Feykir - 18.01.1995, Blaðsíða 2
2FEYKIR 3/1995
Frá starfi Kvenfélags Sauðárkróks:
Dægurlagakeppi
í Sæluviku
Á árum áður stóð Kvenfélag
Sauðárkróks fyrir dægurlaga-
keppni á Nýársdag sem er fjár-
öflunardagur félagsins. Þessi
siður datt siðan niður um 1970,
en á síðustu Sæluviku Skagfirö-
inga var þráðurinn tekinn upp
að nýju. Þá þótti takast afar vel
til og á næstu Sæluviku, sem
samkvæmt venju verður í apríl
nk. mun kvenfélagið aftur
standa fyrir dægurlagakeppni.
Á síðasta ári var það Hún-
vetningur sem bar sigur úr bít-
um, en 10 lög kepptu til úrslita.
Sigurlagið hét „Skagfirska
mannlífið", höfundur lags var
Bjöm Hannesson frá Laugar-
bakka og Akureyringurinn
Ingvar Grétarsson flutti. Þá var
það skilyrði sett að texti lagsins
þyrfti að fjalla á einhvem hátt
um Skagafjörö, en svo verður
ekki nú.
Fyrirkomulag keppninnar
verður að öðm leyti með svip-
uðu sniöi og í íyrra. Sérstofnuð
hljómsveit mun sjá um flutning
laganna og einnig mun hljóm-
sveitarstjórinn, Hilmar Sverris-
son, annast útsetningu laganna
ef höfundar óska þess. Áætlað
er að lögin sem keppa til úrslita
verói gefin út á snældu undir
nafninu „Sæluvikulögin ‘95“.
Höfundar skila lögunum inn á
hljóðsnældu og frumsaminn
texti á að fylgja með. Skilatrest-
ur er til 10. febrúar nk. í póst-
hólf kvenfélagsins nr. 93 á
Sauðárkróki.
Hér áður fyrr var það aðal-
lega heimafólk sem tók þátt í
keppninni en þátttakendur í
fyrra komu víða að. Tækninni
hefur fleygt fram þannig að það
er allt annað að taka þátt í svona
keppni núna en áður og sömu-
leiðis að framkvæma hana, en
þetta er virkilega spennandi og
gaman að hægt sé að standa að
svona viðburði utan Reykjavík-
ursvæðisins.
Á þessu ári, eða 25. ágúst í
sumar, verður Kvenfélagið 100
ára. Kvenfélag Sauðárkróks var
stofnað út frá kennasamtökum í
Hegranesi sem er lyrsta og jafn-
framt elsta kvenfélag í heimi.
Þessa tímamóta verður minnst
síðar á árinu meó ýmsum hætti.
(fréttatilkynning).
Jón Hjartar líklegastur í
efsta sætið hjá krötum
Svæðisútvarpið skýrði frá því
í gærkveldi að flest benti til
þess að Jón F. Hjartarson
skólameistari Fjölbrauta-
skóla Norðurlands vestra
mundi skipa efsta sæti lista
Alþýðuflokksins í kjördæm-
inu við komandi Alþingis-
kosningar.
I fréttinni var greint frá því
að Kristján Möller á Siglufirði,
sem fram til þessa hefur verið
nelhdur sem líklegur kandidat í
fyrsta sætið, hafi ákveðið aö
gefa ekki kost á sér í það sæti,
og mundi hann væntanlega
gefa út yfirlýsingu þess efnis í
dag.
Kjömefnd mun hafa farið
þess á leit við Ólöfu Kristjáns-
dóttur bæjarfulltrúa á Siglufirði
að hún gefi kost á sér í annað
sæti listans, en Ólöf mun enn
sem komið er ekki hafa gefið
ákveðið svar. Stefnt er að fúndi
hjá Alþýðuflokksmönnum
varðandi framboðsmálin á
næstu dögum.
Aðalfundur knattspyrnu-
deildar Tindastóls
veróur haldinn á skrifstofu félagsins fimmtudaginn
26. janúar kl. 21. Venjuleg aðalfundarstörf.
Allt áhugafólk velkomið á fundinn!
Stjómin.
Tíðarfarið seinkaði prófkjöri
Framsóknarflokksins
Áætlað að talning hefjist upp úr miðjum degi í dag
Fyrsti kjörkassinn barst á talningastaðinn, Framsóknarhúsið á
Sauðárkróki, síðdegis á mánudag. Hér afhendir Jóhannes
Ríkharðsson frá Brúnastöðum Sighvati Torfasyni fulltrúa í
kjörstjóm kjörkassann úr Fljótahreppi.
Norðanáhlaupið sem gekk í
garð sl. sunnudag setti strik í
reikninginn með framkvæmd
prófkjörs Framsóknarflokks-
ins. Verst viðraði í Húnavatns-
sýslum og á Siglufirði, og frá
þessum stöðum komu óskir til
kjörnefndar þess efnis að
prófkjörið yrði framlengt um
einn dag. Á mánudag viðraði
enn illa á þessum stöðum og
varð því kjörnefndin við því að
prófkjörið yrði framlengt um
einn dag enn, og voru kjör-
staðir því opnir fram á miðjan
dag í gær.
Kjörkassar koma með taln-
ingarmönnum úr Húnaþingi og
frá Siglufirði í dag. Ekki er til
fullnustu vitað um fjölda þeirra
er kusu en samkvæmt óstað-
festum fréttum í gærkveldi, var
áætlað að alls hefði kjörsókn
verið um 2300 í kjördæminu, þar
af hefði hún nálgast 1000 í
stærstu kjördeildinni á Sauð-
árkróki, þar með talin utankjör-
staðaatkvæði og atkvæöi Skarós-
og Rípurhreppinga er einnig
kusu á Króknum.
Urslita prófkjörsins er beðið
meö spenningi. Alþingismenn-
imir Páll Pétursson og Stefán
Guðmundsson hafa bitist hart
um efsta sætió og ekki gott að
sjá fyrir hvemig sú barátta endar.
Margir hafa hallast að því að Páll
haldi efsta sætinu, en séu þessar
kjörtölur réttar, er allt eins líklegt
að mjótt verði á munum.
Eins og jafnan þegar barátta
þeirra efstu kemst í algleyming
er lítið minnst á aðra þátttak-
endur. Elín Líndal frá Lækjar-
móti í Vestur-Húnavatnssýslu
hel'ur sterklega verið orðuð við
þriðja sætið, og má líklegt telja
að hún komi í kjölfar þeirra Páls
og Stefáns á listanum.
Harmleikur á Súðavík
Fjórtán manns lætur lífið í snjóflóði
Mesta áfall íslenskrar þjóðar um árabil dundi
yfir sl. mánudagsmorgun þegar gífurlegt snjófljóð
hljóp úr fjallendi fyrir ofan þorpið Súðavík við
Álftafjörð. Snjóflóðið hreif með sér um 10 íbúðar-
hús og 14 manns létu lífið, fólk á bamsaldri var í
meirihluta þeirra er létusL Tólf manns var bjargað
úr fannferginu af vösku björgunarliði sem vann
störf sín við þær erfiðustu aðstæöur sem hugsast
getur, við óveður og myrkur. Mannskaóinn í
Súðavík er sá mesti er orðið hefur í snjóflóðum hér
á landi síðan snjóflóð féll í Siglufirði fyrr á öldinni.
Ekki em nema 20 ár síðan 12 manns létu lífið í
snjóflóði í Neskaupstað.
Oll íslenska þjóðin er felmtri slegin vegna
þessara dapurlegu viðburða og víða blöktu fánar í
hálfa stöng í gær. Bænastundir hafa verið í kirkjum
landsins og þátttaka í þcim verið mikil. Þegar slíkir
atburðir gerast sameinast þjóðin í eina sál, eða eins
og forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir sagði í
ávarpi sínu til þjóðarinnan „Missir eins er missir
okkar allra. Hvort sem við emm nær eða fjær því
svæði sem orðið hefur fyrir miskunnarlausum
náttúmöflum dvelur hugur okkar hjá öllum þeim
sem af hefúr verið höggvið’*.
Því hefur verið haldió fram aó baráttan við
náttúmöflin sé það gjald sem við þurfum að inna af
hendi fyrir það að vera íslendingar. Ljóst er að
mannveran mátti sín lítils vestur á Súðavík sl.
mánudagsmorgun og þannig hefúr það jafúan verið
þegar náttúmöflin hafa leyst úr læðingi.
Séra Jakop Hjálmarsson dómkirkjuprestur og
fyrrum prestur vestra, er einn þeirra mörgu sem
fylgst hafa með atburðunum vestra úr fjarlægð, af
fréttum úr útvarpi og sjónvarpi. Á bænastund í
Dómkirkjunni sl. mánudag sagði séra Jakop m.a.:
„Hversu viðbúin emm við aó taka slíkum fregnum
sem hafa borist til okkar í dag? Það er sem hafi reist
sig ógnarhár snjóskafi til að hvolfast yfir okkur öll
og færa hamingju okkur í kaf. Kuldi leggst aó
hjarta okkar og óttinn kemur með éljagangi inn í
stofuna hjá okkur. Hvílík ósköp hafa gengið yfir
þetta blessaða fólk sem búið hefúr í Súðavík. Bömin
sem léku sér í sumar á grænu túni við bláan fjörð
sem skýlt var af háum fjöllum, sem sagðir em vera
óskasteinar, og áttu engar áhyggjur hafa verió hrifin
burt frá okkur í hamfömm náttúmnnar. Dugmiklar
manneskjur sem hafa unnið hörðum höndum að
framleiðslu verðmæta fyrir þjóðarbúið, hafa látið líf
sitt. Sumir liggja slasaðir, einhverjir týndir, húsin
brotin, allt í rústum. Hvað getum við sagt annað en
Drottinn hjálpa þú!“
□
Kemur út á miðvikudögum. Útgefandi
Feykir hf. Skrifstofa Aðalgötu 2, Sauðárkróki.
Póstfang: Pósthólf 4, 550 Sauðárkróki. Sími
95-35757. Myndsími 95-36703. Ritstjóri Þór-
hallur Ásmundsson. Fréttaritarar: Magnús
Olafsson A.-Hún. og Eggert Antonsson V.-Hún.
Blaðstjóm: Jón F. Hjartarson, Guðbrandur Þ.
Guðbrandsson, Sæmundur Hermannson,
Sigurður Ágústsson og Stefán Árnason.
Áskriftarverð 137 krónur hvert tölublað
m/vsk. Lausasöluverð 150 kr. m/vsk. Setning
og umbrot Feykir. Prentun Sást hf. Feykir á
aðild að Samtökum bæja- og héraðsfrétta-
blaða.