Feykir - 31.05.1995, Page 3
21/1994 l EYKIR 3
Brautskráning frá Hólum
Brautskráning nemcnda frá
Bændaskólanum á Hólum fór
fram við hátíðlega athöfn í
Hóladómkirkju si. laugardag.
Að þessu sinni brautskráðust
einungis fimm nemendur frá
skólanum, allir af hrossarækt-
arbrauL Nýtt námsfyrirkomu-
lag við skólann, þýðir að nem-
endur Ijúka verknámi að
sumrinu og brautskrást því í
ágúst nk., þeir 29 nemendur
sem innrituðust í skólann sl.
haust og hafa stundað námið í
vetur. Af þeim fimm sem nú
brautskráðust hlaut sérstaka
viðurkenningu fyrir frábæran
námsárangur Helga Thorodd-
sen frá Þingeyrum.
Þeir sem ljúka búfræðiprófi af
hrossaræktarbraut og ná lág-
markseinkunn í ákv. greinum
hestamennskunnar geta sótt um
inngöngu í Félag tamninga-
manna. Jóhann Þorsteinsson
bóndi á Miðsitju, fulltrúi FT,
veitti fimmmenningunum inn-
göngu og fagnaði hinu nánu
samstarfi Hólaskóla og FT.
Við athöfnina í Hóladóm-
kirkju flutti vígslubiskupinn séra
Bolli Gústafsson hugvekju og
kirkjukór Hóladómkirkju söng
við undirleik Sigrúnar Þorsteins-
dóttur. Bergur Pálsson formaður
Félags hrossabænda flutti ávarp
og heillaóskir og Sveinbjörn
Eyjólfsson deildarstjóri flutti
kveðjur landbúnaöarráöherra.
Stefán Árnason í Innbúi & hlutum, sem er til húsa í gömlu Gránu.
Nýtt líf kviknar í Gránu
Frá Skeifukeppninni á Hólum.
Mikil þátttaka í
Skeifukeppninni
Um síðustu helgi kviknaði líf
að nýju í Gömlu Gránu, í þeim
hluta hússins sem barnafata-
verslun var til húsa um nokk-
urt skeið. Þarna hefúr nú skot-
ið rótum ný starfsemi í bænum
og reyndar í kjördæminu öllu.
Innbú & hlutir, heitir fyrir-
tækið, og er verslun með notað
innbú og hluti, bæði stórt og
smátt. Innbú & hlutir taka í
umboðssölu flesta hluti sem
nöfnum tjáir að nefna, t.d.
húsgögn, heimilistæki, hljóm-
flutningstæki, sjónvörp, töivur,
antikmuni, málverk og nánast
allt sem þú hefúr ekki not fyrir
lengur en veist að aðrir geta
nýtt sér, eins og segir í tilkynn-
ingu frá I&h.
Fyrir um 30 árum hóf störf
sem innanbúðarmaður hjá Jóni
Bjömssyni þáverandi verslunar-
stjóra í Gránu, ungur drengur á
Sauðárkróki. Ásamt því að
kenna drengnum að vinna öll al-
menn störf í versluninni vildi Jón
gjarnan kenna honum sölu-
mennsku.
Ekki hafði drengurinn verið í
marga daga í Gránu þegar
þannig hittist á að stjómarfúndur
í kaupfélaginu var haldinn á efri
hæðinni, þar sem aðalbækistöðv-
ar kaupfélagsins vom í þá daga.
Sveinn Guðmundsson þáverandi
kaupfélagsstjóri hringir í Jón og
segir honum að nú vanti stjómar-
menn öl til að svala þorsta sín-
um. Jón segir drengnum að taka
til nokkrar maltflöskur, fara með
þær upp á efri hæðina og færa
stjómarmönnum KS á fundinn.
Jafnframt eigi hann að spyrja
hvort sé hægt að gera eitthvað
meira fyrir þá.
Drengurinn trítlar upp á efri
hæðina með maltið og segir við
Svein kaupa, hvort að sé hægt að
gera eitthvað meira fyrir þá. Það
rymur svolítið í Sveini, þegar
hann segir: „Hvar er pilsner-
inn?“. Skilaboðin voru skýr.
Drengurinn vippar sér niður á
neðri hæðina, tekur til umgang af
pilsner og færir kaupfélagsstjóm-
inni. Þar meó hafði hann selt tvo
umganga af öli.
Þessi umræddi drengur er nú
aftur kominn til starfa í Gránu.
Stefán Amason heitir hann og er
talsvert bjartsýnn á starfsemina.
„Það finnst mörgum þægilegra
að koma með hluti til sölu á
svona staó, heldur en að standa í
því að selja þá í gegnum auglýs-
ingar. Þetta tekur kannski svolít-
inn tíma fyrir fólk að átta sig á
þessari þjónustu, þar sem aó
þetta er alveg nýtt á þessu svæði,
en ég er bjartsýnn", segir Stefán.
Sl. laugardag var hinn árlegi
Skeifúdagur á Hólum. Þá réðst
hvaða nemandi Hólaskóla
hlaut hinn eftirsótta verð-
launagrip Mogunblaðsskeif-
una, sem veitt er fyrir bestan
árangur í verklegum hluta
hrossanámsins við skólann. í
vetur voru 24 nemendur á
hrossaræktarbraut skólans og
tóku allir þátt i skeifúkeppn-
inni. Skeifuhafi þessa árs er
Valberg Sigfússon úr Kópa-
vogi með einkunina 8,45. Eið-
faxabikarinn fyrir best hirta
hestinn hlaut Jakop Svavar
Sigurðsson frá Akranesi og
ásetuverðlaun Félags tamn-
ingamanna Alexandra Montan
frá Svíþjóð.
Næstur Valberg í „skeifu-
keppninni" kom Bóel Anna Þór-
isdóttir frá Miðkoti í Landeyjum
með einkunina 8,37 og í þriðja
sæti Alexandra Montan frá Sví-
þjóð með 8,34.
Baráttan um ofangreinda
verðlaunagripi hefst strax og
nemendur mæta í skólann, því þá
byrja fyrstu námsgreinamar sem
telja í skeifukeppninni og henni
lýkur um vorið á skeifudeginum.
Áð haustinu læra nemendur að
jáma og fá einnig kennslu í reið-
mennsku á sérþjálfuðum hestum
skólans. Um þá kennslu sáu þeir
Egill Þórarinsson og Eyjólfúr Is-
ólfsson. Eftir áramót koma síðan
nemendur með sína eigin hesta
sem þeir þjálfa undir leiðsögn
Ingimars Ingimarssonar fram á
vorið. Fyrir skeifudag er prófað á
hestunum í hlýðniæfingu (G2)
og á skeifudeginum sjálfum í
gangtegundum. Á vorönn læra
nemendur einnig að fmmtemja
og fá til þess tryppi á vegum
skólans. Um þá kennslu sjá þau
Sigrún K. Halldórsdóttir og Ingi-
mar Ingimarsson. Þá kennir Jó-
hann Þorsteinsson á Miðsitju
hvemig á að leggja hest á skeið.
Mikill áhugi er fyrir náminu í
hrossarækt við Hólaskóla, m.a.
hefur hann farið vaxandi erlend-
is. í vetur stunduðu 6 nemendur
frá fjórum löndum nám við
Hólaskóla.
Ártorgi 1, 550 Sauðárkrókur.
Sími 455 4500 - Símbréf 455 4501
Nýtt símanúmer KS frá 3- júní
455 4500
Beint innval í deildir fyrirtækisins.
Sjá nánar í nýrri símaskrá.