Feykir - 18.01.1995, Page 6
6FEYKIR 3/1995
*l/<a£*t<bcU&Ca,
~7ec&*t: (lóHAacMt
*7extc: “Póná.
1. Maður er nefndur Ketill raumur son Orms
skeljamola Hrossabjamarsonar, Jötun-Bjamasonar
norðan úr Noregi. Ketill bjó á bæ þeim er Raums-
dalur heitir norðarlega í Noregi. Þá voru fylkiskon-
ungar í Noregi er þessi saga gerðist. Ketill var
ágætur maður og vel auðugur af fé, rammur af afli
og hinn röskvasti í öllum mannraunum. Hafði ver-
ið í hemaði hinn fyrri hluta ævi sinnar en settist nú
að búm sínum sem aldur færðist yfir hann.
2. Ketill átti Mjöll dóttur Anar bogasveigis og
með henni son þann er Þorsteinn var nefndur.
3. Menn gerðu mikió orö til ámælis að sá væri
mikill vanskörungur er yfirmaður var þess héraðs
að engar aðgerðir skyldu í mót koma slíkum óhæf-
um og kváðu Ketil nú mjög eldast, en hann gaf sér
fátt en þótti þó eftir því sem þeir sögðu.
Það var eitt sinn aö Ketill mælti við Þorstein
son sinn: „Onnur gerast nú atferð ungra manna en
þá er eg var ungur. Þá gimtust menn á nokkur
framaverk, annað tveggja að ráðst í hemað eða afla
fjár og sóma með einhverjum þeim aðferðum sem
þeim var mannhætta í. En nú vilja ungir menn ger-
ast heimaelskir og sitja við bakelda og kýla vömb
sína í miöi og munngáti og þverr því karlmennsku
Hann var vænn maóur sjónum, engi ágætismaður
á vöxt eða afl, en athæfi og allur færleikur með hinu
betra meðallagi að því sem þá vom ungir menn.
Þorsteinn var átján vetra þá þetta var tíðinda.
I þenna tíma vom úthlaupsmenn eða illvirkjar á
leið þeirri milli Jamtalands og Raumlands. Engir
komu aftur þeir er fóm og þótt saman væm fimmt-
án eða tuttugu þá höfðu engir aftur komið. Þóttust
menn því vita að frágerðarmaður mundi úti liggja.
Menn Ketils bónda urðu minnst fyrir þessum
ófriði, bæði manndrápum og fésköóum.
og harófengi.
Þorsteinn svaran „Eggjað væri nú ef nokkuð tjó-
aöi“. Hann stóó upp, gekk burt og var hinn reiðasti.
4. Það var litlu síðar en þeir feðgar höfóu talast
við að Þorsteinn gekk út einn saman frá drykkju og
hyggur þaó helst fyrir sér að hann mun treysta á
hamingju föður síns og veróa eigi fyrir atyrðum
hans heldur vildi hann nú leggja sig í nokkura
mannhættu. Hann tók hest sinn og reið einn saman
til skógar þangað sem honum þótti helst von ill-
virkjanna þó að honum þætti lítil von ffamgangs-
ins við slíkt ofurefii. Vildi hann nú og heldur
leggja lífið en fara að erindisleysu.
Herdís í fjar-prófkjörsbaráttu
Herdís Sæmundardóttir á
Sauðárkróki, sem gaf kost á
sér í 3.-4. sætið í prófkjöri
Framsóknarflokksins, átti ekki
hægt um vik með að beita sér í
prófkjörsbaráttunni, þar sem
að hún hefúr verið bundin við
nám í Reykjavík frá því um
áramóL Tíminn birti viðtal við
Herdísi nú fyrir helgina.
„Já, ég var illa fjarri góðu
gamni en það varð ekkert við
það ráðið. Eg er í fjamámi í upp-
eldis- og kennslufræðum og er
að ná mér í kennsluréttindi frá
Háskólanum. Þetta hittist bara
svona á. Eg fer hingað suður
tvisvar á ári og sit á skólabekk í
10 daga. Ég þurfti að fara til
Reykjavíkur 2. janúar og fer ekki
heim aftur fyrr en í dag, 11. jan-
úar“. Herdís segist hafa reynt að
vinna í sínum málum milli jóla
og nýárs, en hún hefúr eftir ára-
mótin að mestu orðið að treysta
á símann.
„Sjálfsagt bitnar þetta á mér
að einhverju leyti. Maður hefur
kannski ekki sömu möguleikana
á að kynna sig. Það er óneit-
anlega verra að geta ekki verið
innan um sitt fólk þessa dagana“.
Nú stefna báðir þingmenn
flokksins í kjördæminu, Stefán
Guðmundsson og Páll Pétursson,
á efsta sætið á listanum. Vilt þú
spá einhverju um úrslitin?
„Nei ég spái engu. Ég sagði
það í upphafi að ég væri ekki
fylgjandi því að hafa prófkjör hjá
Framsóknarflokknum í Norður-
landi vestra fyrir þessar kosn-
ingar. Ég vil hafa báða þessa
menn þama efsL Þetta em ágætir
menn og ég vil halda þeim báð-
Hvatarmenn voru sigursælir á Stígandamótinu í knattspyrnu
sem fram fór í íþróttahúsinu á Biönduósi sl. sunnudag. A-iið
Hvatar sigraði í mótinu, vann alla sína leiki. B-liðið varð í öðru
sæti, í þriðja sæti varð a-Iið Tindastóls, b-lið Tindastóls í fjórða
sæti, þá Kormákur og Neisti rak lestina. Á myndinni eru
sigurvegararnir A-lið Hvatar. Talið frá vinstri, efri röð: Ævar
markvörður, Sveinbjörn, Guðmundur og Páll Leó. Neðri röð
frá vinstri: Helgi, Hörður, Gísli og Jón Oskar.
Bæjarmálapunktar frá Blönduósi
Unglingalandsmótsnefnd
USAH óskar eftir viðræðum við
fulltrúa bæjarstjómar Blönduóss
um afnot íþróttamannvirkja í
tengslum við mótið næsta sumar.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið
og samþykkir að leggja til að-
stöðu án endurgjalds, en þó með
reiknuðum afhotum sem verði
fært sem styrkur.
Lagt fram erindi frá Kaupfé-
lagi Húnvetninga varðandi breyt-
ingar á aðalinngangi og lagfær-
ingar á bílaplani. Samþykkt að
vísa erindinu til umsagnar bygg-
ingamefndar. Bæjarstjóra falið að
hafa samband við viðkomandi
hagsmunaaðila.
Bréf ffá Hollustuvemd ríkisins
vegna framlengingar starfsleyfis
fyrir sorpförgun við Draugagil.
Þar koma fram ábendingar um
nokkur atriði sem ábótavant þykja
og farið fram á úrbætur. Erindinu
vísað til fjárhagsáætlunar.
Bæjarráð samþykkir fyrir sitt
leyti flutning 6 tonna af þorski frá
Gissuri hvíta til Guðmundar Jens-
sonar og 10,6 tonna af ýsu frá
Gissuri hvíta til Seleyjar hf.
Kynntar niðurstöður úttektar
atvinnumála á Blönduósi. Svör
bárust frá 37 fyrirtækjum og
helsta niðurstaða könnunarinnar
er sú að staða atvinnumála virðist
í jafnvægi. Starfsmannafjöldi fyr-
irtækjanna verði svipaður og áður.
Bæjarstjóra var falið að kynna
oddvitum nágrannasveitarfélag-
anna niðurstöður könnunarinnar.
Lagt fram minnisbréf tækni-
fræðings til bæjarstjóra þar sem
greint er frá tjóni er orðið hefur á
sjóvömum við Blönduós. Bæjar-
ráð felur bæjarstjóra og bæjar-
tæknifræðingi að kynna málið
fyrir Vita- og hafharmálastofnun.
Bæjarráð leggur áherslu á að
framlag af hálfu hins opinbera til
sjóvama á Blönduósi fáist þegar á
næsta ári.
Bæjarráð samþykkir flutning á
55 tonnum af ótilgreindum afia
frá Gissuri hvíta til Síldarvinnsl-
unnar hf, 6 tonnum af þorski frá
Gissuri hvíta til Sigurðar Jóns-
sonar í Ólafsvík og 15 tonnum af
þorski af Ingimundi gamla til
Guðmundar Jenssonar. Einnig
samþykkir ráðið flutning 40 tonna
af þorski, 10 tonna af ýsu, 20
tonna af ufsa og 22 tonna af karl'a
af Ingimundi gamla til Þórs Pét-
urssonar. Einnig 60 tonna af
þorski, 90 tonna af ýsu, 80 tonna
af ufsa og 8 tonna af þorski af
Gissuri hvíta til Þórs Péturssonar.
Erindi framkvæmdastjóra hér-
aðsnefndar lagt fram. Þar eru til-
greind ýmis atriði varðandi tjald-
stæði og ferðaþjónustu sem þarfn-
ast útbóta. Samþykkt að f'ela bæj-
artæknifræðingi að meta kostnað
við liði eitt og tvö í erindinu, sem
fjalla um aðkomu aó tjaldsvæði
og grunnvatnsstöðu og frárennsl-
ismál. Erindinu ásamt þessu aö
öðra leyti vísað til gerðar fjár-
hagsáætlunar.
um, sem þingmönnum kjördæm-
isins.“
Hvaða möguleika felur fjar-
námið í sér?
„Fjamámið er sett upp til þess
að gefa fólki, sérstaklega á lands-
byggóinni, kost á að ná sér í
kennsluréttindi án þess að þurfa
að taka sig upp og fiytja suóur
með fjölskylduna. Við komurn
hingað suður tvisvar á ári og
sitjum fyrirlestra og síðan
vinnum við þetta í gegnum
menntanetið. Bæði Háskólinn og
Kennaraháskólinn bjóða upp á
fjamám til þess að ná kennslu-
réttindum, en ég sé. fyrir mér
gífurlega möguleika fyrir
landsbyggðina í menntamálum
með þessari samskiptatækni. Ég
hefði t.d. ekki getað náð mér í
þessa menntun sem ég þarf sem
kennari í framhaldsskóla á
landsbyggðinni, nema með
þessum hætti", sagði Herdís
Sæmundardóttir að lokum.