Feykir - 31.05.1995, Side 2
2 FEYKIR 21/1995
ALMANNATENGSL
STOFAN - betri samskipti við
samstarfsaðila, viðskiptavini
og starfsfólk.
Hafðu samband!
Deborah J. Robinson
Stjórnsýsluhúsið
Sauðárkróki
S: 453 6281 F: 453 6280
□ Erlend Samskipti
□ Fjölmiðlun
□ Námskeið
□ Kynningar
□ Gagnasðfnun
□ Þýðingar
□ Markaðsráðgjöf
□ Bœklingagerð
□ Ferðamál
□ Fundir
□ Ráðstefnur
□ Gestamóttöku
Deild 5 á Hjúkrunar- og
dvalarheimili aldraðra á
Sauðárkróki bárust í síðustu
viku góðar gjafir, m.a. frá
starfsfólki deildarinnar.
Starfsfólkið hafði aflað fjár
til kaupa á ýmsum hlutum
fyrir vistmenn heimilsins með
sölu á árlegum jólabasar.
Gjafirnar eru litsjónvarpstæki,
myndbandstæki og fleira.
Tónleikar í
Varmahlíð
Tónlistarfélag Skagafjarðar
heldur tónleika í félagsheimil-
inu Miðgarði á annan í hvíta-
sunnu, mánudaginn 5. júní kl.
15. Allur ágóði rennur til
kaupanna á nýja flyglinum í
Miðgarði.
Efnisskrá tónleikanna er fjöl-
breytt. Aðstandendur tónleikanna
hvetja Skagfiróinga til aö fjöl-
menna og njóta góórar skemmt-
una ásamt því að styðja þarft
menningarframtak, en tilkoma
nýja flygilsins er talin nauö-
synjarmál fyrir frekari framgang
tónlistarlífs í Skagafiröi, sem það
eigi eftir að dafni við um áratugi
og aldir.
Æðarvarpið á Skaganum:
Seinna á ferð en vanalega
„Það hafa nú ekki verið mikil
tækifæri til að undirbúa varp-
ið fyrir þessari bölvaðri ótíð og
kollurnar eru sáralítið byrjað-
Toyota Landcruser, stuttur
disel, árg. '87, ekinn 110 þús.
Vcrð 1150.000. Einn með öllu.
MMC Colt GLX.I 1600 árg.
'93, ekinn 35 þús.km. Verð
kr. 1.200.000. Einn með öllu.
ar að setjast upp og verpa.
Þetta er allt miklu seinna á
ferðinni núna en vanalega.
Venjulegast kem ég hingað í
byrjun maí til að taka á móti
kollunum mínum, en ég sá
enga ástæðu til að flýta mér
norður í þetta skiptið“, sagði
Jón Benediktsson nytjabóndi á
Höfnum á Skaga þegar blaða-
maður Feykis sló á þráðinn til
hans sl. föstudag. Þá var hríð-
arjagandi á Skaganum.
Jón kom noróur upp úr miðj-
um mánuðinum og síðan hefur
lítið viðrað til verka. „Við feng-
um jú gott á sunnudaginn var. Þá
var ég með nokkra með mér við
að undirbúa þetta svolítið og það
var greinilegt að þá kom strax
hugur í fuglinn, en ég sé ekki að
maóur standi mikið í varpland-
inu úr þessu“, segir Jón.
Það rekur hver vertíóin aðra
hjá nytjabóndanum í Höfnum.
Þegar æðarvarpiö er um garð
gengið byrja selveiðamar. Það er
svona í kringum Jónsmessuleyt-
ið sem Jón leggur net sín fyrir
selkópana, en það er reyndar
einnig undir tíðinni komið eins
og æðavarpið. Jón hefur stundað
selveiöamar um áraraðir og hafði
lengi vel drjúgar tekjur af.
„Eg hef verið að veiða þetta
60-80 vorkópa árlega í um 40 ár
eöa þar til markaðurinn féll um
1980 og vitanlega gaf þetta vel
af sér. Það var talað um þaö þeg-
ar verð á selskinnum var sem
hæst að skinnið legði sig á um
sex þúsund krónur aó núvirði“,
segir Jón. Aðspurður um afstöðu
bænda til veiða og nýtingu á sel
og þær ásakanir að selveióar séu
villimannslegar segir hann. ,Af-
staða okkar bænda til nýtingar á
sel er einföld. Við teljum sjálf-
sagt að veiða meó skynsamleg-
um hætti, þannig hafa veiðamar
verið stundaðar um aldir og
þannig ættu þær að þróast áfram.
Selalátrin eru viðkvæm fyrir
ágangi manna og dýra og það
em hagsmunir okkar bænda sem
veiðiréttinn ciga að rétt sé að far-
ið svo látrin séu ekki eyðilögð".
Jón er í Höfnum allt sumarið
og fram á haust, venjulegast
fram í október. Hann segir alltaf
nóg að gera, þó ekki sé það
veiðiskapurinn og heyannir, en
grastekju stundar hann ekki í
Höfnum. Það er nostur í kring-
um rekann, sem er talsverður á
Skaganum. Það þarf að dytta að
MMC Pajero V6 3000, langur
4x4, ekinn 90 þús. kiíi. Verð
2,2 millj. Fallegur bíll.
MMc Colt GLX.I 1500 árg.
'91, ekinn 90 þús. km. Verð
840.000. Góðurbíll.
Mazda 323 LX 1300 árg. '87,
ekinn 113 þús. Verð 350.000.
BÍLALEIGA
SKAGAFJARÐAR SF.
BÍLASALA
Borgartúni 8, Sauðárkróki,
sími 95-36050 og 95-36399.
Jón nytjabóndi í Höfiium flær sel á borði úr rekaviði. Borðið er
að hans sögn yfir 100 ára gamalL
girðingum og ýmsum öðrum
eignum í Höfhum og búa undir
veturinn. Þeim árstíma eyðir Jón
í Reykjavík. „Eg er nú að verða
svo gamall að það fer að síga á
seinni hlutann“, segir Jón í Höfn-
um. Hann varð 74 ára 23. maí sl.
FEYKIR
iM- Óháð fréttablaö á Noröurlandi vestra
Kemur út á miðvikudögum. Útgefandi
Feykir hf. Skrifstofa Aðalgötu 2, Sauðárkróki.
Póstfang: Pósthólf 4, 550 Sauðárkróki. Sími
95-35757. Myndsími 95-36703. Ritstjóri Þór-
hallur Asmundsson. Fréttaritarar: Magnús
Olafsson A.-Hún. og Eggert Antonsson V.-Hún.
Blaóstjóm: Jón F. Hjartarson, Guðbrandur Þ.
Guðbrandsson, Sæmundur Hermannson,
Sigurður Agústsson og Stefán Arnason.
Askriftarverð 137 krónur hvert tölublað
m/vsk. Lausasöluverð 150 kr. m/vsk. Setning
og umbrot Feykir. Prentun Sást hf. Feykir á
aðild að Samtökum bæja- og héraðsfrétta-
blaða.