Feykir


Feykir - 25.01.1995, Blaðsíða 1

Feykir - 25.01.1995, Blaðsíða 1
. januar íyys, 4. tölublað, 15. argangur Oháð fréttablað á Norðurlandi vestra rafsjá hf RAFVERKTAKAR SÉRVERSLUN MEÐ RAFTÆKI SÆMUNDARGÖTU 1 SAUÐÁRKRÓKI Fiskiðjan á Sauðárkróki: Kaupir 6-700 tonn af ufsa úr kvóta ESB Fiskiðjan/Skagfirðingur hefur náð samningum við útgerð þýsku isfisktogaranna Europa og Bremen um að skipin landi hér á næstu vikum og mánuð- um 6-700 tonnum af stórum ufsa, sem veiddur er úr kvóta ESB undan ströndum Irlands. Reiknað er með að hvert skip- anna komi hingað í 2-3 skipti og kemur fyrsti farmurinn um miðjan febrúar. „Við gerðum okkur reyndar ekki miklar vonir um það fyrir- fram að þessi viðskipti væru möguleg og þaö kom okkur á óvart þegar þýska útgerðin sló til. Ég býst við að þama spili inní þau viðskipti sem við höfum átt við þennan aðila bæði meó sölu okkar togara í Bremerhafen og síðan sölu þýsku skipanna héma síðasta sumar. Ég á von á því að áframhald verói á löndunum þeirra í sumar einnig“, segir Ein- ar Svansson í Fiskiðjunni, en öll þessi viðskipti fara fram í gegn- um sama umboðsmanninn í Bremrhafen. Að sögn Einars er þetta lík- lega í fyrsta skipti sem skips- farmar eru keyptir hingað til lands þar sem meginuppistaðan er ufsi. Stærsti ufinn fer í salt og er reiknað með mikilli vinnu í salthúsinu strax og fyrsti farmur- inn kemur. Vonast er til að fisk- urinn sé það góður að hluti farmsins fari í frystingu og segir Einar mjög mikilvægt að fá þetta hráefni í vinnsluna, sérstakleg fram að því að vetrarvertíðin komist í gang. „Það er mjög erfitt núna að fá fisk frá Rússun- um þannig að þetta bakkar okkur upp næstu mánuði“, sagði Einar í Fiskiðjunni. Það vakti nokkra athygli þegar íbúar á Heiðarbraut 14 á Blönduósi þurftu að yfirgefa heimili sitt sl. fimmtudagskvöld, vegna snjóflóðahættu frá snjóhengu fyrir ofan byggðina. A fostudag var þessi hengja síðan sprengd fram af vinnuvélum og fólkið gat flutt heim aftur. Mynd Sig. Kr. Jónsson. Hörð samkeppni um söludaga á erlendum mörkuðum í upphafi árs: „Fleiri „vondir menn" en við ii Hásetahlutur á togurum Skag- firðings í jólatúrunum var á bilinu 305-418 þúsund. Einar Svansson framkvæmdastjóri Skagfirðings segir mjög eftir- sótt að komast í jólatúrana Snjóþungt á Vatnsnesi: Tókst ekki að koma mjólk frá tveim bæjum í síðustu viku Vegna mikiifa snjóalaga og ótíðar á Vatnsnesi í síðustu viku var ekki hægt að koma mjólk til mjólkursamlagsins á Hvammstanga frá þeim tveim bæjum þar sem mjólkurfram- leiðsla er, á Svalbarði og As- bjamarstöðum. Sigurður Guð- björnsson bóndi á Svalbarði segir að þó snjóþungt geti verið á Nesinu komi það sjaldan fjr- ir að svona langur tími líði að ekki sé hægt að koma mjólk. Það hafi líklega síðast gerst snjóaveturinn 1989. „Við höfúm haft samt nóg að bíta og brenna héma“, sagði Sig- urður en bændur á Vatnsnesinu þurftu einnig að glíma við raf- magnsleysi í einn og hálfan sól- aihring. Það olli þó ekki teljandi vandræðum að sögn Sigurðar. Mjaltimar björguðust td. þannig að loftpressumótorinn á dráttar- vélinni var tengdur við mjalta- kerfið. Aðspurður sagði Sigurður að mjólkuricæling væri orðin það góð í dag með mjókurtönkunum að mjólkin slyppi líklega frá skemmdum, þrátt fyrir að vera orðin vikugömul, en það væri þó í það harðasta. A föstudagskvöld tókst að koma mjólk til Hvammstanga fra bæjum í Vesturhópi og var þá tæp vika liðin ffá því mjólkurbíll- inn komst þangað síðast Sami tími leið fra því mjólkurframleið- endur í Vatsnsdal og Svartárdal komu mjólkinni í samlagið á Blönduósi. í Skagafirði gekk hinsvegar greiðlegra að koma mjólkinni og em ekki dæmi þess að margir dagar hafi liðió milli mjólkurferða þar. með skipunum og sjómanna- deUd Verkalýðsfelagsins Fram hafi óskað eftir því að félags- menn yrðu látnir sitja fyrir plássum., Jafhffamt reynum við að milda þessa útiveru yfir há- tíðarnar eins mikið og við get- um gagnvart áhöfnum skip- anna. Stflað er upp á að menn fari ekki í siglingu nema um önnur hver jól, og ef heimflisá- stæður eru erfiðar geta menn undantekningarlaust fengið fr í“, segir Einar Svansson. Það vakti athygli fyrir síðustu jól þegar fjórir af átta togurum sem vom úti yfir hátíðamar vom frá Skagfirðingi. Einar segir að það hefði mátt koma fram að helm- ingi fleiri skip sæki um sölur. „Það lýsir trausti Aflamiðlun- ar á okkar sjómönnum að viö skulum fá þessum söludögum úthlutað, þar sem að fleiri út- gerðir em að reyna að krækja sér í söludaga í upphafi árs. Þama njótum við sjálfsagt þessarar hefó- ar sem við emm búnir að skapa okkur á mörkuðunum og það aö meðferð og gæði hráefnis hafa þótt góð í okkar skipum. En það er ljóst að það em til fleiri „vondir menn“ en við, “ segir Einar og vís- ar þá úl þeirrar gagruýni sem komið hefúr ffam á að Skagfirðingur haldi skipum sínum úti yfir hátíðamar. „Menn em óskaplega fljótir að gleyma. Staóreyndin er sú að með því að láta skipin sigla og fá þannig hæsta mögulega verðið fyrir hráefnið höfúm við náð að breyta fjárhagsstöðu fyrirtækis- ins ffá því að vera um 0,5 í veltu- fjáriilutfalli í það að vera yfir 1, eóa um helming. Hún var ekki glæsi- lega staðan þegar Skagfirðingur var stofnaður árið 1989. Tvö síðustu rekstrarár US sáluga komu út með 300 milljóna tapi. Síðan hafa jólatúramir oft ráðið úrslitum með afkomu ársins og það er staðreynd aö veróið er jafnan hæst á mörkuðunum í upphafi árs. Það er alls óvíst hvort að skipunum verður haldið úti til frambúðar um jól og áramót, en þaó er ljóst að frávik frá því getur kostað það að við missum út þessa búbót sem sölur á erlend- um mörkuðum hafa verið. —Kjen$i!! l»|DI— Aðalgötu 24 Skr. sími 35519, bílas. 985-31419, fax 36019 Almenn verktakaþjónusta, Frysti- og kœliþjónusta, Bíla- og skiparafmagn, Véla- og verkfœraþjónusta bílaverkstæöi “sm-.mrn— Sœmundargötu 16 Sauöárkróki íax: 36140 Bílaviðgerðir Hjólbarðaverkstœði Réttingar Sprautun

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.