Feykir - 08.06.1994, Blaðsíða 5
22/1994 FEYKIR5
„Við höfum öll stefnt að
sama marki, þrátt fyrir
tímabundinn ágreining"
Adolf J. Berndsen lætur af störfum eftir 30 ára
starf í hreppsnefnd Höfðahrepps
„Ég kom inn í hreppsnefhd-
ina á miðju kjörtímabili,
árið 1964, þegar Asmundur
Magnússon verksmiðjustjóri
í sfldarverksmiðjunum flutti
burtu. Síðan var ég kjörinn
annar tveggja fulltrúa Sjálf-
stæðisflokksins í hrepps-
nefhd 1966 og var það alveg
til loka síðasta kjörtíma-
bils“, segir Adolf J. Bernd-
sen „olíubarón“ á Skaga-
strönd, en Adolf lét af starfi
hreppsnefndarmanns nú
nýlega eftir að hafa gengt
þessum skyldum fyrir sveit-
arfélagið í 30 ár og eru sjálf-
sagt ekki margir sem hafa
þjónað sínu sveitarfélagi
jafh lengi og dyggilega og
Adolf hefur gert Blaðamað-
ur Feykis átti tal við Adolf
af þessu tilefhi á dögunum.
Þú varst oddviti hrepps-
nefndar í töluverðan tíma, var
þaðekki?
„Júí 11 ár. Það var 1978 sem
ég var kosinn oddviti. Við sjálf-
stæðismenn náðum þá samstarfi
við Alþýðuflokksmenn, Elínu
Njálsdóttur, og það samstarf var
mjög gott, allt af hinu góða, þang-
að til þessi óróabelgur Axel Hall-
grímsson kom í stað Elínar sem
fulltrúi kratanna árið 1986. Það var
ljóst strax í upphafi að Axel gekk
ekki til þessa samstarfs heill og var
tregur til að láta að vilja Alþýðu-
flokksfólks á staðnum, sem vildi
vinna með mér. Síðan greip hann
fyrsta tækifærið sem hann sá til að
slíta þessu samstarfi, sumarið
1988. Eg var samt ekki á því að
láta af starfi, hélt áfram sem oddviti
í óþökk meirihlutans í hrepps-
nefndinni, en entist ekki við þær
aðstæður nema árið, lét af oddvita-
starfinu í júní 1989. Það var ómögu-
legt búa við þetta lengur'.
Þú hefur alltaf verið sjálf-
stæðismaður, fékkstu snemma
áhuga á pólitík?
,Já, ég neita því nú ekki. Það
gerðist nokkuð snemma. Ég var
sem sagt innan við þrítugt þegar ég
kom inn í hreppsnefndina".
Er mikið öðruvísi um að litast á
Skagaströnd nú en þegar þú byrj-
aóir í pólitíkinni?
Já vissulega hefúr margt breyst
á þessum tíma. Það segir sig sjálft
Það er margt búið að gerast héma
síðan, í framkvæmdum, atvinnu-
málum, fegrun staðarins og þannig
mætti halda áfVam“.
Að cinstökum málum, eitthvað
sem þér finnst standa upp úr?
„Ég veit ekki hvort ég á að tí-
unda eitthvað sérstakt Þó er náttúr-
lega þetta tímabil frá ‘60 og fram
að ‘70, sem oft er nú búið að minn-
ast á og tala um, sem var náttúrlega
slæmt tímabil héma atvinnulega
séð, mikill samdráttur og brott-
flutningur fólks. Svo gerist það ‘68
sem endurreisn atvinnumálanna á
sér stað héma, með stofhun útgerð-
arfélagsins Skagstrendings og síð-
an endurskipulagningu á fisk-
vinnslunni í Hólanesi hf. Þessar
ráðstafanir vom stórmál hér og ollu
mikilli breytingu til batnaðar á at-
vinnu- og mannlífi. Það hefúr nátt-
úrlega líka fleira komið til í at-
vinnumálunum á þessu tímabili.
Sum fyrirtækin sem sett vom hér á
stofn hafa að vísu fallið en önnur
lifað af, svo það er margs að minn-
ast afþessu.
Það hefúr líka verið unnið mik-
ið að hafnarmálum, var mikið átak
gert í þeim málum um 1980 og
auðvitað einnig á kjörtímabilinu
sem var að líða. Það er náttúrlega
eðlilega ofarlega í mínum huga
þessi endurreisn Hólaness hf sem
er að eiga sér stað þessar vikumar,
og verið hefúr mikió baráttumál
hjá mönnum hér síðustu mánuð-
ina. Þetta er búið að vera mikil
vinna hjá þeim sem hafa unnið aó
þeim málum“.
Hvað um samstarfemenn
þína á þcssum 30 árum?
, J>eir hafa verið margir og nátt-
úrlega hér eins og annars staðar
hafa menn skipst á skoðunum og
kannski viljað fara misjafnar leiðir.
Og þó að hafi orðið tímabundinn
ágreiningur á milli manna þá
stendur það auðvitað upp úr að við
höfúm öll stefnt að sama marki, að
reyna að bæta mannlífið hér á
Skagaströnd. Ég nefni Svein Ing-
ólfsson, Gylfa Sigurðsson, Harald
Ámason og Elínu Njálsdóttir. Það
eina sem mér finnst skyggja á
þetta, var þegar Alþýðuflokksmað-
urinn, sem taldi sig vera svo á þeim
tíma, klauf samstarfið við okkur
eftir að við höfðum átt mjög gott
samstarf við kratana í rúm tvö kjör-
tímabir.
En nú voruð þið Sveinn Ing-
ólfeson saman í framboði og síð-
an kom Sveinn með sérframboð
á síðasta kjörtímabili. Hvað olli,
samdi ykkur ekki?
„Við vorum búnir aó vera lengi
í þessum málum innan hrepps-
nefndar og utan. Síðan var það á-
kvörðun hans aö koma meó sér-
ffamboð fyrir síðustu kosningar og
þú veist hvemig það fór. Hann
komst inn með einn mann. Nú þó
að kæmi upp þessi afstaða hjá hon-
um og ágreiningur væri að vissu
leyti, þá var á þessu tímabili gott
samstarf innan hreppsnefndarinnar
og allir lögðu sig ffam til að reyna
að skila betra búi“.
En þér hefur fúndist kominn
tími til að hætta?
, Já, þetta var orðið gott og eðli-
legt að maður dragi sig í hlé og að
yngri menn taki við. Reyndar var
ég fyrir fjórum árum að velt því
fyrir mér að hætta, en málin æxluð-
ust þá þannig að mitt fólk vildi að
ég héldi áffam. Ég var mjög sáttur
hvemig aó ffamboði var staðið nú
og þau mál öll unnin með minni
vitund".
Hvemig líst þér á framtíð
Skagastrandar miðað við ástand-
iðídag?
„Framtíð og mannlífið hér eins
og í öómm sjávarplássum byggist
vitaskuld á því hvemig til tekst
með útgerðina og vinnslu sjávar-
afla, það segir sig sjálft, og ég held
að við hljótum að komast af hér
ekkert síður en aðrir staðir. Það er
hér sterk útgerð og önnur fyrirtæki
eins og Hólanes hf og rækjuvinnsl-
an, þar sem er kominn góóur
rekstrargmndvöllur að nýju með
endurreisninni, sem ég vil kalla, og
ég held að það hljóti að geta geng-
ið. Auk þess em hér nokkrir ein-
staklingar í útgerð og ágæt þjón-
ustufyrirtæki með mjög hæfúm
starfsmönnum. Nú það verður
náttúrlega erfitt tímabil héma eitt-
hvaó lengur í sambandi við sam-
drátt í sjávarafla, en menn verða
bara að þrauka og spara við sig á
meðan þetta gengur yfir. Nú ég hef
trú á því að þeir sem hafa valist
núna til foiystu fyrir sveitarfélagið
muni standa sig“, sagði Adolf J.
Bemdsen að endingu.
Garðþjónusta Vinnuskólans
Tekið er á móti óskum um garðþjónustu í síma 36456
Gjaldskrá:
Ellilífeyrisþegar
Allt sumarió þ.e. 6 skipti ...........kr. 3500.-
Einstök skipti .......................kr. 700.-
Aðrir einstaklingar
Allt sumarió þ.e. 6 skipti ...........kr. 7500.-
Einstök skipti .......................kr. 1500.-
Fjölbýlishús
Allt sumarió þ.e. 7 skipti ...........kr. 18000.-
Einstök skipti .......................kr. 3600.-
Fyrirtæki og stofnanir
Stór lóó, t.d. 1200 fm., 7 skipti ....kr. 25000.-
Einstök skipti .......................kr. 5000.-
Lítil lóó, t.d. minni en 1200 fm., 7 skipti .kr. 18000.-
Einstök skipti........................kr. 3600.-
Athugið að símanúmer vinnuskólans er 36456
íþrótta- og æskulýðsráð
S auðárkrókskaupstaðar