Feykir


Feykir - 24.08.1994, Blaðsíða 4

Feykir - 24.08.1994, Blaðsíða 4
4 FEYKIR 28/1994 eyjunnar a ný Jón Eiríksson Drangeyjarjarl lét nýlega verða aö því sem hann hefur lengi haft í huga, aó bjóða Drangeyjarsund- köppum í ferð út í eyna. Þrír sundkappar af sex sem þreytt hafa Drangeyjarsund eru enn ofan moldu og þekktust þeir allir boö Jóns. I feróina var haldið frá Syórigaróinum á Sauðárkróki rétt upp úr klukkan tvö mánudaginn 15. á- gúst sl., eftir aó Jón Drangeyjarjarl og sundakkamir Pét- ur Eiríksson, Eyjólfur Jónsson og Axel Kvaran höfóu snætt saman hádegisverð. Blaðamaöur Feykis slóst í för í þennan fréttnæma leiðangur út í Drangey. í viðtali við blaðamenn sögðust sundkappamir lengi hafí haft í huga að bregða sér í ferð til Drangeyjar og það hafi því verið virkilega ánægjulegt þegar boð kom frá Drangeyjarjarlinum. Pét- ur Eiríksson hefur á þessum tíma frá því hann þreytti Drangeyjar- sundið reyndar verið nálægt því eitt sinn að komast út í eyna. Pét- ur var á níu síldarvertíðum og eitt sinn var bátur Péturs á veiðum fast við eyna: „Skipstjórinn sigldi inn á Uppgönguvíkina og tók síð- an stefnuna á Tindastólinn. Hann sagði mig ljúga því að ég hefði synt þessa leið“, sagöi Pétur. Hann er einmitt sá Drangeyjar- sundkappa sem hreppti mestu raunina í sundinu frá Drangey að Reykjadiski. Vegna rangra út- reikninga lenti hann í útfallinu frá Diskinum og þurfti Pétur að berj- ast við erfiða strauma, svo að hann var nær dauða en lífi er landi var náð. Erlingur Pálsson lögrcglu- þjónn var sá er þreytti Drangeyj- arsund fyrstur manna. Ahugi Er- lings á sjósundum virtist smitast til vinnufélaganna, en þeirEyjólf- ur og Axel eru einnig lögrcglu- menn. Báðir eru þessir mcnn vel á sig komnir í dag og er greinilegt að þar hafa farið miklir þrek- menn. Pétur Eiríksson er mun eldri og eðlilega farinn að láta nokkuð á sjá, en létta lundin og skopskynið er samt enn í háveg- um hjá Pétri. Það uróu ferðafélaga hans til Drangeyjar svo sannar- lega varir við. Það var ágætisveður þann 15. ágúst og sóttist ferðin vel út í eyj- una. Farþegar vom um 15 talsins og fóru flestir þeirra upp á eyna. Jón Drangeyjarjarl var niðri á fjörunni ásamt Pétri Eiríkssyni sem treysti sér ekki upp, tveim þýskum stúlkum sem lofthræðsl- an yfirbugaði og blaðamanni Feykis. Þama í Uppgönguvíkinni rifj- aði Pétur upp minningar frá sundi sínu úr Drangey fyrir 58 ámm, frá 28. júlí 1936. „Við vomm í veislu á Krókn- um og samkvæmt útreikningum sem gerðir vom í Reykjavík vom þrír tímar í að talió væri heppilegt að leggja af stað. Planiö var að lenda í aófallinu upp að Reykja- diski til að létta mér sundið, cn sterkir straumar em þar fyrir utan. A leiðinni út í eyna er mér síöan litið í almanak sem var í bátnum og þá átta ég mig á því að menn syðra höfóu misreiknaó sig, reiknað með fjöranni í Reykjavík en ekki héma fyrir norðan. Þama munar fjómm og hálfum tíma og við höfðum því misst af dýrmæt- Samankomnir á fjörunni í Drangey Jón Eiríksson Drangeyjarjarl, Eyjólfur Jónsson, Axel Kvaran og Pétur Eiríksson. um tíma. Enda kom það áberandi í ljós í sundinu. Þaó tók mig að- eins tæpa tvo tíma að synda úr eynni upp að Reykjadisknum, en þrjá og hálfan tíma var ég að bcrj- ast við strauminn áður en ég náði með krampakcnndu taki haldi í sinustráin á Reykjadisknum. Þá var ég nær dauða en lífi. Eg var búinn að kasta upp einu sinni og það leið yfir ntig um það leyti sem ég náði landi. Það var varla að ég gerði mér grein fyrir nrönn- um í kringum nrig. Eg heyrði þó þegar Jónas læknir Kristjánsson sagði við Lárus Rist aðstoðar- mann minn: „Eg held hann lifi þetta af‘. Jón Drangeyjarjarl, sem var ungur að ámm þegar þetta gerðist, var viðstaddur og þetta er honum minnisstætt. Jón sagði Pétur hafa hrópað þegar hann náði landi. „- Húrra land“ og síðan hafi hann beðið mennina sem tóku á móti honum, í guðanna bænum að bcra sig. Þá kallaði Eiríkur Sigmunds- son bóndi á Fagranesi faðir Jón til mannanna að gera það ekki. Það yrði að láta hann ganga til að koma blóðinu á hreyfingu. Eftir að Pétur hafði skrönglast meó hjálp eftir malarkambinum, var hann lagður við laugina, í steikj- andi liita og blíðviðri sem var Að lokmni ferð í Drangey böðuðu sundkappamir sig í lauginni á Reykjum, sem Jón lét hlaða upp fyrir tveim ámm. þennan dag, og Jónas Kristjáns- son læknir tók að hjúkra honum. Föt Péturs höfðu gleymst í bátn- um og taldi Jónas heppilegast að klæða Pétur ullamærskyrtu senr Eiríkur á Fagranesi léði. Þeir Jón og Pétur skeggræddu þessa miklu þrekraun sem Pétur lenti í á sundi sínu og kom þeinr saman urn að þeir hefðu aldrci náó samkomulagi um þaó hvort að stöðva ætti þetta sund, Jónas Kristjánsson læknirog Láms Rist aðstoóarmaður Péturs. Sund Pét- ur var ekki auðveldara l'yrir þær sakir að hann synti ætíð skrið- sund, og sagði Pétur ástæóu þess hafa verið þá að hann hafi ætíð verið svolítið bilaður í fótum. Erlingur einstakur Talið berst að öðmnr Draneyj- arsundköppum. Pétur segir Erling Pálsson einstakan mann. „Eg hef aðstoðað margíin sundakappann í sjósundununr og það er enginn eins og Erlingur. Eg var t.d. með honum þegar hann þreytti seinna sundið yfir Ermasund. Þcgar Er- lingur var búinn að synda í 12 tíma fannst Mr. Wood formanni Ermasundsfélagsins nóg um. Wood sagði að Erlingur yrði að fara upp úr og það mátti ekki and- mæla því sem Mr. Woods sagði. Erlingur þráaðist þó við og Woods gaf eftir einn tíma í við- bót. Þá var það sem veðrið tók að vemsa og skömmu seinna varð Erlingur að hætta sundinu. Hann hafði þá lagt að baki rúma 26 kílómetra af 32 yfir Ermasundió. (Til samanburóar má geta þess aó Drangeyjarsundið er rúnrir sex kílómetrar). Þegar við tókum Erling upp úr sjónum fannst enginn fatnaður í bátnum nerna gömul hcrmanna- kápa. Erlingur var þó ckki kaldari enn svo að þegar ég tók af honum sundhettuna, bogaði svitinn af honum niður tindlitið", sagði Pét- ur. Varla sáust þreytunrerki á þeim Eyjólfi og Axel þegar þeir komu niður af eynni. Vom þeir nrjög hrifnir af því sem fyrir augu hafði borió og sögðu ferðina stór- kostlega upplifun. Greiðlega gekk að korna fólkinu um borð í Vík- inginn að nýju, enda hafnarað- staða orðin góð í Drangey eftir að stórir steinar vom dregnir úr inn- siglingunni í sumar og viðlegu komið fyrir við stærsta steininn í Uppgönguvíkinni. Stefnan var nú sett á Reykjadiskinn. Þar hefur verið gerður smá bryggjusporður úr stórgrýti, auk þess sem gömul sjóbúð var hlaðin upp á malar- kambinum í sunrar. A Reykjum dubbuðu sund- kappamir sig upp í sundfatnað og Eyjólfur klæddist sömu skýlunni og hann synti í til Drangeyjar 1957 og 1959. Teyjan í þeirri fiík var reyndar farinn að gefa sig og konr í ljós þegar Eyjólfur synti að- eins í sjónum eftir að hafa baðað sig í Reykjalauginni, að vissara var fyrir hann að synda ekki of hratt til að skilja hreinlega ekki skýluna eftir. Eyjólfúr er eini sundakappinn sem synt hefur tvisvar úr Drang- ey til lands. I fyrra skiptið 13. júlí 1957 og í það seinna 30. maí 1959. Þá var hann að æfa sig fyr- ir sund til Vestmanneyja sem hann þreytti þá um sumarið. Að- spurður sagði Eyjólfúr að það hefði verió nokkuð kalt að synda þama um vorið 1959, sjórinn þá verið unr þrem gráðum kaldari en sumariö 1957. En það bætti nokk- uð úr að Eyjólfur var smurður lin- olíni áður en lagt var í sundið. Axel Kvaran þreytti sitt sund 3. september 1939. Þrem ámm eftir að Haukur Einarsson frá Miðdal synti. Axeli sóttist sundið mjög vel. Hann hafði þurft einu sinni frá að hverfa fyrr um surnar- ió vegna óhagstæðs veðurs. Það var reyndar nokkuó sterkur vest- anvindur þennan septemberdag, en ákveðið sanit að láta slag standa. „Vestanaldan kastaði mér áfram og færði nrig reyndar í kaf á stundum. En ég var á lensinu og hafði síðan aðfallið með mér þeg- ar komió var að Reykjadiskin- um", sagði Pétur. Við skiljum við Drangeyjar- sundkappana þar sem þcir svamla

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.