Feykir - 29.09.1993, Blaðsíða 3
33/1993 FEYKIR3
Hólar í Hjaltadal:
Breytingar í starfi
bændaskólans
Bændaskólinn á Hólum var sett-
ur í síðustu viku. Nemendur í
skólanum í vetur eru 44, nokkru
færri en þeir hafa verið undan-
farna vetur, og er ástæða þess sú
að í vetur verður kennslufyrir-
komulaginu breytt á þann hátt
að nemendur ljúka búfræðinám-
inu á einum vctri frá skólanum í
stað tveggja áður. í þessu sam-
bandi voru gerðar meiri kröfur
við innritun en áður hefur
tíðkast. Um helmingi fleiri sóttu
um skólavist á Hólum en unnt
var að verða við.
Að sögn Valgeirs Bjamasonar
yfirkennara em nú gerðar þær
kröftur til nemenda að þeir hafi að
baki tvo vetur í ffamhaldsskóla auk
góðrar grundvallarreynslu af störf-
um í landbúnaði. Valgeir segir að
þrátt fyrir að námstíminn hjá bú-
ffæðingunum styttist um einn vetur
sé stefnt að því að ffæðslan minnki
ekki, betri undirbúningur nemenda
þýði að unnt veiöi að hraða náminu
ffekar og gera það markvissara, þá
náist með þessu móti betri nýting á
búnaði og kennsluaðstöðu. „Við
treystum okkur ekki til að taka á
móti fleiri nemendum meðan við
erum að prufúkeyra þetta kerfi. Vió
reiknum með í framtíðinni að
geta haff um 40 nemendur og þetta
breytta fyrirkomulag þýðir að fleiri
mun útskrifast ffá skólanum en
áður“, sagði Valgeir Bjamason.
A næsta ári munu tveir hópar
útskrifast ffá Hólum. Þeir sem hófu
nám síðasta haust og eru nú í eldri
deild og þeir sem byrjuóu nú í
hausL Að loknu námi í maílok
næsta vor munu nýnemamir halda
frá Hólum í starfsnám, sem þeir
munu stunda í u.þ.b. tvo mánuði.
Þeir munu síðan koma í Hóla aftur
í ágústlok til útskriftar sem stendur
í nokkra daga.
Sem fýrr er þaö nám í hrossa-
rækt og reiðmennsku sem nýtur
langmestra vinsælda hjá nemend-
um Hólaskóla og er talið að ffam-
boð skólans á þessum vettvangi sé
ástæða mikillar aðsóknar að skól-
anum. Kynjaskiptin er nokkuð jöfn
meóal nemenda Hólaskóla. I eldri
deild er hlutfallið jafht en í hópi ný-
nema em stúlkumar 9 og drengim-
ir 13.
Ákveðið að ráða
félagsráðgjafa
Blaðamaður Dags á Sauðárkróki:
Höfðar mál vegna
fæðingarorlofs
Rússneskir sjómenn
á Skagaströnd:
Smygl og
smá hnupl
úr bílum
Lögreglan þurfti að hafa tals-
verð afskipti af sjómönnum
rússneska rækjuskipsins sem
kom til Skagastrandar um
miðja síðustu viku og fór í gær-
morgun. Aðallcga var það
vegna smygls á vodka er sjó-
mennimir voru að selja sem lög-
reglan þurfti að skipta sér af
þcim.
Sjómennimir vom tæplega 50
að tölu og bar talsvert á þessum
hópi bæði á Skagaströnd og
Blönduósi. Eitthvað mun hafa
verið um að þeir gerðu bílavið-
skipti á stöðunum. Þá vom einnig
brögó að því að þeir gerðust
fingralangir og hnupluðu hlutum
úr bifreiðum. Varð lögreglan þar
að koma til skjalanna einnig.
„Ég er ákveðin að fylgja þessu
máli efltir til enda“, segir Sigríð-
ur Þorgrímsdóttir blaðamaður
Dags á Sauðárkróki. Sigríður
hefúr kært vinnuveitanda sinn
Dagsprent hf til Kærunefndar
jaínréttismála. Telur Sigríður að
brotið hafi verið á sér þegar
henni var sagt upp störfum á
Degi nýlega, en starfslok hennar
hjá blaðinu bera upp á sama
tíma og hún hafði tilkynnt
vinnuveitanda sínum að hún
mundi hefja fæðingarorlof sitt,
það er 1. descmber nk. Sigríður
hefur jafnframt óskað eftir um-
sókn jafnréttlsnefndar Akureyr-
ar um málið.
Sigríður segist hafa tilkynnt
vinnuveitanda sínum fyrr í sumar
að hún væri bamshafandi og
skömmu áður en hún fór í sumarfrí
rætt orlofsmál sín. Þegar hún síðan
kom úr sumarfríi í lok ágúst lá fyr-
ir uppsagnarbréf þar sem þaó var
tilkynnt að skrifstofú Dags yrði
jafnframt lokaó á Sauðárkróki.
Þessi breytta staða Sigríðar leiðir til
þess að laun hennar skerðast um-
talsvert í fæðingarorlofinu, og sér-
kjarasamningur sem blaðamenn
hafa gert vegna fæðingarorlofs nær
ekki fram að ganga.
Forráðamenn Dags segja ástæð-
ur uppsagnar Sigríðar erfiðleika í
rekstri vegna minnkandi tekna
blaðsins síðustu misseri. Útgáfú-
stjómin hefði viljað loka útibúi
blaðsins á Sauðárlaóki strax í vor,
enda stæði það ekki undir sér. Rit-
stjómin hefði hinsvegar lagst gegn
því og til bragös hefði verið tekið
að segja upp störfúm einum blaða-
manni á ritstjóminni á Akureyri.
Bragi Bergmann ritstjóri segir upp-
sögn Sigríðar ekki tengjast kyn-
ferði hennar né þeirri staðreynd að
hún sé bamshafandi.
Ertu í sambandi
við þína heimabyggð?
Viltu fylgjast með því sem er að gerast á
Norðurlandi vestra?
gýrð þú eða einhver náinn vinur þinn
ljarri heimabyggð?
y^skrift að Feyki tryggir að engar stærri
fregnir fari fram hjá þér, og samband
þitt við heimahagana helst
Félagsmálaráð Sauðárkróks-
bæjar óskaði nýlega efltir því við
bæjarstjórn Sauðárkróks að
ráðinn yrði í heila stöðu félags-
ráðgjafi eða sálfræðingur til að
veita bæjarbúum þjónustu á
þcssum sviðum. Bæjarstjórn
samþy kkti crindið og hefúr stað-
an nú verið auglýst, með um-
sóknarf'resti til 11. október nk.
Að sögn Steinnunar Hjartar-
dóttur formanns félagsmálaráðs
hefur lengi verið rætt um nauðsyn
þessarar þjónustu á svæðinu. „Við
þurfúm á aðstoð fagaðila að halda
í sambandi við úrlausn á ýmsum
málum sem til okkar berasL einnig
má búast við að heilsugæslan muni
hafa not af þessari félagsráðgjöf.
Þetta er þjónusta sem að okkar
mati hefiir vantað lengi“, sagði
Steinunn Hjartardóttir formaður fé-
lagsmálaráðs.
Félagsráðgjafa- og sálfræði-
þjónustan verður til húsa í nýja
stjómsýsluhúsinu og er þar boóið
upp á mjög góða vinnuaðstöóu.
Feykir óháð fréttablað á
Norðurlandi vesfra
Símar (95)35757 og 36703
Ferskt fréttablað !
Augljós auglýsingamiðill!
Til okkar liggur leiðin /fflMIMÁÁU