Feykir - 04.01.1995, Side 2
2FEYKIR 1/1995
v4£í‘öubów^í^'
Góð sala hjá Skafta
í morgun voru seld í Hull 100
tonn af 160 tonna farmi úr
Skafta, 60 tonn á að selja í
fyrramálið. Meðalverð fyrir
100 tonnin lá ekki fyrir þegar
blaðið fór í prentun, en að
sögn Gísla Svans Einarssonar
útgerðarstjóra Skagfirðings
er Ijóst að salan verður góð
og gæti orðið mjög góð.
I morgun var að fást 130
krónur fyrir kílóiö af því sem
lakast var í aflanum og yfir 200
íyrir það besta. Skafti var með
blandaðan afla, grálúðu, þorsk,
ufsa og ýsu og vom aflabrögð
mjög góð yfir hátíðamar.
Næstu sölur togara Skag-
firðings em 9. janúar, þá selur
Skagfirðingur í Bremerhafen
og Drangeyjan í Hull. Hegra-
nes á síðan söludag í Bremer-
hafen 11. janúar.
Skagstrendingsbréfin
seldust mjög vel
Hlutafé jókst í Máka fyrir áramótin
Hlutabréf í Skagstrendingi
seldust fyrir rúmar 22 millj-
ónir króna á verðbréfaþingi
Islands fyrir áramótin, eða
mest af Norðlenskum fyrir-
tækjum. Hlutabréf í Þormóði
ramma seldust fyrir rúmar
níu miUjónir.
Skagfirðingum gafst nú
kostur á kaupum á hlutafé í hlý-
sjávareldinu Máka og ná sér
um leið í skattaafslátt. Guð-
mundur Öm Ingólfsson fram-
kvæmdastjóri Máka sagðist
vera ánægður með viðbrögðin,
þau hefðu verið vonum framar
miðað við þá litlu kynningu
sem sala bréfanna fékk, enda
fékkst heimildin ekki fyrr en
rétt fyrir jólin. Hlutabréf í Máka
seldust fyrir rúma milljón nú
fyrir jólin og sagði Guðmundur
að styrkir fengjust á móti þessu
hlutafé og væri það því fyrir-
tækinu enn mikilvægara fyrir
vikið. Guðmundur er mjög
bjartsýnn á að starfsemin verði
oiðin arðbær strax að tveim áram
liðnum, cn þá verður fyrirtækið
komið í fulla framleiðslu.
Þrettándavaka í Trölla
Árleg Þrettándavaka í Trölla er áformuð
laugardaginn 7. janúar n.k.
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku til Friðriks
A. Jónssonar í vinnusíma 35115, heimasími
35315 eða Þorkels í vinnusíma 35200
heimasími 35421.
Hvað er þeim efst í huga frá liðnu?
Teikning Sverris B. Magnússonar 14 ára Drekahlíð 8 á
Sauðárkróki er hlaut önnur verðlaun í jólakortasamkeppni
Dagblaðsins fyrir jólin 1994.
Guðmundur Guðmundsson
sveitarstjóri á Hvammstanga:
Saknaði
landsmótsins
Arið hefur einkennst nokkuð
af erfiðleikum í þjóðfélaginu
vegna aflaskerðingar á Islands-
miðum. Enn var mikið atvinnu-
leysi og sýnt að atvinnuleysis-
bótakerfið er sprungið. Astandið
er þó víða betra en ætla mætti
vegna mun meiri úthafsveiða en
verið hefur og ljóst að um þær
era íslendingar vel færir.
A árinu var lýðveldishátíð á
Þingvöllum og landsmót UMFÍ
á Laugarvatni. Ég sótti hvoragt
en saknaði landsmótsins. Hins-
vegar sótti ég minnistæða og vel-
heppnaða fjölskylduhátíð Ung-
mennasambands Norður-Þing-
eyinga í Asbyrgi í sumar. Af eig-
in högum er mér eftirminnilegast
að fjölskyldan fluttist frá Raufar-
höftí til Hvammstanga og tók ég
við starfi sveitarstjóra Hvamms-
tangahrepps í ágúst.
Magnús Jónsson
sveitarstjóri á Skagaströnd:
Vinabæja-
mótið
hápunkturinn
Efst í huga frá liðnu ári er
mjög ánægjulegt vinabæjarmót
Hræringarnar
í pólitíkinni
Ýmsar hræringar og óróleiki í
íslenskri flokkapólitík vora ein-
kennandi fyrir liðið ár og er ekki
séð fyrir endann á því. Verður
spennandi að fylgjast með á
næstu mánuðum og misserum
hvaða afleiðingar þetta muni
hafa. Sveitarstjómarkosningar í
maí sl. voru spennandi og þar
gerðust ýmsir óvæntir hlutir.
Nýjar sveitarstjómir era að fást
við brýn verkeftii.
Hvað varðar eigin hagi og
heimabyggð þá hefur margt gerst
á árinu eftirminnilegt. Hápunkt-
urinn er vitaskuld að ég tók við
starfi bæjarstjóra á Blönduósi 1.
ágúst sl., fluttist síðan hingað
með mína fjölskyldu í september
og er hér með góðu fólki að
takast á við mjög skemmtileg og
krefjandi verkefni.
Það er hægt að minnast
margra skemmtilegra stunda frá
árinu. Þar bera hæst veiðiferöir
með vinum og kunningum, og
ferðalög með fjölskyldu og vin-
um bæði innan lands og utan.
Snorri Björn Sigurðsson
bæjarstjóri Sauðárkróki:
Vígsla bók-
námshússins
bar hæst
Vígsla bóknámshússins var
viðburður sem við höfðum lengi
beðið eftir og er mjög merkur
áfangi hjá okkur, auk þess að
þetta er virkilega fallegt hús. A
hinn bóginn var það dálítið áfall
fyrir okkur þegar í ljós kom að
byggingarsvæði í Laufblaðinu
var ekki nothæft, að minnsta
kosti í bili, og bærinn varð fyrir
nokkram skakkaföllum peninga-
legum af þessum ástæöum.
Jón Guðmundsson
sveitarstjóri Hofshrepps:
Hætti búskap
eftir 35 ár
Efst í huga mér er að ég hætti
búskap á árinu eftir að hafa búið
í 35 ár, og í kjölfar þess hætti ég
afskiptum af búnaðarmálum.
Þá er mér þjóðhátíðin á Þing-
völlum ofarlega í huga. Það var
mikil hátíð og gaman að vera þar
viðstaddur. Ég hrósaði happi aó
vera komin tímanlega og sleppa
við biðröðina miklu sem mynd-
aðist. Fréttalega séð held ég að
biðröðin og allt klúðrið í kring-
um umferðina á þjóðhátíðina sé
það sem hæst stendur af fféttum
ársins. Og kannski er þaó fyrir
það aó maður var sjálfur vitni
aðþví.
sem hér var haldið á liðnu sumri.
Af innlendum fréttum finnst mér
standa hæst slagurinn í kringum
Guðmund Áma, sem mér fannst
yfirgengilegur í alla staði. Kosn-
ingamar sl. vor era minnistæðar.
Hér á Skagaströnd var kosninga-
baráttan og útslitin í alla staði
ánægjuleg.
Staðan í atvinnumálunum var
erfið fyrri hluta ársins og at-
vinnuleysið mikið. Með vorinu
varð síðan ánægjuleg breyting í
atvinnumálunum sem hélst
nokkum veginn út árið. Málefni
Hólaness settu svip sinn á at-
vinnulífið hér og sem betur fer
tókst að ná þar þokkalegri lend-
ingu, sem vonandi á eftir að
reynast byggðarlaginu vel í
framtíðinni.
Skúli Þórðarson
bæjarstjóri á Blönduósi:
Kemur út á miðvikudögum. Útgefandi
Feykir hf. Skrifstofa Aðalgötu 2, Sauð-
árkróki. Póstfang: Pósthólf 4, 550 Sauð-
árkróki. Sími 95-35757. Myndsími 95-
36703. Ritstjóri Þórhallur Ásmundsson.
Fréttaritarar: Magnús Olafsson A.-Hún. og
Eggert Antonsson V.-Hún. Blaðstjóm: Jón F.
Hjartarson, Guðbrandur Þ. Guðbrandsson,
Sæmundur Hermannson, Sigurður Ágústsson
og Stefán Ámason. Áskriftarverð 137 krónur
hvert tölublað m/vsk. Lausasöluverð 150 kr.
m/vsk. Setning og umbrot Feykir. Prentun
Sást hf. Feykir á aðild að Samtökum bæja-
og héraðsfréttablaða.