Feykir - 18.01.1995, Page 3
3/1995 FEYKIR3
Vélsmiðja Húnvetninga:
Framleiðsla hafin á
þvottavélum fyrir
f iskkör og f iskkassa
Sigurborgin VE við bryggju í Vestmannaeyjum. Mynd/Fréttir.
Hvammstangabúar
plötuðu Eyjamenn
Af götunni
Allt úr böndum
Samkvæmt yfírlýsingum ífam-
bjóðenda í prófkjöri Framsóknar-
flokksins í kjördæminu fór
prófkjörið allrækilega úr bönd-
um. Utankjörstaðakosningin var
með því rúmasta er gerist í próf-
kjörum. Þjónusta við kjósendur
yar frábær, heimsendingarþjón-
usta eins og nú gerist best og
kosningin var framkvæmd á hin-
um ýmsu stöðum, á fjósstéttinni,
í hlöðugættinni, í þvottahúsinu,
eldhúskrókum, á kaffistofum,
verkstæðinu og sem sagt út um
allt.
Stuðningsmenn Stefáns ásaka
stuðningmenn Páls um að hafa
brugðist þeim leikreglum sem
ákveðnar höfðu verið fyrir próf-
kjörið og hafi því átt upptökin að
því að beita þeim aöferðum sem
eyðilögðu þetta prófkjör, smala-
mennskunni. Starfsmaður kjör-
staóar á Sauðárkróki hafi fram-
kæmt utankjörstaðakosninguna
af samviskusemi, en á sunnudeg-
inum fyrir rúmri viku hafi síðan
frést af því að trúnaðarmaður
flokksins í Akrahreppi ferðaðist
um með bunkana af kjörseðlunum
milli bæja. Þegar síðan prófkjör-
ið var tvíframlengt að beiðni
stuðningsmanna Páls, höfðu gár-
ungamir að orði að þetta væri
orðið það langlengsta prófkjör
sem nokkru sinni hefði farið
fram. Páll svarar þessu með því
að segja aó hann viti ekki hvað
stuðningsmenn Stefáns séu að
fara, menn hljóti að vera að fara
átaugumvið óttann að tapa.
Samsæriskenningar
Það verður ekki annað sagt en
hún hafi vakið fuiðu margra fretta-
skýringin í DV í síðustu viku, þar
sem getgátur eru hafðar uppi um
að fylgismenn séra Hjálmars
Jónssonar og Stefáns Guð-
mundssonar hafi myndað banda-
lag um stuðning á víxl milli próf-
kjöranna. Þeir sem til þekkja vita
nefnilega aó fáleikar nokkrir em
með þessum tveim frambjóðend-
um, enda munu framsóknar-
menn á Sauóárkróki ekki koma
til með að fýrirgefa Hjálmari það
að hann reyndist ekki eins mikill
framsóknarmaður og þeir héldu
á sínum tíma, en það var að
beiðni framsóknar sem Hjálmar
tók fyrst sæti í nefndum Sauðár-
króksbæjar, m.a. í skólanefnd.
Þessi samsæriskenning pass-
aði sem sé engan veginn, en að
mati margra hefði það passað
betur að stuðningsmenn Páls og
Hjálmars hefóu átt samstarf í
prófkjörinu, og stuðningsmenn
Vilhjálms og Stefáns, en það er
staðreynd að nokkur hluti þeirra
sem þátt tóku í prófkjöri Sjálf-
stæðisflokksins tóku einnig þátt í
prófkjöri Framsóknarflokksins.
Einstaka maður hefur gefið þá
skýringu á þessu framfcrði sínu,
að hann sé mótfallinn opnum
prófkjörum, og vilji með þessu
reyna að koma í veg fyrir þau.
Vélsmiðja Húnvetninga hefur
byrjað framleiðslu á þvotta-
vélum sem ætlaðar eru til
þvotta á fiskikörum og fiski-
kössum. Að sögn I>orláks Þor-
valdssonar framkvæmdastjóra
eru nú þrjár vélar í smíðum
og er reiknað með að fyrsta
vélin verði afhent í byrjun
næsta mánaðar, en mikið hef-
ur verið spurt fyrir um vélina
bæði innanlands og utan,
enda hingað til ekki verið á
markaði vélar til þessara
nota. Sölumaður á ferð um
Iandið er kominn með sjö
pantanir á vélum og það er
því útlit á að stöðug fram-
leiðsla verði á þvottavélunum
á næstu mánuðum.
Hönnuður þessara þvottavéla
er Alexander Sigurðsson í Véla-
hönnun í Sigtúni í Reykjavík.
Alexander hefur smíðað eina
vél og hefur hún verið í notkun
í Fiskmarkaði Hafnarfjarðar og
reynst þar vel. Utfærslan hefur
verið bætt og þróuð frá þessari
fyrstu vél.
Að sögn Þorláks fram-
kvæmdastjóra Vélsmiðjunnar
hafa fiskkassar og kör hingað til
verið þvegin undir háþrýstingi.
Það hefur viljaó skemma yfir-
borð kassa og kara og það leitt
til hættu á gerlamyndun í yfir-
borði þeirra. Vélin afkastar jafn-
miklu í þvotti á klukkustund
eins og áætlaó er að einn maður
afkasti yfir daginn. Særún á
Blönduósi hefur fest kaup á
fyrstu vélinni og eins og áður
segir lítur mjög vel út með sölu.
Hönnuðurinn er einnig með
markaðssvið og til hans og Vél-
smiðjunnar á Blönduósi hafa
borist margar fyrirspumir og
nokkrar pantanir.
Vélsmiðja Húnvetninga réðst
á síðasta ári í það aö kaupa
framleiðslurétt á þremur vélum.
Auk þvottavélarinnar er um aö
ræða beituskurðarvél og iðnað-
arsprautu fyrir matvælaiðnað.
Þorlákur segir að fljótlega eftir
aó framleiðsla þvottavélarinnar
verði komin á fullan damp verði
hafist handa við að framleiða
beituskurðarvélina.
Hér er um að ræða viðleitni
forráðamanna Vélsmiðjunnar til
nýsköpunar í atvinnulífinu. Gert
er ráð fyrir að hún skili 3-4 árs-
störfum. Fljótlega verða vænt-
anlega ráönir tveir nýir starfs-
menn til Vélsmiðjunnar, en
áætlað er að viðbótin muni að
öðm leyti leiða til bedi nýtingar
á mannafla, a.m.k. fyrst um
sinn.
Blaðið Fréttir í Vestmannaeyj-
um sagði frá því sl. fimmtudag
að Hvammstangamenn hefðu
platað Eyjamenn í sambandi
við kaupin á Sigurborgu VE,
með því að fara í kringum
ákvæðið í lögunum um flsk-
veiðistjórnun um forkaupsrétt
sveitarfélaga á fiskiskipum og
kvóta. I>etta ákvæði haldi ekki,
þar sem að nóg sé að stofna fé-
lag um skipið í heimahöfn þess.
Þá megi flytja félagið ásamt
skipi og aflaheimildum hvert á
land sem er.
Guðmundur Tryggvi Sigurðs-
son framkvæmdastjóri Meleyrar
segir í samtali við Fréttir, að það
sé ekkert leyndarmál að hlutafé-
lagið Vonin hafi verið stofnað
um kaupin í Vestmannaeyjum.
„Við gerðum tilboð í bátinn með
það fyrir augum aó reyna að
eignast hann. Ég skil það vel að
Vestmannaeyingamir sjái eftir
kvótanum og því miður hefur
baráttan um aflaheimildirnar
harðnað og m.a. þess vegna hef-
ur sveitarfélagið komið inn í
rekstur Meleyrar. Auðvitað er
það ekki heppilegt aö sveitarfé-
lög standi í atvinnurekstri en þá
afstöðu verður að endurskoða
þegar þetta er orðið spuming um
líf eða dauða bæjarfélaganna.“
Guómundur Tryggvi segir að
samsetning á kvóta Sigurborgar
sé að mörgu leyti óhagstæð fyrir
Meleyri og muni þeir spila úr
honum eftir því hvemig kaupin
gerast á eyrinni hverju sinni. Sig-
urborg er með 606 þorksígilds-
kvótann og eru 126 tonn kvótans
þorskur, 177 tonn ýsa, 58 ufsi,
105 tonn karfi og 134 tonn út-
hafsrækja.
Aðalsími Feykis er 35757
Samvinmibókio.
Viðskipti við innlánsdeildina
þýða hagkvæma ávöxtun í
heimabyggð og uppbyggingu
atvinnulífsins til hagsældar.
Nafnvextir 4,3% ársávöxtun 4,35%
Ársávöxtun á síðasta ári var 4,84%
Innlánsdeild
Kaupfélags
Skagfiröinga