Feykir - 31.05.1995, Page 8
Öháð fréttablað á Norðurlandi vestra
31. maí 1995,21. tölublað 15. árgangur.
Auglýsing í Feyki fer víða!
Það komast allir í Gengið
unglingaklúbb Landsbankans
ISIáðu til og komdu í Gengið
Pottþéttur klúbbur!
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
Útskriftamemar vorið 1995 ásamt skólamcistara fjölbrautaskólans
FNV slitið í sextánda sinn
„Mér er umhugað að nemend-
ur þessa skóla fari ekki frá
honum án þess að minnast
þess að einhver orð hafi þeir
heyrt í skólanum um hversu
fuið veganesti drambið, hrok-
inn, tilgerðin og steigurlætið
eru þeim sem ganga á vit sinn-
ar framtíöar, frekari þekking-
arleitar og mannlegra sam-
skipta. Einnig að þeir gefi gaum
að gildum tilverunnar og
áhættum, án þess að áræðni
þeirra visni til að leggja góðum
málstað lið. Megi gleðin ráða
ríkjum meðal ykkar og megið
þið eiga jafnframt hugljúfar
minningar um skólavistina.
Heill og hamingja fylgi ykkur
um alla framtíð11, sagði Jón F.
Hjartarson skólameistari m.a.
í ræðu sinni sl. sunnudag, þeg-
ar Fjölbrautaskóla Norður-
lands vestra var slitið í 16. sinn.
Þessa 16. skólaárs verður
e.t.v. minnst fyrir tvennt þegar
fram líða stundir. I fyrsta sinn
var kennt í glæsilegu húsnæði
nýja bóknámshússins. Síðan setti
langvinnt kennaraverkfall á
miðri vorönn strik í reikninginn
og varð til þess að 60 nemendur
hættu í skólanum eða 13% heild-
amemendafjölda.
I vetur lögðu 356 nemendur
stund á nám við skólann. A
haustönn voru 476 nemendur og
voru 140 þeirra nýnemar. 411
héldu ál'ram námi á vorönn og 60
nemendur komu til náms sem
ekki höfðu verið í skólanum á
haustönn, því vom 471 nemandi
á vorönn. Af þessum nemendum
stunduðu 37 nám á Siglufirði og
18 á Blönduósi báðar annir. A
Siglufirði em nokkrir nemendur
á sjúkraliðabraut en annars em
nemendur í framhaldsdeildum
eða útibúum skólans í almennu
bóknámi á fyrsta ári.
Að þessu sinni brautskráðust
44 nemendur frá Fjölbrautaskóla
Norðurlands vestra, 41 af stúd-
entsprófsbrautum, tveir af at-
vinnulífsbraut og einn af ión-
námsbraut.
Verölaun fyrir námsárangur
til stúdentsprófs fengu: Halldór
Stefánsson frá Laugamýri í Lýt-
ingsstaðahreppi, nemandi á fé-
lagsfræðibraut, fyrir ágætan al-
hliöa námsárangur. Arnfríður
Amarsdóttir Sauðárkróki fyrir
ágætan námsárangur í sérgrein-
um félagsfræðibrautar. Stella
Hrönn Jóhannsdóttir Keflavík í
Rípurhreppi fékk viðurkenningu
fyrir ágætan árangur í íslensku,
ensku, dönsku og þýsku, og fyrir
heilladrjúg og fórnfús störf í
þágu Nemendafélags fjölbrauta-
skólans. Einnig fengu viðurkenn-
ingu fyrir heilladrjúg og fómfús
störf og þakklæti frá nemendafé-
laginu, Heiðrún Jóhannsdóttir,
Júlía Pálmadóttir, Pálmi Vil-
hjálmsson, Rósa María Vésteins-
dóttir og Sigríður Gunnarsdótúr.
Fjórir kennarar skólans munu
láta af störfum eða fara í leyfi. Þór-
dís Magnúsdóttir „dönskukennari
Islands", eins og Jón F. Hjartar-
son skólameistari kallaði hana í
ræðu sinni, lætur nú af kennslu
eftir að hafa starfað við skólann
frá stofnun hans 1979, en Þórdís
er að flytja ásamt fjölskyldu sinni
til Reykjavíkur. Kristján Hall-
dórsson kennari í stærðfræði og
eðlisfræði er að halda utan til
náms sem og Einar Oddsson líf-
fræðingur. Þá fer Gunnlaug Hart-
mannsdóttir námsráðgjafi í árs-
leyfi, en hún hefur starfað við
skólann í fjögur og hálft ár.
Við skólaslitin á sunnudag
söng kór skólans undir stjórn
Hilmars Sverrissonar og þau
Svana Berglind Karlsdóttir og
Gísli Magnason sungu sitthvort
verkió við undirleik Heiðdísar
Lilju Magnúsdóttur. Stefán
Kemp flutti kveðjuorð nýstúd-
enta og Júlíus Guðni Antonsson
ávarp 10 ára stúdenta. □
Jón Arnar bætti
íslandsmetið
Jón Arnar Magnússon tug-
þrautarmaður úr Tindastóli
bætti um helgina glæsilcga
Islandsmet sitt á sterku móti í
Götzis í Austurríki. Jón varð
fimmti í keppninni með 8237
stig og bætti ársgamalt met sitt
um 361 stig og er nú einungis
166 stigum frá Norðurlanda-
metinu. Arangurinn fleytti Jóni
úr 51. í 13. sæti á listanum yfir
bestu tugþrautarmenn heims.
„Þetta small vel saman aö
þessu sinni og árangurinn kom í
sjálfu sér ekki mjög á óvart, ncma
400 metra hlaupið. Ég er greini-
lega á uppleið, á eitthvað inni í
langstökkinu og í 1500 metra
hlaupinu. Þessi árangur gefur mér
góðar vonir um framtíóina. Nú er
farið að styttast í þá albestu í
heiminum", segir Jón í samtali
við DV sl. mánudag.
Jón Amar hljóp 100 metrana á
10,77 sekúntum í mótvindi sem
var 1,0. Hann stökk 7,45 m í
langstökki, en Islandsmet hans
þar er 8,00 metrar, varpaði kúlu
15,37 metra sem er hans besti
árangur og bæting í þraut um
meter, stökk 2,02 í hástökki, hljóp
400 metrana á 47,82 sek. sem er
bæting um tæpar tvær sekúntur,
110 metra grindahlaup á 14,32
sek., sem er nýtt Islandsmet,
kastaði kringlu 46,96 metra, stökk
4,90 metra í stangarstökki sem er
bæting um 20 cm, kastaði spjóti
58,94 metra og hljóp 1500
metrana á 5:09,22 mínútum.
Hafnarstjórn Sauðárkróks:
Úthlutar Shell og Olís
lóð á hafnarsvæðinu
Hafnarnefnd Sauðárkróks
samþykkti nýlega að úthluta
Olíuverslun Islands hf. og
Skeljungi hf. lóðina Strand-
götu 1, en það er syðsta lóðin á
hafnarsvæðinu, nánar til tekið
þar sem fiskeldisfyrirtækið
Fornós var áður með sína eld-
istanka. I>essi umsókn Olís og
Shell hafði legið fyrir í tals-
verðan tíma hjá hafiiarstjórn.
Feykir hafði samband við
Ekki eru taldar miklar líkur á
því að ný olístöö Olís á Sauð-
árkróki muni rísa á næstunni.
Hjört Amason fulltrúa hjá Skelj-
ungi. Hjörtur sagði að engin
ákvöróun lægi fyrir um að hefja
framkvæmdir á þessari lóð og
altént yrði sú ákvörðun ekki tek-
in í ár. Aðspurður sagðist Hjört-
ur síður búast við því að af sam-
starfi þessara stöðva yrði með
byggingu bensínstöðvar á Sauð-
árkrók, og líkumar á því hefðu
minnkað eftir að Esso keypti
hluti í Olís fyrir skömmu. „Esso
er náttúrulega langstærsti aðilinn
og með nýbyggða og velstóra
bensínstöð á Króknum, skilst
mérí', sagði Hjörtur.