Feykir - 02.03.1994, Qupperneq 1
@
rafsjá hf
RAFVERKTAKAR
SÉRVERSLUN
MEÐ RAFTÆKI
SÆMUNDARGÖTU1
SAUÐÁRKRÓKI
Securitas-hópurinn í Iok dansins sem færði þeim þriðja sætíð í Free style danskeppninni í Tónabæ.
Frábær árangur í danskeppni
Fullt skjól í
við gerð nýs garðs
Skagabændur bæta aðstöðu sína til útgerðar
Þessa dagana standa yfir hafn-
arframkvæmdir í Selvík á
Skaga. Unnið er að lagningu
grjótgarðs sem lokar höfhinni
fyrir hafróti úr suðvestan átL
Nýi garðurinn mun mynda
ásamt aðalskjólgarðinum, sem
byggður var fyrir sjö árum,
mjög gott lægi fyrir trillur
Skagabænda, að mati Þorleifs
Ingólfssonar á Þorbjargarstöð-
um. Það er Selvíkurfélagið sam-
eignarfélag útvegsbænda á
Skaganum sem stendur fyrir
þessari framkvæmd eins og
þeirri fyrri.
hef trú á því að nýi garður-
inn geri höfnina mjög örugga og
þessvegna gætum við haft bátana
niðri allan veturinn, en til þessa
höfúm viö aðeins verið með bát-
ana í höfhinni á grásleppuvertíð-
inni og yfir hásumarið. Það hefur
verið óróleiki í höfninni þegar
suðvestanátt gerir og eins í brim-
um, en nú ætti það að vera úr sög-
unni“, segir Þorleifúr.
Verktakinn, Fjörður sf og Stef-
án Guðjónsson, undirbjuggu út-
lögn garðsins í síðustu viku. Stóra
grjótinu í ytra byrðið var safnað
saman fyrir ofan Hvalnes, en
kjaminn er tekinn úr skriðunum
við Selnes og því er það aðeins
nokkur hundruð metra sem flytja
þarf efnið, og er það helsta for-
sendan fyrir því að þessi fram-
kvæmd er möguleg. Gert er ráð
fyrir að það taki um vikutíma að
byggja garðinn og það muni kosta
um 3 milljónir. Byrjað var að
leggja garðinn út nú í vikubyrjun.
Hann liggur í norðvestur til móts
við gamla garðinn sem liggur í
vestur og verður 50-60 metra
langur eða hátt í eins langur og
gamli garðurinn, sem byggður var
fyrir sjö árum.
„Við höfðum borgað þá fram-
kvæmd upp þannig að nú stönd-
um við ágætlega aó leggja í
þetta“, segir Þorleifur á Þorbjarg-
arstöðum. I Selvíkurfélaginu vom
11 í upphafi, en þrír hafa flust
burtu á síðustu ámm. Skagabænd-
ur em nokkuð bjartsýnir fyrir
komandi grásleppuvertíð. Verð á
hrognum er mjög gott og menn
vonast eftir góðri vertíð eftir frek-
ar dapra veiði í fyrra.
Þokkaleg rauðmagaveiði
Securitas danshópur fimm
stúlkna úr 10. bekk Gagn-
fræðaskóla Sauðárkróks gerði
það gott í úrslitum “Free style”
danskeppninnar, sem fram fór
í Tónabæ í Reykjavík nýlega.
Stelpurnar af Króknum urðu í
þriðja sætí ásamt annarri dans-
sveit, og þykir það einstaklega
góður árangur miðað við stutt-
an æfingartíma.
„Það var svo sem ekki við
miklu að búast þegar danshópam-
ir vom kynntir. Maður heyrði að
þessi hópur hafi æft í sjö vetur,
þessi í niu og síðan komu stelp-
umar okkar með langminnstu æf-
inguna, hafa bara æft núna í vet-
ur”, sagði Guðrún Jóna Valgeirs-
dóttir starfsmaður Félagsmið-
stöóvarinnar og liðsstjóri Securit-
as-hópsins.
Stúlkumar sögust hafa verið
mjög taugaspenntar fyrir keppn-
ina, en mesti skjálftinn hefði horf-
ið eftir lokaæfmguna fyrir keppn-
ina. „Oskar Páll Hjálmtýsson sem
stjómaði keppninni sagði að sér
hefói litist vel á þetta hjá okkur,
og það “peppaði” okkur mikið
upp”, sagði Steina MargrétFinns-
dóttir, en hinar í hópnum em As-
laug Bima Jónsdóttir, Ragndís
Hilmarsdóttir, GerðurGylfadóttir
og Þórdós Osk Rúnarsdóttir. Ragn-
dís varð einnig þriðja í einstak-
lingskeppninni, með dans sinn
“No mercy”, en Ragndís hefur
lært Free style í nokkur ár, og
varð hún í 2. sæti sæti sl. ár.
Klæónaður Securitas vakti
einnig mikla athygli og var allt
öðm vísi en annarra þátttakanda,
rauður að lit úr regnfataefni. Stúlk-
umar segjast staðráðnar í því að
æfa vel næsta ár og sigra þá í
keppninni, sem er fyrir unglinga á
aldrinum 13-17 ára, og felst í frjáls-
um dansi. Skilyrði er að þátttak-
endur semji sjálfir dansa sína. Um
600 manns fylgdist með keppninni
í Tónabæ nú og var stemmningin
einstaklega skemmtileg.
Þokkalegt útlit er með rauð-
magaveiði í vor, en hún er ný-
lega byrjuð. Fáir stunda veið-
arnar nú eins og undanfarin
ár, en menn hafa verið að fá
þokkalegan afla undanfarið.
Það er einungis Þorleifur Ing-
ólfsson á Þorbjargarstöðum sem
stundar veiðamar hér efra. Stór-
holtsmenn gera út frá Hagnesvík
og síðan em það aðallega tveir
feögar sem gera út á rauðmagann
frá Siglufirói. Mönnum ber sam-
an um að veiðin sé betri en
undanfarin ár og eykur það vonir
um að grásleppuvertíðin verði
góð að þessu sinni.
Eyrugla finnst í Hegranesi
Þegar heimilisfólkið á Hegra-
bergi í Hegranesi skyggndist til
veðurs sl. miðvikudagsmorgun
veittí það eftirtekt ókunnugum
fugli sem var ósjálfbjarga í
hlaðvar panum. Við eftirgrennsl-
an hjá Náttúrufræðistofnun
hefúr komið í ljós að þarna var
á ferðinni eyrugla, en komur
þeirra hingað til lands munu
vera mjög sjaldgæfar.
Einar Otti dýralæknir var kall-
aður til og komst hann að þeirri
niðurstöðu að aflífa þyrfti fúglinn
þar sem hann var mikið laskaður
á væng, hafi greinilega flogið á
og brotið vænginn. Það hafði lík-
lega gerst snemma nóttina áður,
en blóðið var mikið storkið á
vængnum. Að líkindum mun
þama hafa verið um sama fugl-
inn að ræða og orðið hafi vart við
Kárastaði dagana á undan.
í bókinni Náttúru íslands, er
auk branduglunnar, sem algeng
erhér, aðeins getið snæuglunnar,
sem verpti hér fyrr á öldinni og
flækist stundum hingað til lands.
Ekkert er minnst á eymgluna.
—KTenflil! hjDI—
Aðalgötu 24 Sauðárkróki
ALMENN RAFVERKTAKAÞJÓNUSTA
FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA
BÍLA- OG SKIPARAFMAGN
VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA
SÍMI: 95-35519 • BÍLASÍMI: 985-31419 • FAX: 95-36019
j/JMfTbílaverkstæði
Æ M M W M sími: 95-35141
Sæmundorgata I b 550 Sauðórkrókur Fax: 36140
Bílaviðgerðir • Hjólbarðaverkstæði
RÉTTINGAR • SPRAUTUN