Feykir - 25.01.1995, Blaðsíða 2
2 FEYKIR 4/1995
Kaup Skagf irðings á Sjólanum:
Komnir yfir erfið-
asta hjallann
„Við erum nú komnir yfir
erfiðasta hjallann í sambandi
við kaupin á Sjólanum. Af-
rakstur góðrar útkomu skip-
anna í jólatúrunum gerði
okkur kleitt að standa við af-
borganirnar af skipinu og
þar með að við fáum afsalið
afiient. Kaupin á Sjólanum
er sú mesta fjárfesting sem
Skagfirðingur hefúr lagt í til
þessa“, segir Einar Svansson
framkvæmdastjóri Fiskiðj-
unnar/Skagfirðings.
„Slæm staða útgerðarinnar
þegar Skagfirðingur var stofn-
aður upp úr rústum ÚS 1989,
varö til þess að við fórum að
leita meira eftir því að láta skip-
in selja á erlendum mörkuðum,
og þar með sölum í byrjun árs
og þurftum þar af leiðandi að
halda skipunum úti um jólin.
Það veitti ekki af eftir að tvö
síðustu rekstrarár ÚS sáluga
höfðu komið út meó 300 millj-
óna tapi. Sum árin hafa jólatúr-
amir ráðið úrslitum með afkomu
félagins. Ég dreg það stórlega í
efa að við hefðum getað ráðist í
það að kaupa frystiskip á síð-
asta ári ef við hefðum ekki farið
út í að láta skipin sigla með afl-
ann. Fjárhagsleg staða fyrirtæk-
isins í dag er sterkari en nokkru
sinni, og það þakka ég því að
við höfum ætíð leitast við að fá
sem mest verðmæti úr afla
togaranna og þannig nýtt kvót-
ann eins vel og frekast hefur
verið kostur. Siglingamar hafa
líka opnað möguleika okkar
fyrir hráeífiiskaupum af erlend-
um skipum. Til að mynda voru
viðskiptin við þýsku skipin sem
hér lönduðu síðasta sumar, í
gegnum umboðsmanninn sem
annast sölur okkar togara í
Bremerhafen. Útlit er fyrir frek-
ari og aukin viðskipti við þessa
þýsku aðila á þessu ári, m.a.
meö kaupum á stómm ufsa ffá
þeim á næstu vikum", segir
Einar Svansson.
Aðalfundur knattspyrnu-
deildar Tindastóls
verður haldinn á skrifstofu félagsins fimmtudaginn
26. janúar kl. 21. Venjuleg aðalfundarstörf.
Allt áhugafólk velkomió á fundinn!
Stjómin.
Vetrarstemmning á Blönduósi
Þegar birti upp á Blönduósi fyrir helgina blasti margt fallegt við augum Sigurðar Kr. Jónssonar
þegar hann mundaði linsur sínar. Tréin skarta ekki síður fegurð þótt græni liturinn sé víðs fjarri,
og börnin í Bamaskóla Blönduóss létu ekki segja sér það tvisar að fara út í frímínútunum og
leika sér í snjónum.
íslenska herliðið
Það er ekki of djúpt í árinni tekið að fullyrða
að ekkert hafi raskað ró þjóðarinnar eins mikið í
langan tíma og hörmungamar sem fylgt hafa
snjóflóðunum undanfarið, sérstaklega harmleik-
urinn í Súðavík. Og er þá ekki undanskilið þeg-
ar gjósa tók í Heymaey í janúar 1973 og snjó-
flóðin miklu urðu í Norðfirði tæpum tveim
ámm síðar. Undirritaður er örugglega ekki einn
um það að finnast síðasta vikan nokkuó frá-
bmgðin öðmm venjubundum vikum. Það hefur
verið tóm hjá Islendingum síðustu dagana, enda
fréttaflutningur mjög mikill af snjóflóðasvæð-
um. Trúlega margfalt meiri en þegar snjóflóðið
mikla féll á Norðfirði fyrir 20 ámm, enda var
fjölmiðlabyltingin þá ekki gengin í garð.
Sagt er að baráttan við náttúruöflun sé það
gjald sem við þurfum að inna að hendi til að
vera Islendingar. Einn ónefridur ágætur maður
fjallaði skemmtilega um þessa staðhæfingu í
pistli á Rás tvö á dögunum. Pistilritarinn sagði
eitthvað á þá leið, að hann væri alltaf stoltur af
því þegar tækifæri gæfust að segja útlendingum
sem hann hitti, frá Islandi og þeim mikla kosti
sem fylgdi því að vera Islendingur. Hér þyrftu
menn sem sagt ekki að gegna þeirri skyldu að
ganga í herinn og læra að drepa mann og annan.
Við Islendingar þyrftum ekkert að hugsa um
svoleiðis hluti. Hinsvegar þyrftum við alltaf að
hafa varann á gagnvart náttúruöflunum. Oftast
væm þau okkur blíð, en stundum kæmi það fyr-
ir að þau leystust úr læðingi og þá væm þau
ekkert lamb að leika sér við.
Já, það er ekki laust við að stríð hafi geysað
nú undanfarið. Og hverjir hafa skipað þennan
her sem landinn hefur sett traust sitt á. Jú, það
eru björgunarsveitarmennimir sem rækja ætíð
þá hetjulegu skyldu að leita að fólki og bjaiga
fólki, á hvaða tíma sólarhringsins sem er og
hvemig sem á stendur. Björgunarsveitarmenn-
imir unnu þrekvirki við björgun í Súðavík og
þær eru orðnar margar hetjudáðimar sem ís-
lenskir björgunarliðar hafa drýgt bæði til sjós og
lands í erfiðu björgunarstarfi í gegnum tíðina.
Sjálfsagt gera fáir sér grein fyrir hinu erfiða
hlutverki björgunarmannsins og þeirri miklu
lífshættu sem bjöigunarsveitir setja sig í á stund-
um, eins og t.d. í Súðavík á dögunum, þegar
enn eitt flóðið hefði þessvegna getað komið úr
hlíðinni meðan á bjöigunarstarfmu stóð.
En það komust ekki allir til Súðavíkur, eins
og glögglega má lesa um í viðtali í blaðinu í
dag. För liðsmanna Skagfirðingasveitar vestur
hefur verið talsvert til umræðu í bænum og
gagnrýnisraddir heyrst varðandi undirbúning
þeirrar farar. Hvort sem mönnum finnst þær
ákvarðanir hafi verið réttar eða rangar er rétt að
hafa í huga er einn reyndur björgunarsveitar-
maður sagði. „Það er oft hægt að deila um
ákvarðanir, en hitt er óumdeilanlegt að hér þarf
að vera til staðar sterk og öflug bjöigunarsveit.
Það er ekkert sjálfgefið að menn gefi kost á sér
til þessara starfa. Þau em eins og önnur félags-
störf, geta á stundum verið kvöð og menn þurfa
að færa ýmsar fómir fyrir það að taka þátt í
björgunar- og öryggisstörfúm“.
IFEYKIR
Óháð fréttablað á Noröurlandi vestra
Kemur út á miðvikudögum. Útgefandi
Feykir hf. Skrifstofa Aðalgötu 2, Sauðárkróki.
Póstfang: Pósthólf 4, 550 Sauðárkróki. Sími
95-35757. Myndsími 95-36703. Ritstjóri Þór-
hallur Asmundsson. Fréttaritarar: Magnús
Olafsson A.-Hún. og Eggert Antonsson V.-Hún.
Blaðstjóm: Jón F. Hjartarson, Guðbrandur Þ.
Guðbrandsson, Sæmundur Hermannson,
Sigurður Agústsson og Stefán Arnason.
Askriftarverð 137 krónur hvert tölublað
m/vsk. Lausasöluverð 150 kr. m/vsk. Setning
og umbrot Feykir. Prentun Sást hf. Feykir á
aðild að Samtökum bæja- og héraðsfrétta-
blaða.