Feykir - 08.06.1994, Side 8
8. júní 1994,22. tölublað 14. árgangur.
Sterkur auglýsingamiðill
Það komast allir í Gengið
Iunglingaklúbb Landsbankans
Sláðu til og komdu í Gengið
Pottþéttur klúbbur!
m Landsbanki
Sími 35353 ^nds
Banki allra landsmanna
Nýlega afhenti stjórn Foreldrafélags leikskólans Glaðheima, skólanum að gjöf sjónvarp,
myndbandstæki og myndbandsupptökuvél. Myndin er tekin þegar stjóm foreldrafélagsins afhenti
Helgu Sigurbjörnsdóttur forstöðumanni Glaðheima gjafirnar og sagði hún þær koma skólanum
mjög vel og bömin ættu örugglega eftir að njóta þeirra, þegar ekki viðraði til útiveru.
Landbúnaður 2000 Lágheiðin
Leiðrétting á frétt í síðasta blaði f dBT cí
Svo sem fram hefur komið
verður ráðstefnan „Landbún-
aður 2000, þekking, tækni,
framfarir“ haldin í íþróttahús-
inu á Sauðárkróki föstudaginn
10. júní nk. Dagskrá ráðstefii-
unnar er afar fjölbreytt og
verður þar fjallað um flest þau
þekkingarsvið, sem landbúnað-
inum tengjast sem atvinnu-
grein.
Má þar nefha erindi um skóg-
rækt, búnaðarfræðslu, beitar-
stjóm, bleikjueldi, tölvumál, kyn-
bætur búfjár og nytjajurta, pen-
ingshús framtíðarinnar, ylrækt,
markaðsmál, hrossarækt og fleira.
Flytjendur em margir af þekktustu
vísindamönnum þjóðarinnar í
þessum málaflokkum.
Ráðstefnan stendur í einn dag,
hefst kl. 8,00 að morgni með inn-
ritun þátttakenda og lýkur um kl.
18 síðdegis. I tengslum við ráð-
stefuuna verður sýning á fram-
leiðsluvömm héraðsbúa og fleiri
inni í íþróttahúsinu en á útisvæði
verða sýndar landbúnaðarvélar og
tæki. Um kvöldið að lokinni ráð-
stefnunni býður Hólaskóli til mót-
töku heima að Hólum og era allir
þátttakendur velkomnir þangað.
Frétt sem birtist í síðasta tölu-
blaði Feykis um þessa ráðstefnu,
er því í stómm dráttum ekki rétt
og er þar ekki við ritstjóm Feykis
að sakast, heldur aðstandendur
ráðstefnunnar. Upphafleg áform
gerðu ráð fyrir að tengja ráðstefn-
una öðmm atburðum hér heima
fyrir en frá því var horfið á síðari
stigum. Af misgáningi vom gaml-
ar upplýsingar sendar ritstjóm
Feykis og þær síðan birtar. Er því
nauðsynlegt að vekja athygli les-
enda blaðsins á þessari breytingu
og hvetja um leið allt áhugafólk
um framgang landbúnaðarins og
atvinnugreina tengdum honum að
fjölmenna á ráðstefnuna og fylgj-
ast með því sem þar fer fram.
næstu
dögum
Mokstur á Lágheiði milli
Ólafsfjarðar og Fljóta hófst í
vikubyrjun og er áætlað að
hann taki tvo til þrjá daga, en
mokað er bæði frá Ólafsfirði
og úr Fljótum. Reiknað er
með að vegurinn þurfi
nokkra daga til að þorna og
að hann verði í fyrsta Iagi
opnaður til umferðar fyrir
minni bfla um næstu helgi.
Að sögn Jónasar Snæbjöms-
sonar umdæmisverkfræðings
Vegagerðarinnar hefur verið
óvenjumikill snjór í fjöllum í
vor, en í meðalári hefur Lág-
heiðin verið opnuð í fyrstu viku
júní. Síðasta vor var hún t.d.
opnuð fýrir umferð 3. júní eóa
um hálfum mánuði fyrr en nú
er. Búast má við að nokkuð
vcrði liðið á mánuðinn þegar
Lágheiðin verði fær stærri bíl-
um, en það fer að sjálfsögðu
mikið eftir tíðarfari.
Dúnn í minna lagi
en varpið eins og í meðalári
„Varpið virðist ætla að verða í
meðallagi en dúninn í hreiðrun-
um er hinsvegar í minna lagi af
hverju sem það stafar. Menn
hafa nú verið með þær kenn-
ingar að jregar vetur eru mildir
sé minni dúnn. Veturinn hér til
sjávarins var einstaklega mild-
ur“, sagði Rögnvaldur Steins-
son bóndi á Hrauni um æðar-
varpið, en æðurinn heldur sig
mikið við ströndina að vetrin-
um.
„Þetta fór frekar seint af stað.
Við vomm lengi vel lítið vör við
fúgl og maður var farinn að halda
að varpið yrði lítið þetta árið, en
svo kom hann allt í einu upp úr
hvítasunnunni“, sagði Rögnvald-
ur á Hrauni.
Rögnvaldur segir líta ágætlega
út með gróður á Skaganum, kal-
skemmdir séu litlar. Grásleppu-
vertíð er á enda hjá bændum. Var
hún þokkaleg, þrátt fyrir fremur
trega veiði. Sá sem mest fékk var
með um 60 tunnur.
Lýðveldisárgangurinn
færir kirkjunni gjöf
Fermingarárgangurinn sem
séra Helgi Konráðsson fermdi í
Sauðárkrókskirkju í júní á lýð-
veldisárinu 1944, afhenti sl.
sunnudag kirkjunni að gjöf pí-
anó sem á að notast í Safnaðar-
heimilinu. Hjálmar Jónsson
sóknarprestur veitti gjafabréf-
inu viðtöku úr hendi cins ferm-
ingarbarnsins frá 1944 Evu
Snæbjarnardóttur.
Þau vom 26 fermingarbömin á
Króknum 1944 og af þeim em 21
á lífi. Flest þeirra gátu mætt við af-
hendingu gjafarinnar og em þau
auk Evu: Bjami Haraldsson, Svav-
ar Hjörleifsson, Aðalsteinn Valdi-
marsson, Helena Magnúsdóttir,
Unnur Lárusdóttir, Friðrik A. Jóns-
son, Eiríkur S. Eiríksson, Ingibjörg
Pétursdótúr, Guðmundur Hansen,
Kristín Pétursdóttir, Björg Ragn-
arsdóttir, Sigfús Jónsson, Sigrún
Bjamadóttir, Sigurfinnur Jónsson,
Lovísa Hannesdóttir, Jónas Þór
Pálsson og Guðrún Eiríksdóttir.
Við athöfnina í Sauðárkróks-
kirkju þegar gjöfin var afhent
minntist séra Hjálmar Helga Kon-
ráðssonar með lestri úr hugvekju
hans er birtist í bók með úrvali
hugvekja er út kom 1947 og hefur
því líklega verið samin af séra
Helga í kringum lýðveldisárið.
Oddvitinn
Nú lítur doktor „Ilúkk“ ekki
lengurviðBlöndu.
Gæðaframköllun
BÓKABOÐ
BKYMiIARS