Feykir - 25.01.1995, Síða 6
6 FEYKIR 4/1995
Heilir og sælir lesendur góðir. Gott er
okkur til hressingar aö byrja þáttinn með
þessari hugleióingu Jóa í Stapa.
Daginn lengja drjúgumfer,
dvínar myrkrakraftur.
Bjartar vonir bœra á sér
bráðum vorar aftur.
Það mun vera gamli Káinn sem legg-
ur okkur til næstu vísu.
Bregða Ijóma á lífsins strönd
Ijóssins gjafir bestar.
Sömu blómum, sama hönd
sáir á grafirflestar.
Kolbeinn Högnason sem kenndur var
við Kollafjörð er kunnugt nafn í hagyrð-
ingastétt. Hann mun vera höfiindur næstu
vísu.
Horfinn mér er bernsku bœr
berst ég einn í glaumi.
Það er orðinn annar blœr
yfir hverjum draumi.
Ekki hafa allir verið á sama máli þeg-
ar Kolbeinn yrkir svo.
Þennan mun ég þrœða stig
þó að vinir týnist.
Lœt ég engan leiða mig
lengra en mér sýnist.
Ekki hefur allt gengið í vil hjá íslenskri
bændastétt frekar en nú þegar Kolbeinn
hefúr ort næstu vísu sem trúlega er orðin
yfir 50 ára gömul.
Bölvun magnast bœnda enn,
bœtt er nú á glóðina.
Látnir eru litlir menn
leika sér með þjóðina.
Fallegt er að heyra um þau málalok
sem Kolbeinn kynnir okkur í næstu vísu.
Þegar öll í eymdum lá
œtlun mín og gaman.
Guð ég bað sem gerði þá
gott úr öllu saman.
Geta lesendur sagt mér eftir hvem eft-
irfarandi vísa er?
Fyrir handan höfin blá
hugurinn löngum dvelur,
leiðindinum leitarfrá
og leiðina skemmstu velur.
Einhverju sinni varð sá gleðilegi at-
burður hjá nemendum Stýrimannaskól-
ans í Vestmannaeyjum að þangað kom í
heimsókn hópur föngulegra meyja ífá
Húsavík. Hafa þær trúlega verið fulltrúar
einhvers menntaseturs þar íyrir noróan þó
ég kunni ekki nánari skil á þeirri sögu.
Um heimsókn þessa orti fjöllistamaður
Eyjanna Magnús Magnússon eftirfarandi
vísur.
Hingað beint frá Húsavík
hentust fagrar meyjar.
Englasending áður slík
aldrei hitti Eyjar.
Þœrfóru í kaf, og þœrfóru á sjó
fylgdi þeim sveinahjörðin.
Eyjan sjálfsig upp á bjó
sólu var böðuð jörðin.
Þegar aftur þjóta í burt
þunginn mun verða slíkur.
Út verður stungið og afiur spurt
um hnattstöðu Húsavíkur.
Ein vísa enn eftir Magnús þar sem
hann gerir góðlátlegt grín að eigin iðju.
Alla held ég í auðnu disk
allsnægtanna langi.
Aflaklœmar eltafisk
asna veiðir Mangi.
Skelfileg þykir undirrituðum eftirfar-
andi yfirlýsing sem mun vera gefin af
Pétri Stefánssyni.
Ég elska hana í allri nekt,
ávalltfús til leikja.
Djöfull er það dásamlegt
drottinn minn að reykja.
Ekki kann ég að nefna höfúnd að eftir-
farandi vísu.
Loks mig dreymir lánið rekið,
lifi spennuna,
hefi tveimur höndum tekið,
happaþrennuna.
Margt hefur verið rætt og ritað um
vegahátíð þá er fram fór í nágrenni Þing-
valla sl. sumar og svo náttúrlega Þing-
vallahátíðina sjálfa. Eitt af alvarlegri tíð-
indum dagsins var sú frétt að forseti Sam-
einaðs Alþingis hefði kannski ekki verið
nógu þjóðlega klædd. Er slíkt spurðist
norður á Sauðárkrók orti Sigfús Stein-
dórsson eftirfarandi vísu.
Þjóðbúningur ég segi það satt,
sást ekki, er hún ípontu sté,
í dragtfrá París með danskan hatt
dansaði á völlunum Salome.
Sigfús hefur einnig ort eftirfarandi
sjúkdómslýsingu.
Virðist oft hafa verk
vatn úr nefinu drýpur.
Horlopi hangir á kverk
hóstar þegar’ann sýpur.
Þá kemur næst vísa sem ég held að sé
eftir Braga Bjömsson.
Verða að lifa ýmiss án,
allvel þó að vegni,
þeir sem að eiga allt sitt lán
undir sól og regni.
í upphafi skyldi endirinn skoóa, segir
máltækið. Svo verður í þetta sinn og síó-
asta vísan eins og sú fyrsta er eftir snill-
inginn Jóa í Stapa.
Þó að ellin þyngi spor
og þjaki íýmsum greinum.
Geymi ég alltafylríkt vor
innst í hugarleynum.
Veriði þar með sæl að sinni.
Guðmundur Valtýsson, Eiríksstöðum,
541 Blönduósi, sími 27154.
Góð staða Tindastóls eftir sigur í
tveim síðustu leikjum í DHL-i
Tindastólsmenn hafa bætt stöðu sína
verulega í úrvalsdeildinni með sigri í
tveim síðustu leikjum, gegn Snæfelli
fyrir vestan sl. fimmtudagskvöld og á
Skagamönnum í Síkinu sl. sunnudags-
kvöld. Tindastóll hefur nú 16 stig í
deildinni og er jafn Haukum og Vals-
mönnum að stigum. Baráttan stendur
um 8. sætið í deildinni og þar með sæti í
úrslitakeppninni. Ilaukarnir hafa það í
dag vegna sigurs í leik sínum gegn
Tindastóli á Króknum. Tindastóll er í 9.
sæti en gæti komist upp fyrir Haukana
í næstu umferð þegar liðin mætast í
Strandgötunni í Hafiiarfirði. En það er
líka stutt niður í 11. og næstneðsta sæt-
ið. Þar sitja nú Skagamenn með 12 stig
og hagstæðari útkomu í innbyrðisviður-
eignum við Tindastól.
„Þetta var ljótur sigur, en sætur“, sagði
Páll Kolbeinsson þjálfari Tindastóls er
hann kom til búningsherbergis að loknum
leiknum gegn Skagamönnum í Síkinu á
sunnudagskvöldið, og átti þar við að þrátt
fyrir að Tindastólsliðið léki langt undir
getu, tókst að innbyrða sigurinn á síðustu
stundu, en liðið lenti í kröppum dansi á
lokamínútunum. Lokatölur urðu 82:77 eft-
ir að staðan í hálfleik var 44:34.
Það verður að segjast um leikinn að
hann var alls ekki fyrir augað, og mistökin
á báða bóga voru mikil, einkum þó hjá
Tindastólsliðinu, sem með eðlilegum leik
hefði átt að vinna með um 20 stiga mun,
en hafa ber í huga að leikurinn var mjög
mikilvægur báðum liðum sem forðast
næstneðsta sætið eins og heitan eld, en það
lið sem endar þar í vor þarf að leika við
næstefsta liðið í fyrstu deild um keppnis-
rétt í úrvalsdeildinni.
Tindastólsliðið náði snemma forust-
unni í leiknum og munurinn var lengst af í
kringum 10 stig, þar til Skagamenn náðu
að saxa það forskot niður undir lokin.
Skagamenn börðust vel í leiknum og unnu
hálfan sigur, að því leyti að tapið var
minna en sjö stiga sigur liðsins á Tinda-
stóli á Skaganum fyrr í vetur. Langbestur í
liði Tindastóls var Torrey John. Amar og
Lárus Dagur átti þokkalegan leik, aðrir
sýndu ekki sitt rétta andlit. Hjá Skaganum
vom Brynjar og Thompson bestir.
Stig Tindastóls: Torrey 34, Láms D. P.
13, Amar 10, Hinrik 7, Ómar 7, Halldór 6,
Sigurvin 4 og Páll 1. Stigahæstir hjá íA
vom Thompson með 23 stig og Brynjar
Karl meó 21. Gamli Tindastólsleikmaður-
inn Haraldur Leifsson skoraði 11 stig.
Góð ferð í Hólminn
Tindastólsmenn gerðu góða ferð í
Hólminn sl. fimmtudag og unnu þar mik-
inn sigur, ef þess er gætt að lið Snæfells
hefur verið á uppleið að undanfömu og
liðið vann sinn fyrsta sigur í deildinni á
sunnudagskvöldið gegn KR á Seltjamar-
nesi. Gamli Tindastólsmaðurinn Karl
Jónsson tryggói þá Hólmurum sigur í
tveim vítaskotum á lokasekúntum leiksins.
Tindastólsmenn höfðu fmmkvæðið í
leiknum í Hólminum ef frá em skildar
fyrstu mínútur leiksins, en voru samt
aldrei með mikla forystu, þar til að undir
lokin skildu leiöir þegar Tindastólsmenn
skiptu um gír. Lokatölur urðu 88:75 fyrir
Tindastól. Amar Kárason fór á kostum í
síðari hálfleik og var valinn maður leiksins
í DV. Páll Kolbeinsson átti mjög góða
spretti og John Torrey var atkvæðamikill
að venju. Torrey skoraði 25 stig, Amar 17,
Páll 15, Hinrik 12, Omar 10 og aðrir minna.
Karl Jónsson, fyrrum leikmaður Tinda-
stóls, skoraði sigurstig Snæfells gegn KR.
Vegna úrslitaleikja í Bikarkeppni KKÍ,
sem fram fara um næstu helgi, verður ekki
leikið í Úrvalsdeildinni fyrr en 2. febrúar.
Munið áskr iftargjöldin!
Þeir sem enn kunna að hafa í fórum sínum ógreidda
gíróseöla fyrir áskriftargjöldum em beónir að greiða
hið allra fyrsta. Þeim sem glatað hafa gíróseðli skal
bent á að hægt er að millifæra áskriftargjaldið á
reikning Feykis nr. 1660 í útibúi Búnaðarbankans á
Sauðárkróki.