Feykir - 18.01.1995, Page 5
3/1995 FEYKIR5
Nemendatónleikar
í Tónlistarskóla
Sauðárkróks
Nemendur í Tónlistarskóla
Sauðárkróks eru í vetur rúm-
lega 140 og er fjöldi nemenda
heldur færri en síðustu árin,
einnig minna um það í vetur
að fullorðið fólk sæki skólann,
að sögn Evu Snæbjarnardótt-
ur skólastjóra. I fyrrahaust
hóíst kennsla í dægurlagasöng
við skólann. Hefur aðsókn ver-
ið mjög góð og myndaðist strax
biðlisti. Þá er klassískur
söngur kenndur við skólann
eins og áður.
„Við eigum mjög góðar fiðlur
til að kenna á, en því miður hefur
okkur ekki tekist að útvega fiðlu-
kennara hvorki í vetur né fyrra.
Þar eru sorglegt að þurfa að
pakka þessum góðu hljóðfærum
niður í kassa“, sagði Eva. Tekist
hefur að útvega kennara á önnur
hljóðfæri og eru kennarar við
skólann í vetur átta með skóla-
stjóranum.
A jólaföstunni voru haldnir
nemendatónleikar þar sem for-
eldrum og velunnurum skólans
var boðið að mæta. Tónleikamir
stóðu tvö kvöld, boðið var upp á
29 tónlistaratriði fyrra kvöldið og
25 það seinna fyrir utan söng
skólakórsins.
Gítarleikararnir Helgi Páll Jónsson og Brynjar Elefsen leika,
ásamt kennara sínum Eiríki Hilmissyni, sem er í miðið.
Systkinin Magnús Barðdal Reynisson og Sesselía Barðdal Reynis-
dóttir leika saman og það er kennari þeirra Rögnvaldur Val-
bergsson sem gefúr tóninn.
Stúlka fyrir bíl við
gangbraut á Króknum
Sextán ára stúlka varð fyrir bfl á Skagfirðingabraut á móts við
sundlaugina sl. föstudagskvöld. Stúlkan slapp við alvarlega
áverka, marðist lftfllega.
Að sögn lögreglunnar á Sauðárkróki var dimmvióri þegar þetta
gerðist og skyggni fremur slæmt. Lögreglan telur þó greinilegt að
ökumaður hafi ekki sýnt nægjanlega aðgæslu þar sem sýnt þyki að
hann hafi tekið fram úr öðmm bíl við gangbrautina sem er gegnt
sundlauginni.
Léttsveit Tónlistarskólans lék nokkur lög á tónleikunum á jólaföstunni. Meðlimir sveitarnnar eru frá
vinstri talið: Kristján Kristjánsson á trommur, Gísli Þór Olafsson gítar, Rögnvaldur Valbérgsson
tamborine, Arnfríður Hreinsdóttir bassi, Birgir Oli Sigmundsson trompett og Guðbrandur Guð-
brandsson blásturskennari leikur á trompett. A myndina vantar hljómborðsleikarann Reynhildi
Karlsdóttur.
Þessir mynduðu hljómsveit á tónleikunum: Brynjar Páll Valbergsson trommur, Guðmundur K.
Kárason bassi, Ævar Ingi Gíslason píanó, Andri Sigurðsson gítar og Gestur Hrannar Hilmarsson
þverflautu. A myndina vantar Atla Finndal Heimisson orgelleikara.
Húsnæðisnefiid Sauðárkróks
auglýsir eftirtaldar íbúöir til sölu:
Félagslegar eignaríbúðir
Grenihlíð 28, neóri hæó, tveggja herberja, 77,7 fermetra,
Grenihlíó 30, neóri hæö, tveggja herbergja, 77,7 fermetra,
Laugatún 7, efri hæö, fimm herbergja, 119,7 fermetra,
Víóimýri 4, 0301, þriggja herbergja, 98,4 fermetra.
- Bílgeymsla samkvæmt reglum þar um -.
Félagsleg kaupleiguíbúð
Skógargata 2, 0101, fjögurra herberja, 101,5 fermetra.
Almennar kaupleiguíbúðir
Jöklatún 20, þriggja herbergja, 90,4 fermetra,
Jöklatún 22, þriggja herbergja, 90,4 fermetra,
Laugatún 10, fimm herbergja, 129,5 fermetra.
Upplýsingar um veró og reglur, sem gilda um sölu á
áóurnefndum íbúóum, eru veittar á bæjarskrifstofunni.
Sauóárkróki 16. janúar 1995
Húsnœðisnefnd Sauðárkróks.