Feykir - 21.07.1993, Síða 1
rafsjá hf
RAFVERKTAKAR
SÉRVERSLUN
MEÐ RAFTÆKI
SÆMUNDARGÖTU 1
SAUÐÁRKRÓKI
I>að var mikið líf við Skagfirðingabúð sl. laugardagsmorgun þegar Magnús Scheving þolfimimeistari stóð
þar fyrir sýningu og veitti ungu áhugafólki leiðsögn. Koma Magnúsar var í tcngslum við 10 ára afmæli
Skagfirðingabúðar sem haldið var hátíðlcgt með yTnsu móti um hclgina. Seinna á iaugardeginum lék Síðan
skein sól við húðina og á mánudag, sem var afmælisdagurinn, var m.a. afmælisterta á Ivoðstólum auk þess
sem boðnir voru einstök hljóm- og rafmagnstæki á spotprís við opnun verslunarinnar um morguninn.
Bændur í Skefilsstaðahreppi:
Byggja fiskverkunarhús á Hvalnesi
Hér fyrrum var algengt að bænd-
ur réru til fiskjar samhliða bú-
skapnum. Þcgar kom fram á
þessu öld urðu þær þjóðfélagslegu
breytingar að skilin milli stétta sj(V
manna og bænda urðu skarpari. I
einstaka sveitum eimir þó enn cft-
ir af þessari skemmtilegu blöndu
bænda og sjósóknara. Skaga-
bændur hafa t.d. löngum verið
duglegir að draga björg í bú bæði
til lands og sjávar. Þeir hafa notið
þess að ciga bcstu höfn frá náttúr-
unnar hendi við Skagafjörð, Sel-
víkina sem fræg er úr Sturlungu
cn þaðan bjó Kolbcinn ungi lið sitt
til orustunnar á Húnaflóa. Sumir
tala í ganini um landshöfnina við
Selvík, en fyrir nokkrum árum
mynduðu bændur í Skefilsstaða-
hreppi félag um byggingu varnar-
garðs við Selvík, sem gæti hugan-
lega rcynst vísir að fullkominni
hafnaraðstöðu á þessum stað þeg-
ar fram líða stundir.
Það var svo sem ckki mjög
gróskulegt um að litast í Skefilsstaða-
hreppi þegar ekið var út Skagann nú
fyrir helgina. Grcinilegt er að kulda-
tíðin nú í vor hefur hamlað sprettu
mjög, sérstaklega er þetta áberandi
eftir því sem utar drcgur. Enda segja
þeir bændur, Bjami á Hvalnesi og
Hrcinn á Selá, að citthvað sé í að
sláttur byrji hjá þeim.
En þeir Bjami og Hreinn hafa
nóg annað að sýsla þessa dagana og
því ekkert tiltakanlegt mál þótt slætt-
inum seinki eitthvað. Þeir cm í sam-
einingu að byggja fiskverkunarhús á
Hvalnesi. 130 fermetra hús ásamt
hjalli til upphengingar fisks. Að-
spurður sagði Bjami að bygging
hússins væri nauðsynleg fyrir þá,
ekki aðeins til aö vcrka hrogn meðan
á grasleppuvem'ðinni stendur, heldur
líka til að verka og pakka silungi yfir
sumartímann, en silungsveiði í vötn-
unum á Skaganum er mjög drjúg bú-
bót. „Það cm orönar það miklar kröf-
ur í sambandi viö matvælavinnslu,
að ef við ætlum okkur að hafa ein-
hverja möguleika á markaðnum þá
vcrður verkunaraðstaðan að vera
fullkomin", sagði Bjami.
Utgerðin er snar þáttur í brauð-
striti margra bænda á Skaganum og
aðstaða til verkunar sjávarafla er á
nokkmm stöðum í Skefilsstaða-
hneppi. Það mun þó vera talsvert síð-
an fiskverkunarhús var byggt frá
gmnni í hreppnum. Og þeir Bjami og
Hrcinn reyna að halda kostnaðinum
í lágmarki, nýta vélakost og hlunn-
indi jtu'ðanna sem mest þeir mega.
Undanfamar vikur hafa þeir unnið að
jarðvegsskiptum og akstri elnis í
gmnn hússins með traktomm. Bjami
tekur t.d. um sex tonn í einu á sinn
vagn og ekki veitir af þar sem ferð-
imar frá efnisstökunni við Bergskála,
eyðibýli skammt sunnan Hvalness,
vom orðnar um 300 talsins, en verk-
ið var langt komið þegar blaðamað-
ur Feykis var á fcrðinni fyrir hclgina.
Húsið verður jámklætt á timbur-
grind og þar kcmur rekinn á Skagan-
um sér vel. Reikna þeir Bjami og
Hrcinn meö aö geta notað rekann að
mestu leyti og timburkaup verði því
lítil. Frændur Bjama í Víkum í
Forráðamenn Þormóðs ramma:
íhuga sölu á hluta-
bréfunum í Skildi
,Jú það er rétt að þcssi hug-
mynd hefúr verið rædd ásamt
fleirum og það er alveg ljóst að
um einhverjar breytingar verð-
ur að ræða varðandi rekstur
Skjaldar. Þetta er þungur rekst-
ur og það virðist ekki fara batn-
andi. Það er alveg ljóst að fyrir-
tæki getur ekki staðið í tap-
rekstri Icngi“, sagði Olafur Mar-
teinsson framkvæmdastjóri Þor-
móðs ramma á Siglufirði, en hug-
myndir eru uppi um að Ramm-
inn selji hlutafé sitt í hraðfrysti-
húsinu Skildi á Sauðárkróki. Þá
hefúr hcyrst að viðræður hafi átt
sér stað milli forráðamanna
Rammans og Fiskiðjunnar á
Sauðárkróki, en það ekki fengist
staðfest
Ólafur sagði hlutabrélin í Skildi
til sölu ef nægjanlegt verð fengist
fyrir þau. Þcir hjá Rammanum
væru eins og sjálfsagt flestir út-
gerðar- og fiskvinnsluaðilar í land-
inu, aó íhuga ýmsar leiðir varðandi
rckstur fyrirtækisins á næstunni, og
þar kæmi ýmislegt til greina.
„Það standa allir frammi fyrir
þcssum mikla vanda sem er í út-
gerð í dag, sem er þetta mikla afla-
leysi. Kvótinn erekki orðið vanda-
mál lengur, heldur inikill sóknar-
kostnaður. Þaó gerist alltof oft að
skipin koma léttari að bryggju en
þcgar þau fóru á veiðar. Það hefst
varla upp í olíukostnaðinn. Við
þessu reyna menn að bregðast á
sem skynsamlegastan hátt og ekki
hægt að útiloka neitt í því sam-
bandi", sagði Ólafur Martcinsson.
Tæplcga 20 milljóna tap varð á
rckstri Skjaldar í fyrra og einnig
var mikið tap á rckstri Þormóðs
ramma. Það var um svipað leyti í
fyrra scm Þormóður rammi keypti
meirihluta í Skildi. Forráðamenn
Rammans höfðu þá orð um að efla
enn frekar vinnslu í Skildi og var
hráefnisöflun og vinnsla í Skildi í
betra horfi á síðustu mánuðum lió-
ins árs en mörg misserin á undan.
Hreinn Guðjónsson á Selá, Ingvar Gýgjar byggingarfulltrúi
og Bjarni Egilsson ásamt dóttur í grunni fiskvinnslunnar.
Skagahrcppi ætla að saga viðinn nið-
ur, en þcireiga góð tæki til stórviðar-
sögunar. Að sjálfsögðu verður húsið
vel einangrað og það ætti ekki að
væsa um þá Hrcin og Bjama við
vinnsluna þegar þar aó kemur, cn
fram að því þarf víst að framkvæma
nokkur handtökin. Það er ekki hrist
fram úrerminni að byggja hús, sér-
staklega þegar mcnn þurfa að stúss-
ast í öóru með cins og fylgir há-
bjargræðistímanum.
—ICTcft^if! h£)|— Aðalgötu 24 Sauðárkróki ALMENN RAFVERKTAKAÞJÓNUSTA JÍMfJbílaverkstæði
Æ M m rn rn sími: 95-35141
FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA Sæmundargala Ib 550 Sauðárkrókur Fax: 36140
BÍLA- OG SKIPARAFMAGN VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA Bílavibgei^ir • Hjólbar&averkstæ&i
SÍMI: 95-35519 • BÍLASÍMI: 985-31419 • FAX: 95-36019 RÉTTINGAR • SPRAUTUN