Feykir - 27.04.1994, Side 1
rafsjá hf
RAFVERKTAKAR
SÉRVERSLUN
MEÐ RAFTÆKI
SÆMUNDARGÖTU 1
SAUÐÁRKRÓKI
Afleiðingar óbreytts sjávarútvegsfrumvarps:
Fjöldi fiskverkafólks við
Skagafjörð missa vinnuna
„Ef þetta frumvarp um framsal
kvóta fer í gegnum þingið er
ljóst að það mun kollvarpa öllu
því sem okkar afkoma hefur
byggst á síðustu árin, og binda
enda á það sem við höfum ver-
ið að gera með að fá aukið hrá-
efni til vinnslu í húsunum hjá
okkur, sem hefur orðið til þess
að auka til muna atvinnu hér á
svæðinu. í dag stöndum við
frammi fyrir því að þurfa ann-
aðhvort að stytta vaktirnar úr
átta tímum í sex, eða fella niður
vaktafyrirkomulagið og taka
upp átta stunda vinnudag, sem
mundi þýða verulega fækkun
starfsfólks. Þessir kostir hafa
verið kynntir starfsfólki á fund-
um og forsvarsmönnum verka-
lýðsfélaganna“, segir Einar
Svansson framkvæmdastjóri
Fiskiðjunnar.
Ljóst er að sjávarútvegsfrum-
varpið sem nú liggur fyrir Alþingi
er stórmál fyrir atvinnulíf við
Skagafjöró. Frumvarpiö gerir ráð
fyrir banni á framsali kvóta, en
hráefnisöflun Fiskiðjunnar hefur
einmitt byggst á tonn á móti tonni
aðferðinni við framsal kvótans.
Með þessu hefur Fiskiðjan tvö-
faldað mögulegthráefni til vinnslu
og náð þannig að drýgja stórlega
þann þorskkvóta sem fyrirtækið
hefur til ráðstöfunar, en þorsk-
kvóti Fiskiðjunnar/Skagfirðings
hefur verið skertur um rúm 60%
síðustu sex árin. Þá hefur tilhögun
veiði togara Skagfirðings verió
sniðin að kvótakerfínu og framsali
kvótans. Að sögn Einars Svansson-
ar í Fiskiðjunni hafa útgerðir og
skipshafhir þeirra báta sem fyrir-
tækið hefur haft í viðskiptum not-
ið góðs af tonn á móti tonni reglunni.
Það em ekki aðeins útgerðar-
menn sem segja að fari sjávarút-
vegsfrumvarpið óbreytt gegnum
þingið muni það stórlega bitna á
atvinnu landverkafólks. Ymsir
forsvarsmenn veikalýðsfélaga taka
í sama streng, svo sem Jón Karls-
son formaður Verkalýðsfélagsins
Fram á Sauóárkróki. Jón segir að
bann við íramsali kvótans á þenn-
an hátt ranga aðferð til að ganga
frá samningum við sjómenn, sem
tilgangur frumvarpsins augljós-
lega sé. „Við emm vitaskuld á
móti kvótabraski en teljum eólileg
þessi viðskipti sem hérhafa átt sér
stað“, segir Jón.
Á aðalfundi Kaupfélags Skag-
flrðinga, sem haldinn var sl.
laugardag, kom fram að halli
varð á samstæðureikningi KS
og dótturfyrirtækja þess upp á
28 milljónir á síðasta ári. Iretta
tap er tilkomið vegna útkomu
sjávarútvegsfyrirtækjanna.
I»ar varð tap upp á 48 milljón-
ir, en hagnaður á KS varð 28
milljónir. „Útkoman er mjög
svipuð milli ára. Það birtir
hægt upp, vextirnir eru lægri
nú í ár en á móti kemur aukinn
samdráttur í þjóðfélaginu“,
segir Þórólfúr Gíslason fram-
kvæmdastjóri KS.
Ástæða fyrir 48 milljóna tapi
sjávarútvegsfyrirtækjanna á síð-
asta ári er aðallega rakin til geng-
isfellingar um mitt árið og verð-
falls á framleiðsluvömm, en þeg-
ar það gerðist átti Fiskiójan mikl-
ar birgðir.
Rekstur einstakra deilda KS
gekk vel á síðasta ári, ef undan
em skilin sláturhús og gras-
kögglaverksmiðjan í Vallhólmi,
sem vom rekin með tapi á árinu.
Á öðmm deildum félagsins varð
hagnaður. Eiginfjárhlutfall félags-
ins er um 50% eða svipað og það
var árið áður, en veltufjárhlutfall
hefur aukist lítillega.
Hjá einstökum deildum Kaup-
félags Skagfirðinga starfa nú
rúmlega 200 manns. Rúmlega sá
fjöldi starfar hjá dótturfyrirtækj-
um félagsins, og því mun láta
nærri að um 500 manns hafi at-
vinnu af samvinnurekstrinum við
Skagafjörð.
Flökun og frysting bol
fisks með rækjunni
Hjá Meleyri á Hvammstanga
Að undanfornu hefúr verið
unnið að uppbyggingu fisk-
vinnslu hjá Meleyri hf á
Hvammstanga. Þar er um að
ræða flökun og frystingu á bol-
fiski með útflutning í huga. Ás-
berg Pétursson eigandi og
framkvæmdastjóri í fiskvinnsl-
unni Leiti hf í Hnífsdal hefur
verið hjá Meleyri nú um tíma
með þrjá starfsmenn sína og
hefúr Ásberg ásamt þessu
starfsfólki unnið að því að
miðla af þekkingu sinni varð-
andi rekstur fiskvinnslu, upp-
setningu á tækjum, handtök
við flökun, pökkun o.fl. sem
vinnslunni viðkemur.
Ekki er reiknað með að farið
verði út í neinar fjárfestingar
vegna þessa þar sem hluti af
tækjunum sem til þarf var til fyr-
ir og einnig átti Leiti hf eittlivað
af tækjum sem það lánar Meleyri
fyrir þetta verkefni. Verður þetta
því hrein viðbót við reksturinn og
mun að öllum líkindum styrkja
hann mjög. Einnig er hér kær-
komin viðbót við atvinnulíf
svæðisins, því reiknað er með að
þetta geti skapað 15-25 manns at-
vinnu og munar mikið um slíka
viðbót í svo litlu byggðarlagi sem
Vestur-Húnavatnssýsla er.
Búast þeir Guðmundur og Ás-
berg við að hægt verði að vinna
um 1500-2000 tonn af bolfiski á
ári í vinnslunni, en miðað er við
að fá handflakara á staðinn og er
einn þeirra starfsmanna sem hafa
verið hjá Meleyri hf að undan-
fömu, vanur handflakari frá
Englandi og mun hann kenna
fólki á staðnum handbrögðin.
Isfang á ísafirði hefur haft
milligöngu um útflutning fyrir
Leiti hf og mun þaó einnig sjá
um útflutninginn fyrir Meleyri hf.
Hráefni verður keypt á mörkuð-
um á Suður-, Vestur- og Noður-
landi, auk þess sem afli sem berst
að landi með rækjubátunum
vcrður nýttur í vinnslunni.
EA.
Vorboðarnir hafa gert vart við sig hjá bændunum á Nöfúnum.
Fyrsta kindin bar þar 17. aprfl sl. Það var Botna hennar Erlu Lárus-
dóttur og skilaði hún þrem fallegum lömbum. Eria telur þetta mjög
vænlegt bankaráð en deilt hefúr verið um bankamálin undanfarið.
Kaupfélagsfyrirtækin í Skagafirði:
28 millj. halli í fyrra
—KTen$ítf —
Aðalgötu 24 Sauðárkróki
ALMENN RAFVERKTAKAÞJÓNUSTA
FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA
BÍLA- OG SKIPARAFMAGN
VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA
SÍMI: 95-35519 • BÍLASÍMI: 985-31419 • FAX: 95-36019
Æl
bílaverkstæði
sími: 95-35141
Sæmundargata 1 b 550 Sauðárkrókur Fax: 36140
Bílaviögeróir • Hjólbarðaverkstæöi
RÉTTINGAR • SPRAUTUN