Feykir - 28.04.1993, Blaðsíða 3
15/1993 FEYKIR3
Söngfólk frá Hvammstanga á kóramótinu á Laugarbakka.
Kirkjukóramót á
Laugarbakka
Um næstsíðustu helgi var
haldið á Laugarbakka í Mið-
firði kirkjukóramót kirkju-
kóra í Húnavatnsprófasts-
dæmi. Talið er að um 120-
130 manns hafi komið saman
til söngs í þessum söngbúð-
um og u.þ.b. 110 manns hafi
sungið í sameinuðum kór
sem myndaður var af kór-
fólki úr 10 kórum af svæðinu,
en í Húnavatnsprófastsdæmi
eru báðar Húnavatnssýslur
og öll Strandasýsla. Gestur
mótsins var Haukur Guð-
laugsson söngmálastjóri og
var hann mikill aufúsugestur
og tók virkan þátt í mótinu
með aðstoð og undirleik.
Undirbúingur að mótinu var
í höndum nefndar sem skipuð
var til að endurvekja Kirkju-
kórasamband Húnavatnspró-
fastsdæmis (KÓSHÚN) en það
hefur verið óvirkt í meira en
áratug, og ekki verið samsöng-
ur á þess vegum í svipaðri
mynd og nú síðan 1982. Var
mat nefndarinnar að virkasta
lciðin til að cndurvekja sam-
bandið væri að boða til sam-
söngs kóra prófastsdæmisins.
A laugardagskvöld var hald-
ið skemmtikvöld og komu þátt-
takendur með ýmislegt efni til
flutnings. Sérstakir gestir kvölds-
ins voru meðlimir söngsveitar-
innar Sólarmegin á Akranesi
og flutti hún nokkur lög við
mikla hrifningu og góðar und-
irtektir viðstaddra. A sunnu-
dagsmorgun var svo samveru-
stund í Hvammstangakirkju og
seinna um daginn var flutt það
efni sem æft var á mótinu.
Hófst sú dagskrá með flutingi
sérverkefna flestra kóra á
svæðinu og síðan var flutt þýsk
messa eftir Franz Schubert í ís-
lenskri þýóingu Sverris Páls-
sonar. Kaffisamsæti var í fé-
lagsheimilinu á vegum kvenfé-
lagsins þegar mótinu lauk.
Karli Sigurgeirssyni Hvantms-
tanga var sérstaklega þakkað
óeigingjamt starf við undirbún-
ing kóramótsins. Með honum í
undirbúningsnefnd voru Helgi
S. Ólafsson Hvammstanga,
Anna Sigurjónsdóttir Sntára-
gili, Aðalheiður Ingvarsdóttir
Hólabaki og Sigrún Grímsdótt-
ir Saurbæ. I stjóm nýendurvak-
ins kórasambands voru kosin
auk Karls og Önnu: Vilhjálmur
Pálmason Blönduósi, Birna
Richardsdóttir Hólmavík, Ast-
ríður Erlendsdóttir Hvammi og
Guðný Þorstcinsdóttir Borð-
eyri. EA.
Kaupfélag Skagfirðinga:
Afkoma verkstæða
batnaði í fyrra
Útkoma einstakra deilda KS
var í heildina mjög svipuð á
síðasta ári og árið á undan.
Verkstæðin komu þó betur
út og hefur þar tekist að snúa
tapi í hagnað. Hagnaður var
á rekstri Mjólkursamlags
Skagfirðinga upp á 7,9 millj-
ónir en 16,5 milljóna tap á
rekstri sláturhússins.
Þetta voru einu niðurstöðu-
tölur sem gefnar vom upp á að-
alfundinum, ekki var frekar
farið í útkomu einstakra deilda
í iðnaói og verslun og er það að
sögn kaupfélagsstjóra, vegna
þeirra breytinga sem gerðar
hafa verið í sambandi við bók-
hald og uppgjörsmál hjá félag-
inu. „Þetta erekki sambærilegt
lengur. Þegar söntu forsendur
em ekki lagðar til gmndvallar,
þá cr beinlínis villandi að gefa
upp einhverjar tölur á milli
ára'1, segir Þórólfur Gíslason
kaupfélagsstjóri, en sagði þó
að útkoman úr versluninni væri
mjög svipuð á milli ára.
Þriðja vaktin í augsýn í
Steinullarverksmiðjunni
Stjórn Atvinnuleysistrygg-
ingasjóðs samþykkti nýlega
að veita Steinullarverksmiðj-
unni heimild fyrir sjö störf-
um í hálft ár, enda nemi
greiðslur sjóðsins til viðkom-
andi starfsmanna sömu upp-
hæð og þeir ella hefðu fengið
greiddar í atvinnuleysisbæt-
ur. Ef Sighvatur Björgvins-
son ráðherra tryggingarmála
veitir samþykki sitt fyrir
þessari ákvörðun stjórnar
sjóðsins, verður á næstunni
tekin upp þriðja vaktin í
Steinullarverksmiðjunni, en
hún var lögð niður fyrir tæp-
um tveim árum, vegna sam-
dráttar í sölu og framleiðslu
steinullar.
Að sögn Einars Einarssonar
framkvæmdastjóra Steinullar-
verksmiðjunnar mun þessi
væntanlega úthlutun atvinnu-
leysistryggingasjóðs flýta fyr-
ir því að þriðja vaktin verði
reynd að nýju og bætt sjö nýj-
um störfum við þau rúmlega
30 sem eru í verksmiðjunni í
dag. Að sögn Einars er sala
steinullar á innanlandsmarkaði
fyrstu fjóra mánuði ársins
nokkuð í takt við það sem byggingariðnaður krefst og
reiknað var með. Forráðamenn standa vonir til aó útflutningur
verksmiðjunnar vonast hins- Steinullarverksmiðjunnar til
vegar eftir að útflutningur auk- Þýskalands á þessu ári nemi 7 -
ist talsvert á þessu ári, og þar 800 tonnum. Ef þessar vænt-
komi inn nýr markaður í ingar ganga eftir er reiknað
Þýskalandi. Þýsk yfirvöld votta meó að þriggja vakta kerfið
að íslcnska steinullin standist festi sig í sessi í Steinullarverk-
þær gæðakröfur sem þarlendur smiðjunni.
Olga Sigurbjörg Jónsdóttír Gýgjarhóli Skagafirði
nú til heimilis að Kvistahlíð 7 Sauóárkróki verður 90 ára
þann 2. maí n.k. Hún tekur á móti gestum á afmælis-
daginn milli kl. 15 og 17 í félagsheimilinu Melsgili í
Staóarhreppi.
Hugheilar þakkir til allra þeirra sem heim-
sóttum mig og gerðu mér 70. afmœlisdag minn,
23. apríl s.l., ógleymanlegan.
Haraldur Hermannsson frá Ysta - Mói.
Alþýðulist!
Áhugahópur um alþýóulist heldur sýningu á handverki
á Löngumýri laugardaginn 1. maí frá kl. 13 - 18. Mjög
áhugaverð sýning fyrir þá sem hafa áhuga á listiðnaði og
handverki. Heitt verður á könnunni.
Okeypis kvikmyndasýning
Verstöðin ísland
Fiskiðjan og Skagfirðingur hf.
bjóða Skagfirðingum til kvikmyndasýningar í
Bifröst laugardaginn 1. maí. Myndin er ný
og er fjórir sjálfstæðir hlutar með hléi á milli.
Dagskrá:
Kl. 14,00. Upphaf sjávarútvegs á íslandi.
Kl. 15,00. Hlé.
Kl. 15,15. Bygging nýs lands 1920 - 1950
Kl. 16,15. Hlé.
Kl. 16,25. Baráttan um fiskinn 1950 - 1990
Kl. 17,25. Hlé.
Kl. 17,40. Ár í útgerö (73 mínútur)
Mynd þessi er fróðleg og skemmtileg fyrir alla sem hafa
áhuga á sjávarútvegi og sögu íslensku þjóðarinnar.
Allir Skagfirðingar eru hvattir til að mæta,
á einstaka hluta eða alla myndina.