Feykir - 31.05.1995, Page 6
6FEYKIR 21/1995
07ec&*t: 7^<z£*ttc (lóM&á-OH'
*7extc: 'Þón/l. s4<u*tu*tcíáá.
mundur áttu fé saman og komu þá með miklu meira
herfangi en fyrr þá gerðust þau tíðindi í Noregi að
her safnaðist saman austur við jaðar og var þá kom-
inn nálega allur landher í tvo staði. Var þar öórum
megin Haraldur er var kallaöur lúfa. Hann barðist í
mót landshöfóingjum og átti þann hinn síðasta bar-
daga áður hann ynni allt undir sig er hann barðist í
Hafursfirói, sem víða getur í sögum. Og í því bili
komu þeir Ingimundur og Sæmundur í land, sem
sagt var áður, þar nær sem herinn var saman kominn.
38. I>á mælti Ingimundun „Hér horfist nú til mik-
sjó með sitt lið en Ingimundur sigldi inn í Hafurs-
fjörð og leggur að skipafiota Haralds konungs. Þess-
ir höfðingjar voru mestir í mót Haraldi konungi: Þór-
ir haklangur og Asbjöm kjötvi þeir höfðu allmikið lið
og harðsnúið.
Ingimundur lagði að við lyftinguna á konungs-
skipinu og kvaddi konung á þessa leið: „Heill, heill,
herra.“
Konungur svaran “Vel fagnar þú eða hver ertu?”
„Ingimundur heiti ég og er Þorsteinsson og því
hér kominn að ég vil bjóða yður mitt lið og hyggjum
illa tíðinda þótt ég telji Harald konung mest verðan
og sá maður er mér vel að skapi og vil ég honum
bjóða mitt lið því að eigi er það við hvoriga muni.“
Sæmundur kvaðst eigi mundu hætta lífi sínu fyrir
hans sakir. Kom hann og eigi í þann bardaga.
Ingimundur svaran „Sjá máttu fóstbróðir að mik-
ill er afli konungs eða hvort þeim gegnir betur er með
honum eru eða hinum er í mót honum standa að því
er ég hygg. Mun hann það og góóu launa þeim er
honum veita nú sæmd og eftirgöngu. En mér mundi
þykja óvíst hvað fyrir lægi ef eigi er hans vilji ger og
mun það skilja með okkur.“
ég nýkominn úr hemaði meó nokkurum skipum.“
40. Konungur tók hans máli og kvaðst hans heyrt
hafa getið að góðum hlutum „og það mundi ég vilja
að þér yrði launað þitt starf því að ég skal allan Nor-
eg undir mig leggja. Og mikinn mun á ég að gera
þeirra er mér vilja þjóna eða þeirra er nú hlaupast á
braut í fiokka fjandmanna vorra eða til eigna sinna
sem ég hefi spurt að Sæmundur hefir gert félagi þinn
og kalla ég meira manndóm sýnast í slíkum tiltektum
sem þú hefir haft.“ Ingimundur segir Sæmundi
margt þjóðvel gefið.
4. deildin í fótboltanum:
Stígandi 50 ára
Sitja má ég sunnanfjalla,
sjúkdómsbönclin að mér herða.
Norðan vindar naprir gjalla,
nœði er smátt til langraferða.
Ligg ég því og lœt mig dreyma,
líður á hinsta vetrardaginn.
Söðla fákinn hugarheima,
hleypi djarft í svalan blœinn.
Óðum vetrar valdið dvínar,
vaknar lífog grœnkar jörðin.
Líta sálar sjónir mínar
sólu bryddan Skagafjörðinn.
Og ég greini fylkingfrjálsa,
ferðamenn á heiðum degi.
Reiðar Ijón með reista hálsa
renna hratt á sléttum vegi.
Reiðargnýsins tónar titra,
taktfost hófaslögin gjalla.
Á fœgðum skeifiun geislar glitra,
glettnir kvikna, rísa og falla.
Er sem hrökkvi afaugum neisti
afi í vöðva ei þarf að dylja.
Tengist fjör ogfáksins hreysti
finiri hönd og knapans vilja.
Lœt ég hugannfrjálsaflakka
um fornar slóðir „vœngjum
hröðuni “.
Vindheimamela, Vallnabakka
og vinamót á fleiri stöðum.
Ferðalög um fjöll og hálsa,
fjölbreytt stefum hófaglauminn.
Örœfannafaðminn frjálsa,
fagra bjarta heiða drauminn.
Stígandi meðfrjálsu fasi
fagnar þessum tímamótum.
Létt er drunga, lyft er glasi,
löginflutt á hœrri nótum.
Fimmtíu ára sögð er saga,
sigraður var hver einn vandi.
Megi enn um ár og daga
endast þrek og félagsandi.
Jói í Stapa.
Norðurlandamót pilta
í körfubolta á Króknum
í næstu viku verður haldið á
Sauðárkróki Norðurlandamót
piltalandsliða, 21 árs og yngri,
í körfubolta. Svokallað Pólar
cup. Fimm lið taka þátt í mót-
inu, auk landsliðs Islands,
Norðmenn, Svíar, Danir og
Finnar.
Keppnin hefst á fimmtudags-
kvöld og lýkur á sunnudag.
Fyrsti leikur Islands verður gegn
Dönum á fimmtudagskvöld, sá
næsti móti Norðmönnum á
föstudag, Danir em andstæðingar
íslands á laugardag og lokaleik-
urinn á sunnudag er síðan viður-
eign íslendinga og Svía.
Tveir núverandi og fyrrver-
andi Tindastólsmenn eru í ís-
lenska liðinu, Hinrik Gunnarsson
og Ingvar Ormarsson. Sá þriðji,
Ómar Sigmarsson, var einnig
valinn í liðið, en hann tók prófin
í Fjölbrautaskólanum fram yfir
landsliðsæfingamar.
Þessa dagana stendur yfir for-
sala á alla leikina í keppninni, og
em miðamir seldir á hlægilega
lágu verði. Nánari upplýsingar
um miðasöluna eru veittar á
skrifstofu Tindastóls í síma
36080.
Tindastóll og KS byrja vel
Siglfirðingar og Tindastóll
fara vel af stað í 4. deildinni í
fótboltanum, einkum þeir
fyrrnefndu, en KS-ingar
gjörsigruðu Neistamenn með
9:0 á Siglufirði sl. sunnudag.
Tindastóll vann öruggan sigur
á Þrym, 4:0, og Hvatarmenn
biðu lægri hlut fyrir SM, 1:2, í
leik sem fram fór á nýja
grasvellinum á Blönduósi.
Siglfirðingar vom heldur betri
aóilinn í fyrri hálfieiknum gegn
Neista, en lengi vel steíridi í að
hálfieikurinn yrði markalaus, þar
til Mitsa skoraði beint úr auka-
spyrnu fjórum mínútum fyrir
leikhlé. A síðustu mínutu fyrri
hálfieiks bættu sínan KS-ingar
við öðm marki. Var Mitsa þar aft-
ur að verki. Siglfirðingar byrjuðu
síðan seinni hálfleikinn eins og
þeir enduðu þann fyrri og smám
saman brotnaði Neistaliðið og
flóðgáttir opnuðust. Mörkin urðu
sjö í seinni hálfleiknum og loka-
tölur 9:0. Mitsa skoraði 5 mörk
og þeir Steingrímur, Agnar, Haf-
þór og Þórarinn sitthvert markið.
Þrymsmenn sýndu ágætis
baráttu gegn Tindastóli, en þrátt
fyrir að Tindastóll væri sterkara
liðið og færin létu ekki á sér
standa, gekk þeim erfiðlega að
skora. Um miðjan fyrri hálfleik-
inn náði Helgi Már Þórðarson að
koma liði sínu í 1:0.1 seinni hálf-
leiknum bættu síðan Davíð Rún-
arsson, Gunnar Gestsson og
Smári Eiríksson við mörkum
fyrir Tindastól og lokatölur urðu
4:0. Strekkingsvindur var þvert á
völlinn og setti hann nokkuð
svip sinn á leikinn. Aó auki er
malarvöllurinn á Sauðárkróki í
mjórra lagi og á það sjálfsagt
sinn þátt í því að leikirnir sem
þama em leiknir vilja oft leysast
upp í hnoð og þvögubolta.
Það var líka hvasst á Blöndu-
ósi, en nýi grasvöllurinn þar
kemur mjög vel undan vetri.
Eftir barning og markalausan
fyrri hálfleik kom Sigurður
Skarphéðinsson gestunum í SM í
1:0. Hörður Guðbjörnsson
jafnaði fyrir Hvöt um miðjan
hálfleikinn, en 10 mínútum síðar
skoraði Donald Celly rnark sem
reyndist sigurmark SM.
Frá leik Tindastóls og Magna í Bikarkeppninni í síðustu viku.
Öll Iiðin af Norðvesturlandi sem léku í 1. umferð féllu út.
Tindatóll tapaði fyrir Magna 0:1, KS tapaði fyrir Völsungi 0:1
á Húsavík og Hvöt fyrir Dalvík 0:6 á Blönduósi.