Feykir - 28.04.1993, Blaðsíða 7
15/1993 FEYKIR7
fyrstu sporin, síðan voru þær á
dagheimilinu saman. Ég man alltaf
eftir sumardeginum fyrsta, er þær
fimm ára hnátur sungu, ásamt öðr-
um bömum af dagheimilinu uppi á
sviói í Bifröst. Þá stóöu þær þrjár
saman Kristín Þöll, Hrabba og
frænka Hröbbu hún Kristín Björg
og sungu þær þrjár af þvílíkri inn-
lifun að unun var að horfa á þær.
Við mömmumar vorum svo ósköp
stoltar af dætrum okkar.
011 barnaafmælin heima á
Oldustíg og alltaf dáðist ég að því
hvað Hrabba var stillt og prúð,
mcð sitt blíða bros og bláu fallegu
augun sín.
Þær uxu úr grasi stelpumar
okkar, fermdust hér í Sauðárkróks-
kirkju og allt í einu voru þær orðn-
ar fullorðnar, að þeirra mati, og
alltaf hélst vinskapurinn þótt vík
væri milli vina og Hrabba farin til
útlanda. Þá var Hrabba alltaf sama
trygglynda vinkonan, skrifaði löng
og skemmtileg bréf heim til vin-
konu sinnar. Svo kom Hrabba
heim og þá var nú gleðin mikil,
spjallað og hlegið fram á nætur.
Síðan hafa þær vinkonur verið
óaðskiljanlegar.
Síðastliðió haust leigðu þær
stöllur sér íbúð saman á Akureyri
og fóru báðar í nám í Verkmennta-
skólanum á Akureyri. Mikil var
tilhlökkunin og spenningurinn að
búa tvær einar saman. Ég minnist
þess er við hjónin fluttum Kristínu
norður. Hrabba var komin á undan
og tók á móti okkur með sínu Ijúfa
brosi og bauð upp á kaffi. Hún var
búin að koma öllu fyrir og kerta-
ljós logaði og allt var svo notalegt.
Okkur hjónunum leið vel þegar
við ókum aftur heim, við vissum
að dóttir okkar var í góðum hönd-
um, þar sem hún var með Hröbbu.
Þær voru svo ólíkar vinkonum-
ar. Kristín dökk á brún og brá , en
Hrabba bjarthærð og bláeyg.
Hrabba alltaf róleg og yfirveguð
en hin fjörmikil og hávaðasöm.
Þær voru eins og nótt og dagur,
svo ólíkar voru þær, en aldrei hef
ég séð fallegri vináttu en þeirra.
Hrabba laðaði alla að sér með
sínu blíða brosi og fallega viðmóti.
Hún var góður nemandi, átti létt
með að læra og allt lék í höndum
hennar. Hann er sár söknuóurinn
hjá skólasystkinum hennar og
kennurum á Akureyri.
Eg gleymi aldrei síðasta laug-
ardagskvöldi, þegar Hrabba birtist
hér í forstofunni, það geislaði af
henni fegurðin og þau fóru hlæj-
andi út, félagamir fjórir og ég elti
þau út að dyrum og hugsaði, mik-
ið á dóttir mín gott að eiga svona
góða vinkonu.
Það er mikill harmur kveóinn í
svona litlu bæjarfélagi eins og
Sauðárkrókur er, þegar ungt og
efnilegt fólk fellur svona snögg-
lega frá, og allir eru felmtri slegn-
ir, vinimir, ættingjamir og skólafé-
lagarnir sem alltaf héldu svo vel
hópinn.
Við hjónin þökkum guði fyrir
að dóttir okkar átti svona góða
vinkonu og að við fengum að njóta
Hröbbu, bara svo allt of stutt, en
vió geymum í hjarta okkar minn-
ingu sem yljar okkur öllum á
ókomnum árum. Við viljum senda
öllum ættingjum hennar innileg-
ustu samúðarkveójur. Anna og
Gummi, og Kidda mín og Hjalti, ég
vona aó bjarta brosið hennar
Hröbbu okkar megi lýsa ykkur
leiðina út úr myrkrinu, sem byrgir
okkur sýn núna.
Þegar þú ert sorgmœddur, skoð-
aðu þá aftur huga þinn og þú
munt sjá, að þú grœlur yfir því,
sem var gleði þín.
Kahil Gibram.
Megi hún Hrabba hvíla í Guós
friði.
Lilla, Þór og Kristín Þöll.
Ég mun aldrei gleyma þeim
degi þegar góður vinur minn
hringdi í mig og sagói mér lát
Hrafnhildar.
Ég hef aldrei kynnst jafn fal-
legri og góðri stelpu. Hún var svo
Utboð
Sjúkrahús Skagfiróinga á Sauóárkróki óskar eftir
tilboóum í endumýjun hluta glugga í sjúkrahúsinu á
Sauðárhæóum.
Útboðsgögn veróa afhent á skrifstofu frantkvæmda-
stjóra, gegn 7.000 króna skilatryggingu frá og meö
fimmtudeginum 29. apríl 1993.
Tilboósfrestur er til 11. maí 1993 og verklok áætluó
20. september 1993.
F. h. Sjúkrahúss Skagfirðinga
Birgir Gunnarsson framkvæmdastjóri.
björt og lífsglöð. Ég á alltaf eftir
að minnast stundanna sem við átt-
um saman. Við gátum alltaf talað
saman um allt milli himins og
jarðar. Hún kenndi mér svo margt
um lífið. Það var afar skemmtileg
lífsreynsla að vera með henni.
Mér þykir það svo sárt að hún
hafi skilið við okkur svona
snemma. Hún talaði svo oft um
það sem hún ætlaði að gera í
framtíðinni. Það er óskaplega erfitt
að sætta sig við þetta og geta
aldrei framar sagt henni hvað mér
þótti vænt um hana. En eitt er víst
að hún mun alltaf eiga sérstakan
stað í hjarta mínu og ég á aldrei
eftir að gleyma henni. Ég veit
henni líður vel þar sem hún er.
Fjölskyldu Hrafnhildar, ættingum
og vinum votta ég mína dýpstu
samúð. Blessuð sé minning henn-
ar. Erik.
„Hún Hrabba dó í bílslysi í
nótt". Fréttin sló okkur, það var
eins og hnífur væri rekinn í hjarta-
stað. Hví var ung stúlka í blóma
lífsins hrifinn burt frá fjölskyldu
og vinum? Var þetta tilviljun ein
eða var þetta allt fyrirfram ákveð-
ið“. Þessar spumingar koma upp í
hugann hjá okkur, skólafélögum
hennar, sem skiljum ekki hvers
vegna hún var tekin burt svo
snögglega.
Hrafnhildur var mjög þroskuó
stúlka, friðarsinni, kom fram viö
aðra eins og hún vildi að komið
væri fram við sig og undir rólegu
yfirborði bjó eitthvaó annað og
meira. Þó henni hafi fundist heim-
urinn oft grimmur þá leit hún
framtíðina alltaf björtum augum
og ætlaði sér svo margt.
Við sem sitjum eftir söknum
hennar sárt og trúum því að hún sé
á góðum stað og geti þar nýtt hæfi-
leika sína.
Atvinna, menntun, framtíð
Ráðstefna um nýja sókn í atvinnumálum Skagafjarðar verður
haldin í Safnahúsinu á Sauðárkróki sunnudaginn 2. maí n.k.
og hefst kl. 14,00.
Dagskrá:
Setningarávarp: Þórólfur Gíslason kaupfélagsstjóri.
Æðri menntun á landsbyggðinni og atvinnulífíð: Þórólfur Þórlindsson
prófessor.
Mikilvægi landbúnaðar í atvinnulífí Skagafjarðar: Guðbrandur Þorkell
Guóbrandsson.
Möguleikar lífeyrissjóða í atvinnurekstri: Jón S. Karlsson formaóur vmf. Fram.
Þróunarstarf ísl. sjávarafurða h.f. og möguleikar á frekari úrvinnslu í
sjávarútvegi: Guðbrandur Sigurósson forstöðumaóur Þróunarseturs I.S.
Framtíðarmöguleikar í iðnaði: Kristján Björn Garóarsson iónráógjafi í
Noróurlandi vestra.
Dreifíng opinberra stofnana um landið og möguleikar Skagafjarðar:
Magnús H. Sigurjónsson framkvæmdastjóri Héraósnefndar Skagafjaróar.
Lokaávarp: Snorri Bjöm Sigurðsson bæjarstjóri á Sauðárkróki.
Ráðstefnustjóri: Þórólfur Gíslason kaupfélagsstjóri.
Allir eru velkomnir á ráóstefnuna og í boói veróa ókeypis veitingar.
Skagfiróingar eru hvattir til aó fjölmenna. „ ,, , ,,
ö Bæjarstjorn Sauðarkroks
Verkamannafélagið Fram
Kaupfélag Skagfírðinga.
Við vottum fjölskyldu hennar
og öðrum aðstandendum okkar
dýpstu samúð. Hún lifir í hjörtum
okkar.
Dauði þinn breytti hjarta mínu
í hvíta marmarahöll
þakta speglum að innan
sorgin stendur á miðju gólfi
Ijómi hennar speglasl í þeim öll-
sem fullur máni
er speglar andlit sitt
í bláum vötnum.
(Ragnheiður Ofeigsdóttir)
Skólafélagar af mynd- og
handmcnntabraut Verkmennta-
skólans á Akureyri.
Laugardaginn 24. apríl, var
jarðsungin frá Sauðárkrókskirkju
elskuleg frænka okkar, Hrafnhild-
ur Jónsdóttir, sem lést í hörmulegu
bílslysi hinn 18. apríl sl.
Okkur langar aó þakka fyrir
allar ljúfu stundirnar sem við átt-
um með þér og í hugum okkar eru
aðeins til fallegar myndir um þig
elsku frænka.
Ekki hvarflaói að mér að sam-
vcrustundirnar um síðustu páska
yrðu þær síðustu sem vió ættum
saman. En vegir Guðs eru órann-
sakanlegir. Elsku frænka. Með
þessum fátæklegu orðum kveðjum
við þig í hinsta sinn. Guó blessi
þig.
Elsku Anna, Gummi, Hjalti,
Kristín, Kalli litli, mamma, pabbi
og aðrir aóstandendur, okkar inni-
legustu samúðarkveðjur. Guð
styrki ykkur öll í þessari miklu
sorg.
Svava, Jónas og fjölskylda.
Hvolfar fást gefins!
S vartir labradorhvolpar fást gefins.
Faðirinnn er af hreinu kyni og
móðirin að hálfu. Hringið í síma
12695 ákvöldin.
Leikjatölva óskast!
Óska eftir Nitendo leikjatölvu til
kaups. Upplýsingar í síma 38157
og 13412 eftir kl. 6 á kvöldin.
Til sölu!
ril sölu 30 fermctra gólfteppi,
eikarhurð og handlaug. Upplýs-
inear í síma 35538.
Hænuungar!
Til sölu hænuungar (varphænur).
Pantanir í síma 95-36745.
Halldór Hafstað.
Aðalfundur!
Aðalfundur Skotfélagsins Ós-
manns verður haldinn í Verk-
námshúsi Fjölbrautaskólans
sunnudaginn 9. maí kl. 20,30.
Dagskrá: Venjuleg aðallúndarstörf
og önnur mál. Stjómin.
Áskrifendur Feykis!
Muniö að greiöa
gíróseðlana hiö fyrsta.