Feykir


Feykir - 04.01.1995, Blaðsíða 8

Feykir - 04.01.1995, Blaðsíða 8
4. janúar 1995,1. tölublað 15. árgangur. Slérkur auglýsingamiðill Það komast allir í Gengið unglingaklúbb Landsbankans Sláðu til og komdu í Gengið Pottþéttur klúbbur! m Landsbanki Sími 35353 ^iands Banki allra landsmanna Dagur Baldvinsson í hópi félaga sinna og körfuboltamannsins Torrey John sem afhenti verð- launin í samkeppninni. Samkeppni um nafn á félagsmiðstöðina: Friður skal hún heita í haust efndu stjórnendur félagsmiðstöðvar- innar á Sauðárkróki til samkeppni meðal unglinganna um nafn á félagsmiðstöðinni, en hún hefur verið nafnlaus í þau þrjú ár sem hún hefur starfað. Hvorki fleiri né færri en 210 hugmyndir bárust og í síðustu viku voru kunngerð úrslit. Fyrir valinu varð hugmynd Dags Þórs Baldvinssonar 10. bekkjar K. Dagur lagði til að félagsmiðstöðin hlyti nafn- ið Friður og hlaut hann í verðlaun fyrir hug- myndina hljómflutningstæki að verðmæti 44 þúsund. Nokkur fyrirtæki í bænum styrktu fé- lagsmiðstöðina vegna samkeppninnar. Þau eru, Bókabúð Brynjars, Dögun, Fiskiðjan, Hegri, Hótel Mælifell, Kaupfélag Skagfirðinga, Rafsjá, Sást, Steinullarverksmiðjan, Tengill og Tré- smiðjan Borg. Mikil tómstundastarfsemi fer fram í félags- miðstöðinni og er hún vel sótt af bömum og ung- lingum sem eyða þar oft stómm hluta dagsins. Bygging brúar á Jökulsá eystri Frumvarp fyrir Alþingi um hringtengingu um framsveitir Skagafjarðar Stefán Guðmundsson alþingis- maður heflir lagt fram þins- ályktunartillögu sem miðar að því að byggð verði brú yfir Jök- ulsá eystri í Skagafirði og þar með verði loks komið á hring- tengingu um fremstu sveitir Skagfjarðar, en til langs tíma voru uppi hugmyndir um veg- tengingu af Héraðsdalsvegi með brú yfir Jökulsá hjá Flatatungu á þjóðveg númer eitt. Jafnhliða hugmyndum um virkjun Jök- ulsár eystri var rætt um brúar- gerð á þessum stað. í fmmvarpi Stefáns felst aö samgönguráðherra verði falið að gera áætlun um þessa vegteng- ingu. I greinargerð segir að meó þeirri framkvæmd sem hér sé lagt til að verði athuguð, komist á hringtenging um fremrihluta Skagafjarðar. Hún muni opna margvíslega nýja möguleika til hagræðis og mikils ávinnings, svo sem flutning afurða um mjög bætta þjónustuleió. Vegtengingin opnar einnig nýjar leiðir fyrir þá er vilja njóta fegurðar skagfirskra dala og þeirra er öræfin heilla og vilja m.a. aka um Sprengisand. Þá segir einnig að ferðaþjónusta sé mjög vaxandi atvinnugrein. Eng- inn vafi er á að ferðaþjónusta á þessu svæði mun hafa af því mik- inn ávinning að sú framkvæmd, sem hér er lagt til að verði athug- að, komist sem allra fýrst til ifam- kvæmda. Mannfjöldaskrá Norðurlandi vestra: Fólksfækkun um 1,4% á síðasta ári Ekki prófkjör hjá krötum Stjórn kjördæmisráðs Alþýðu- flokksins á Norðurlandi vestra ákvað á fundi skömmu fyrir jól að ekki yrði efiit til prófkjörs að þessu sinni, heldur tæki ráðið sér frest framundir 15. janúar með uppstillingu á Iistann. Á þeim tíma er gert ráð fyrir aukakjördæmisþingi þar sem endanleg ákvörðun verði tekin um uppröðun á lista flokksins fyrir alþingiskosningarnar 8. apríl nk. Að sögn Steindórs Haralds- sonar á Skagaströnd formanns kjördæmisráðs er einhugur um þetta fyrirkomulag og prófkjörið ekki talið henta nú. Auk Steindórs mun uppstilling á listann trúlega mæða mikið á kjördæmisstjómar- mönnunum Jóni Karlssyni á Sauðárkróki og Guómundi Áma- syni á Siglufirði. Nöfn tveggja manna hafa einkum verið nefhd varðandi efsta sæti væntanlegs framboðslista. Líklegt þykir að annaðhvort Jón F. Hjaitarson skólameistari á Sauðárkróki eóa Kristján Möller forseti bæjarstjómar á Siglufirói muni skipa það sæti. □ Fólki fækkaði á Norðurlandi vestra um 514 á síðasta ári sam- kvæmt bráðabirgðatölum Hag- stofunnar, eða um 1,4%. Á þétt- býlisstöðum varð fækkunin mest á Siglufirði, 2,6%. íbúar þar eru nú 1734 en voru 3103 þegar uppgangurinn var sem mestur á sfldinni 1948. Á Sauðárkróki og Skagströnd varð óveruleg fólksfjölgun á ár- inu, innan við eitt prósent og var fjölgunin minni á Sauðárkróki en undanfarin ár. Er helsta ástæða þess væntanlega að mörg herrans ár em síðan jafhfá böm fæddust á Króknum og á síðasta ári. A Blönduósi og Hvammstanga fækkaði íbúum á síðasta ári um 2%. í sveitunum hélt fólki áfram að fækka, þannig að í dreifbýli kjördæmisins hefur fólki fækkað um 15% á liðnum áratug. Oddvitinn Friður sé með yður! TM tryggingar þegar mest á reynir Söluumboð á Sauðárkróki: Bókabúð Brynjars, sími 35950. Trygginga- miðstöðin hf.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.