Feykir - 04.01.1995, Side 5
1/1995 FEYKIR5
ð er liöiö Nú áriö er liöiö Nú áriö er liöiö Nú áriö er liöiö
nesi í Skefilsstaðahreppi lét af starfi í
kjörstjórn eftir aó hafa gegnt því í 50
ár. Hann var fyrst í kjörstjórn þegar
kosið var um lýðveldið 1944 og hefur
verið í kjörstjóm síðan, aldrei látið sig
vanta.
Sjómönnmn fagnað
Skipshöfnum Hegraness og Drang-
eyjar var fagnaó vió komuna til Sauð-
árkróks að lokinni sögulegri veiðiferö
á Svalbaröasvæðinu, þar sem standa
þurfti í ströngu að veijast aðgerðum
norsku strandgæslunnar. Það þótti
t.d. mesta mildi aó skipveijar á
Drangey skyldu sleppa lifandi undan
Senju stærsta skipi strandgæslunnar,
sem er margfalt stærra skip en Drang-
ey, er þaö sigldi á fullri ferð í átt að
skipinu. Með snarræði skipsstjórn-
enda á Drangey tókst aö bakka skip-
inu á örskotsstundu.
Hross tekin af feðgum
A þriðja tug hrossa vom tekin af
feðgum á Króknum þar sem sannað
þótti að hrossin hefðu mátt þola van-
fóðrun um nokkurt skeið. Skepnuhald
feðganna hafði ítrekað komið inn á
borð lögreglu og bæjaryfirvalda á
Króknum.
Bruni í Áshúsi
Eldur kom upp í Ashúsi við Glaum-
bæ, rétt áóur en taka átti húsið í notk-
un. Svo heppilega vildi til að munir
höfðu ekki verið færðir í húsið. Héraðs-
ráð Skagfirðinga ákvað á næsta fundi
sínum að ráðist yrði í aö bæta það tjón
er varð á húsinu í brunanum, en það
varð töluvert.
Varanlegur vegur fyrir Skaga
Vegagerðin réðst í gerð varanlegs
vegar milli bæjanna Víkna og Hrauns,
en þar hafði áður einungis verið niður-
grafinn vegarslóði er ætíð lokaðist í
fyrstu hretum að haustinu. Þar með er
kominn varanlegur vegur fyrir Skag-
ann milli Skagfjarðar og Austur-
Húnavatnssýslu.
Nýir sfjómendin*
Guðmundur Guómundsson var
ráðinn sveitarstjóri á Hvammstanga.
Guðmundur var áður sveitarstjóri á
Raufarhöfn. Þá var Skúli Þórðarson
frá Hvammstanga ráðinn bæjarstjóri
á Blönduósi. Skúh gegndi áöur starfi
framkvæmdastjóra SSNV.
Síldarminjar sóttar á Krókinn
Það þótti nokkuð skondið þegar
Siglfirðingar náðu í gamla síldamót á
Krókinn, en nót þessi hafði verið
geymd í um 50 ár á sperrulofi gamla
barnaskólans. Sauóárkrókur var
nefnilega aldrei mikih sílarbær, þótt
söltuð væri þar síld á tímabih, en
SigluQöróur var um tíma mesti síldar-
bær landsins, eins og frægt er orðið.
Frækin feðgin í Glaumbæ
Afhjúpaður var í Glaumbæ minnis-
varói um Guðríði Þorbjamardóttur og
Snorra Þorfmnsson. Guðríður, sem
var á sinni tíó víðfömh sæfarandi, var
fyrsta evrópukonan sem ól bam í Am-
eríku, Snorra Þorfinnsson, og em þau
mæðgin talin bera bein sín í Glaum-
bæ. Fjölmenni var viðstatt athöfina
þar á meðal forseti Islands frú Vigdís
Finnbogadóttir og afhjúpaði hún
minnisvarðann.
Smuguveiðar jafiigildar kvótaniun
Skip útgerðarfélagsins Skagfirðings
hafa í sumar veitt tæplega 1500 tonn í
Smugunni og slagar þaó hátt í þann
bolfiskkvóta sem skip Skagfiróings
hafa í íslensku landhelginni.
Norðmenn taka við Miklalaxi
Kílaveiki er upp kom í matfiskeld-
isstöð Miklalax við Hraunakrók
snemma sumars kippti endanlega fót-
unum undan rekstri stöðvarinnar.
Norskur aðih keypti fiskinn í stöóinni
af Búnaðarbanka Islands á 14 mihjón-
ir króna og seinna á árinu keypti þessi
norski aðih sjálfa stööina af Byggða-
stofnun á 25 mihjónir króna.
Grunnamir sigu
Byggingarframkvæmdir vom
stöðvaðar á fjómm lóóum vió Eyrar-
tún á Sauöárkróki þegar í ljós kom að
sökkulveggir sem steypir höfðu verið
undir tvö hús höfðu sigið um 6 senti-
metra á einum og hálfum mánuði.
Bæjaryfirvöld buðust til að leysa þess-
ar lóöir til sín og útvega nýjar í þeirra
stað. Ekki er ljóst hvort umræddar lóð-
ir verða byggingarhæfar í framtíðinni
vegna djúps leirlags er liggur undir
þeim.
Drangeyjarsimd eftir langt hlé
I lok mánaðarins bættist enn einn
Drangeyjarsundkappinn við þegar 37
ára Skagamaður Kristinn Einarsson
þreytti sundió. Það tók Kristinn fimm
og hálfan tíma að synda úr Draney til
lands. Kristinn er sá sjöundi í röó
Drangeyjarsundkappa og í vikunni
áður höfóu þrír þeirra tekið sér ferð á
hendur út í Drangey í boði Jóns Ei-
ríkssonar Drangeyjaijarls, þeir Pétur
Eiríkssonar, Eyjólfiu- Jónsson og Axel
Kvaran.
Bóknámshúsið vígt
Stór stund rann upp í skólamálum
Noröurlands vestra 3. september þeg-
ar bóknámshús fjölbrautaskólans var
formlega tekið í notkun vió blessun
biskupins yfir íslandi Ólafs Skúlason-
ar. Skólahúsnæðið nýja er hiö glæsi-
legasta, um 2500 fermetrar að stærð,
en eftir er að byggja seinni áfanga
hússins sem er um 2000 fermetrar.
Mikið vatn er runnió til sjávar frá því
farið var að ræða um byggingu bók-
námshúss og margir lagt því lið, með
Jón F. Hjartarson skólameistara
fremstan í flokki.
Frjósemi á Skúfsstöðum
Ung kýr á Skúfsstöðum í Hjaltadal
sýndi af sér afburða fijósemi þegar
hún bar þrem kálfum og lifóu þeir ah-
ir, þó einn þeirra lægi ofan í skuröi
þegar Sigurður bóndi á Skúfsstöðum
ÓSKIPTAR Á EINN MIÐA 12. JANUAR
UMBOÐ A NORÐURLAND
Heppnin
bíður þín hér
Eina stórhappdrættið þar sem hæsti vinningurinn gengur
örugglega út.
Ef hann gengur ekki út í einum mánuði leggst hann við þann
hæsta næst... og svo koll af kolli. Enginn veit þess vegna
hversu hár hann getur orðið.
Stórglœsilegir aukavinningar: Listaverk eftir marga af
þekktustu listamönnum okkar, í hverjum mánuði.
HVAMMSTANGI:
Róberta Gunnþórsdóttir,
Lækjargötu 6, sími 95-12468
BLÖNDUÓS:
Kaupfélag Húnvetninga,
sími 95-24200
SKAGASTRÖND:
Guðrún Pálsdóttir,
Bogabraut 27, sími 95-22772
SAUÐÁRKRÓKUR:
Friðrik A. Jónsson,
Háuhlíð 14, sími 95-35115
HOFSÓS:
Ásdís Garðarsdóttir,
Kirkjugötu 19, sími 95-37305
SIGLUFJÖRÐUR:
Birgir Steindórsson,
Aðalgötu 26, sími 96-71301
GRÍMSEY:
Kristjana Bjarnadóttir,
Sæborg, sími 96-73111
ÓLAFSFJÖRÐUR:
Valberg hf., sími 96-62208
HRÍSEY:
Erla Sigurðardóttir, sími 96-61733
DALVÍK:
Sólveig Antonsdóttir,
Verslunin Sogn, sími 96-61300
AKUREYRI:
Björg Kristjánsdóttir,
Strandgötu 17, sími 96-23265
SVALBARÐSSTRÖND:
Sigríður Guðmundsdóttir,
Svalbarði, sími 96-23964
GRENIVÍK:
Brynhildur Friðbjörnsdóttir,
Túngötu 13B, sími 96-33227
LAUGAR REYKDÆLAHREPPI:
Rannveig H. Ólafsdóttir,
sími 96-43181
MYVATNSSVEIT:
Hólmfríður Pétursdóttir,
Víðihlíð, sími 96-44145
HÚSAVÍK:
Jónas Egilsson,
Árholti, sími 96-41405
AÐALDALUR:
Kristjana Helgadóttir,
Hraungerði, sími 96-43587
KÓPASKER:
Óli Gunnarsson, sími 96-52118
RAUFARHÖFN:
ísabella Bjarkadóttir
Ásgötu 16, sími 96- 51313
ÞÓRSHÖFN:
Sparisjóður Þórshafnar og
nágrennis, sími 96-81117
Fáðu þér áskrift í tœka tíð.
Nýtt áskriftarár er að hefjast. Dregið 12. janúar.
Upplýsingar um nœsta umboðsmann í síma 91-22150 og 23130
m
t