Feykir - 21.07.1993, Qupperneq 2
2 FEYKIR 27/1993
Kemur út á mióvikudögum vikulega. Útgefandi
Feykir hf. Skrifstofa: Aðalgata 2, Sauðárkróki.
Póstfang: Pósthólf 4, 550 Sauðárkróki. Símar:
95-35757 og 95-36703. Myndsími 95-36703.
Ritstjóri: Þórhallur Ásmundsson. Fréttaritarar:
Magnús Olafsson Austur - Húnavatnssýslu og
Eggert Antonsson Vestur - Húnavatnssýslu.
Blaóstjórn: Jón F. Hjartarson, sr. Hjálmar
Jónsson, Sæmundur Hermannsson, Sigurður
Ágústsson og Stefán Ámason. Áskriftarverö
137 krónur hvert tölublað meó viröisaukask..
Lausasöluveró: 150 krónur meó viróisaukask.
Setning og umbrot: Feykir. Prentun: Sást sf.
Feykir á aðild að Samtökum bæja- og héraðs-
fréttablaða.
I»eir voru á síðasta hring í Meistaramóti kolfklúbbsins Óss á
Blönduósi sl. laugardag og létu bara nokkuð vel yfir árangrinum.
Frá vinstri talið: Kristján Óli Sigurðsson „súperkaddy“, Heiðar
Bragason, Gestur Már Sigurðsson og Jón Jóhannsson sem jafh-
framt er formaður Gólfklúbbsins ÓSS. I baksýn sést vallarhúsið
í Vatnahverfinu við Blönduós.
Feykir í sumarfrí
Hlé veróur nú gert á útgáfu Feykis vegna sumar-
leyfa. Næsta tölublaó kemur út 25. ágúst næstkomandi.
Hótel Jfeiing
Einar Kr. Einarsson gítarlcikari leikur fyrir matargesti
vikuna 25. júlí til 1. ágúst.
Koníaksstofan opin öll kvöld.
Veitingasalur er því miður fullsetinn miðvikudaginn
21. júlí.
Aning Hólum
Okkar vinsæla kaffihlaðborð alla sunnudaga frá
kl. 14 - 18. Aðeins kr. 700.
50% afsláttur fyrir börn 6-12 ára
og frítt fyrir böm yngri en 6 ára.
Verið velkomin!
Gamla kjörbúðin við Skagfirðingabraut hefúr tekið miklum sfakkaskiptum síðustu mánuðina og
væntanlega mun birtast hið glæsilegasta hús þegar vinnupallarnir verða fjarlægðir á næstunni.
Glerhýsi götumegin hússins setur á það mjög mikinn svip, en óneitanlega læðist sá grunur að
mörgum að sá böggull muni fylgja því skammrifinu að þessir glæstu skálar muni skapa leka-
vandamál í framtíðinni. Ekki er annað að heyra en ánægja ríki með útlit hússins, þó skiptar
skoðanir séu um litavalið eins og gengur. Bygging stjórnsýsluhússins miðar nokkuð samkvæmt
áætlun og er reiknað með að það verði tilbúið á tilsettum tíma, undir mánaðamótin ágúst -
september, eða um það leyti sem Feykir kemur út að nýju eftir sumarfrí.
Gestkvæmt
á Hofsósi
Talsverður ferðamannastraumur
hefur verið til Hofsóss það sem af er
sumri. Virðist átak það sem heima-
menn hafa beitt sér fyrir varðandi
endurgerð gamalla húsa vera strax
farið að skila sér. Gamla pakkahúsið
hefur fengið þónokkuð marga ferða-
mannahópa í sumar og margir þá kom-
ið viö í veitingastofunni Sólvík, en bax)i
þessi hús vora gerð upp á síðasta sumri.
Þá hafa fjölmenn ættarmót verið
haldið í Félagsheimilinu Höfðaborg
tvær síðustu helgar. Um síðustu helgi
mætlu sér mót afkomendur Önnu og
Jóns frá Marbæli, um 140 manns, og
helginga þaráðurafkomendurÞórhalls
og Helgu frá Staðarbjörgum. Þar var
samankomið um 200 manns.
„Ólyginn" segir Hrein Sigurðsson:
Vilja lækka Mælifellshnjúkinn
vegna útflutnings á kúskel
Hreinn Sigurðsson á Sauð-
árkróki hefur nrargt brallað uni
dagana. Þekktastur hcfur hann
þó orðið fyrir viðlcitni sína að
flytja út vatn frá Króknuni, en
það mál hefur tekið hann mörg
ár og cr ekki fyrir cndann séð
enn hvort úr vcrður. En Hreinn
er jafnan með fleiri cn eitt jám
í eldinum. Undanfarna mánuði
og misseri hefur liann gælt við
að vciða og flytja út kúskel.
Síðasta haust fékk hann til að
mynda kúfiskvciðiskipið Villa
Magg til tilraunavciða á Skaga-
firði. Þær veiðar gengu reyndar
ekki vcl og varð skipið frá að
livcrfa. Ekki þó vegna þess að
enga kúskcl væri að fá, heldur
vcgna þess að vciðarfæri skips-
ins voru meira og minna óklár
í slaginn, en þau liöfðu ekki
verió brúkuð í talsverðan tíma.
I sumar fór síðan á krcik
skrambi góð frcgn. Hún var
þcss cfnis að enn væri Hreinn
aó spá í útflutning á kúskcl.
Hefói hann náð samkomulagi
við Flying Tigers flugfélagiö
um að þota á vegum félagins
lenti á Alcxandersflugvclli í
viku hverri og tæki nokkur
bretti af fcrskri kúskel sem færi
beint á markað erlendis. Til
þess að þessi flutningur mætti
takast þurftu ekki cinungis all-
ar tímaáætlanir að standast,
heldur voru tvo ljón í vcginum.
Annaó var að gcra þurfti smá
lagfæringar á flugvcllinum fyr-
ir 200 milljónir króna og hitt aö
til bættra aðflugsskilyrða fyrir
þotuna yrði aó lækka Mæli-
fellshnjúkinn um eina 10 metra.
Ekki fóru fregnir af af-
greiðslu bæjarstjórnar Sauðár-
króks af málinu, en í hrepps-
ncfnd Lýtingsstaðahrepps var
víst uppi fótur og fit þcgar er-
indi Hreins barst þangað inn.
Mcnn voru ekki á því aó fara
að hrófla mikið við þeirri perlu
héraðsins sem Mælifellstindur-
„Hvað eigiði ekki nægar mynd-
ir af þessu fjalli?“
inn er, livað þá í þcim mæli
sem crindið bar með sér.
Hreinn hafi hinsvegar átt að
svara aðfinnslunum á þá leið
sem honum er vel trúandi til:
„Hvað cr þctta ciginlcga. Eig-
iði ckki nóg af myndurn af
þessu fjalli?"