. Sumir hafa stór kerti með tölustöfum frá einunt og upp í tuttugu og fjóra og það kemur sérstakur hátíð- arblær þcgar kveikt er á kertinu. Þá eru líka jóladagatöl þar sem einn gluggi er opnaður á dag. Svo hugsa þau um hvernig jólin veröa og hvað þau fái í jólagjöf. Hjá mér kemur jólaskapið þegar aðventu- kvöldið er í kirkjunni, þar sem leikinn er helgi- leikur og sungin jólalög og sálmar. Síðan eru það jólakortin sem þarf að skrifa, þá er hlustað á jólalög. Eða þegar piparkökumar eru bakaðar og skreyttar, þá er líka hlustað á jólalög og haft kertaljós og rifjað upp frá liðnum jólum, og þá segja mamma og pabbi okkur líka hvernig jólin voru þegar þau voru lítil. Að hugsa sér, þau fengu ekki epli og appelsínur nema á jólunum. Það getur einnig verið gaman í skólanum síðustu dagana fyrir jólafríið. Þá leyfa kenn- ararnir okkur að hlusta á jólalög í tíma á meðan við emm aó læra. Við lögðum fyrir hann þraut sem var að borða jólagraut. Á morgun eru jól. Börnin fara fljótt í ból, fara snemma á ról og Ijóma eins og sól. Við hengdum upp jólaskraut þar sem jólasveinninn hraut. Sólveig Lára Árnadóttir ncmandi í Laugarbakkaskóla. JOLATILBOÐ RADÍÓBÚÐARINNAR •Sjónvörp 14, 20, 29 tommu Verð frá kr. 28.900 stgr. • 180 mínjmyndbönd óátekin kr. 358 Qott úrval af: •BRAUN heimilistœU.jumJ Einnig: • Djúpsteikningarþottar • Samlokugrill •Vöfflujám og margt, margt fleira íf'- j*.. * * * ^ ^ KAUPVANGSTORGI 1 SÍMAR 36789-35132 *Agætu viðskíptavínir. Starfsfólk matvörubúðarinnar óskar ykkur gleðilegra jóla og þakkar ykkur viðskiptin á árinu sem er að líða. Opið verður eins og venjulega yfir hátíðarnar nema: •19.12 til kl. 22.00 •23.12 til kl. 23.00 •24.12 til kl. 13.00 'MATVÖRUBÚÐIN* Það ætti að birta yfir forráðamönnum Blönduósbæjar við það, að svo virðist sem stefni í að brimvarnargaðurinn verði staðreynd áður en langt um líður. Viggó Brynjólfsson á Skagaströnd: Með langlægsta tilboð í brimvörn á Blönduósi „Ég hef enga ástæðu til að ætla annað en tilboði Viggós verði tekið. Þeir hjá Hafnar- málastofnun hafa yfirfarið tilboðið og ekki fundið neina skekkju í því. Við erum mjög ánægðir með að hafa fengið svo hagstætt tilboð. Þetta er langlægsta tilboðið og einnig hagstætt að það skuli koma frá nágrönnum okkar”, segir Ófeigur Gestsson bæjar- stjóri á Blönduósi, en Viggó Brynjólfsson á Skagaströnd var með langlægsta tilboðið í gerð brimvarnargarðs á Blönduósi, en tilboð voru opnuð í síðustu viku á sama tíma og kunngert var að fjárlög gerðu ráð fyrir 50 milljónum til gerðar brim- varnargarðsins á næsta ári. Átta tilboð bárust og fólu þau í sér tvo kosti, þann ódýrari að flytja efnið úr námum í landi Ennis í Engi- hlíðarhreppi og Uppsala í Sveinsstaðahreppi og dýrari kosturinn var að efniö yrði eingöngu tekið úr landi Uppsala. Viggó Brynjólfsson bauð 114,2 milljónir og 142 milljónir. Steypustöð Blönduóss og Borgarverk buðu 199,2 og 211,6 milljónir. Klæðning hf 147,3 og 166,8, Krafttak 124,9 og 138,9, Suðurverk 142,4 og 154,6, Ræktunarsamband Flóa- og Skeiða 128,9 og 158,1, ístak 186,7 og 191,7, Hagvirki/Klettur 196,3 og 208,9 milljónir. Kostnaðaráætlun nam um 190 milljónum. Framkvæmdir verða kostaðar að 75% af ríkinu og 25% af Blönduósbæ. Eins og áður segir gera óafgreidd fjárlög ráð fyrir 50 milljónum til gcrðar brimvarnargarðsins á næsta ári, en í ár var voru veittar 20 milljónir af fjárlögum. „Jú þaó stefnir í að langþráður draum- ur okkar sé að rætast”, sagði Ofeigur bæjarstjóri á Blönduósi. 2% ». *; M f .1* .¥* #> «r* Sveitungum og öllum þeim fjölmörgu sem veittu okkur ómetanlega aðstoð á síðastliðnu hausti, óskum við Gleðilegra jóla og og gœfuríks komandi árs lifið heil. Hulda, Halla, Sigrún og Sigurður á Skúfsstöðum

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.