Feykir


Feykir - 25.01.1995, Blaðsíða 3

Feykir - 25.01.1995, Blaðsíða 3
4/1995 FEYKIR 3 Skagfirðingasveit og atburðirnir í Súðavík Félagar úr Skagfirðingasveit á Alexandersflugvelli við komuna frá Isafirði sl. föstudag. Vegna þcss óhjákvæmilega umtals sem hefur orðið vegna hins hörmulega slyss á Súðavík og hlut Skagfiróingasveitar í kjölfar (dcss viljum við benda á eftirfarandi: Þegar Ijóst var orðið að snjó- flóð hafði fallið á Súðavík aó morgni mánudagsins voru allar björgunarsveitir sem mögulegt var að gætu komið á slysstað kallaðar út. Flutningur björgunarmanna á slysstað var aðeins framkvæman- legur á sjó. Umfang snjóflóósins og fjöldi týndra gerði þá kröfu að flytja yrói allt tiltækt björgunarlið á sem skemmstum tíma á slysstað. Björgunarsveitarmenn frá ísa- firði komu fyrstir á staóinn. Jafn- hliða voru gerðar ráðstafanir til að fá hjálparlið frá öðrum stöðum á Vestijörðum svo og undanfara frá björgunarsveitum á höfuðborgar- svæðinu. Þessir menn voru íluttir með vaiöskipinu Tý og togaranum Engey og var flutningstíminn áætl- aður u.þ.b. 18 tímar. A sama tíma var Múlafoss á Skagaströnd, venjulegur siglingartími milli Skagstrandar og ísafjarðar er 8- 10 tímar. Stjóm björgunaraðgerða hafði samband vió SVFI Skagfiróinga- sveit og óskaði eftir að hún kallaði þegar til sinn mannskap og annaö hvort skipið Mælifcll eða Múla- foss yröi notað til að flytja sveitina á slysstað. Hópurinn sem kom saman var um 30 björgunarsveit- armenn, auk læknis, hjúkrunar- ffæðings og leitarhunda. Ofært var til Siglufjarðar svo Skagaströnd og og Múlafoss urðu fyrir valinu. Framhaldiö þekkja allir. Múlafoss var þrjá sólarhringa að berjast í foráttuveðri við Húnaflóa og björgunarsveitarmennimir komu fyrst til ísafjarðar þegar leitinni var lokið. Gagnrýnisraddir hafa verið nokkuð óbilgjamar gagnvart þess- ari feró Skagfirðingasveitar, m.a. hefur verið fundið að því að ungt fólk hafi verið tekið með (aldur 17-19). Nú teljum vió það ekki skyldu okkar að verja Skagfirö- ingasveit, stjómarmenn þar eru fullfærir um það ef þeir telja þörf á því. En þar sem við höfúm nokkra reynslu af störfum með björgun- arsveitum og erum fyrrverandi og núverandi formenn Svæðisstjóm- ar björgunarsveita á Siglufirði og Skagaftrði (Svæði 10) langarokk- ur að nefna nokkur atriði sem við viljum að menn hafl í huga þegar þeir meta málið. Við útkallið er ljóst að fjöldi týndra er 14. Aðeins er hægt að flytja björgunarsveitarmenn á slys- stað með skipum. Fjarlægð ffá Skagaströnd á slysstað er stutt miðað við hvert var hægt að leita eftir aðstoð. Stórt flutningaskip var á svæðinu, sem var tilbúið að halda þegar af stað. Skagfirðingasveit varð að bregðast við með hámarks- mannskap. Þótt ljóst væri að ekki væru allir björgunarsveit- armenn harðfúllorðnir þá var ástandið á slysstað með þeim hætti að það varð að senda allan þann hóp sem hlotið hafði þjálf- un sem björgunarsveitarmenn, jafiivel þótt menn væru meðvit- aðir um að ekki myndu allir sinna björgunarstörfiim á slys- stað. Á sama tíma var snjóflóða- hætta á Siglufirði, því var nauð- synlegt að björgunarsveitirnar í Varmahiíð, á Hofsósi og Siglu- firði færu ekki af svæðinu. Ef skipstjóri á Múlafossi hefði séð fyrir það ofsaveður sem var í uppsiglingu þá hefði hann aldrei yfirgefið höfiiina á Skagaströnd. Orþreyttir björgunarsveitar- menn á slysstað héldu sér gang- andi í þeirri vissu að þeim bær- ist aðstoð öðru hvoru megin ffá að sunnan eða norðan. Miðað við allt teljum vió að Skagfirðingasveit hafi brugðist rétt við erfiðum aðstæóum. Auðvitað má alltaf finna eitthvað aðfmnslu- vert, en það gildir um allar æfing- ar og öll útköll sem við höfúm tek- ió þátt í sem björgunarsveitar- menn. Vió þá sem harðast gagnrýna Skagfirðingasveit viljum við segja þetta: Ef björgunarsveitin hefði komist í tíma á staðinn og ef þeir hefðu tekið þátt í björgun manns- lífa þá væru Sauðkrækingar harla ánægðir meó sína menn. I störfum björgunarsveitarmanna eru mörg EF og oft verða menn að taka erf- iðar ákvarðanir. Hluti af starfí björgunarsveitarmannsins er sú hætta sem fylgir starfmu og það álag og ótti sem fjölskylda hans býr við vitandi af honum við erfið- ar, jafnvcl lífshættulegar aðstæður. Um þennan þátt em allir björg- unarsveitarmenn meóvitaðir. Eftir þessa ferð erum við vissir um að Skagfirðingasveit geti orð- ið enn styrkari en áöur, en til þess aö þaó geti orðið þurfa þeir að fá stuðning í stað þess að menn leiti höggstaðar, því öllum ætti nú að vera ljóst að björgunarsveitir eru nauðsynlegar. Sveinn Allan Mortens Flug- björgunarsveitinni Varmahlíð, Gunnlaugur Tobíasson formað- ur Svæðisstjórnar björgunar- sveita á svæði 10. porramatur Stuttar fréttir af óveðrinu Hafrún sökk í Skagastrandarhöfii Haffún HU-12,52ja tonna bátur í eigu Sigurjóns Guðbjartssonar sökk í Skagastrandarhöfft á fimmtudagsmorgun. Um stórtjón er að ræða hjá Sigurjóni og ljóst að báturinn fer ekki á sjó næstu vikur og mánuði. Hafrún var nýbyrjuð veiðar á skelfiski og lagði upp hjá Meleyri á Hvammstanga. Aftaka veður á Hofsósi Aftaka veður var á Hofsósi í síðustu viku. Þegar verst lét sl. miðviku- dagskvöld var í nógu að snúast hjá bátaeigendum og björgunarsveitar- mönnum við að verja skemmdum þrjá báta sem í höfninni voru og menn í talsverðri hættu þegar mest gekk á. Auk öldugangsins gerði það mönnum erfitt um vik að aldan tók sífellt með sér snjó úr krikanum og var því mikið krap á bryggjunni. Einn maður brákaðist á hendi og einn bátanna þriggja skemmdist mikið, trilla í eigu Gísla Kristjánssonar. Stærsti báturinn, Berghildur 22ja tonna, sleit eitt sinn af sér fjögur bönd í einu og segir það nokkuð um óróann sem var í höfftinni. Sörmaturinn var QöflurTftjrra en hann er ennþa betriíar! •SVIÐflSULTfl • BLÖflMQR • PUNGRR • LUNOHBAGGAR • grTsrsultr • LIFRRPVLSR • EISTNRVEFJUR • BRINGUHOLLRR Jporrabakkar RLLT GEÐRMRTUR R GÓRU VERÐI! Fólk flutt burt frá Ljótsstöðum Fólk var flutt frá bænum Ljótsstöðum í Unadal sökum snjóflóða- hættu, en flóð féll við bæinn fyrir um 20 árum og olli tjóni á útihúsum. í Unadal hafa fallið snjóflóð oftar en einu sinni og m.a. urðu mannskaðar á bænum Sviðningi í Kolbeinsdal fyrir tæpum 70 árum. HTHUGIÐ QdQrhrossabjöQU Hr. 99 pahhinn HTHUGIÐ • HangiHjot af veturgdmlu Talsvert tjón í Skefilsstaðahreppi Talsvert tjón varð í Skefilsstaðahreppi í veðrinu á miðvikudag. Þak- plötur fúku af tvcim húsum í sveitinni, á Þorbjargarstöðum og Lágmúla, og trilla sökk í höfftinni í Selvík. Ingólfur Sveinsson bóndi í Lágmúla var einn heima og honum var illa bmgðið þegar þakplata fauk á glugga í íbúðariiúsinu og braut hann. Ekki bætti úr skák að illfært var um sveitina sökum snjóa og lenti Ingólfur í miklum erfiðleikum með að verja hús sín. En það var ekki allt búið fyrir bóndanum á Lágmúla. Þegar hann hugaði aó bát sínum í Selvíkurhöfft á Skaga var hann sokkinn í höfninni. Þá sökk einnig trilla í höfftinni á Sauðárkróki vegna ísingar. NVTTHLEGG! Lúxusshinha oq reijHt nautatunga VERSLANIR - kJÖn IWSL I hS

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.